Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 106

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 106
dal og voru þeir allir af Skagwaykvæmi frá Alaska. Sá Guðmundur Örn um söfnun þeirra. Söfnun fjallaþins. Af ástæðum sem ekki eru kunnar var ráðist í að safna kvistum af fjallaþin. f>ví mun væntanlega hafa ráðið, að til voru plöntur til ágræðslu í gróðrarstöðinni á Etne. Safnað var kvistum af 8 trjám: 2 í Múlakoti, 2 á Stálpastöðum og 4 á Hallormsstað. Nákvæman uppruna flestra þeirra vantar. Þó er vitað að trén á Hallormsstað eru frá Klettafjöllum í Colorado, og að trén í Múlakoti voru flutt inn frá Alstahaug í Salten í Norður-Noregi. Stálpastaðatrén munu vera ættuð frá Alexis Lake í British Columbia. 3. Skipuiag frægarðanna. Eins og sjá má að framan eru fræekrurnar þrjár að tölu, tvær á Taraldseyju og ein á Gunnars- hólma. Aður hefur þess verið getið að gróður- setning sitkagrenis hófst á Taraldseyju 1976. Þá var plantað 603 ágræðsluplöntum með 6 x 6 m bili milli plantna. Hver klónn er því endurtekinn 11 smnum innan reits, sem er rösklega 2,1 ha að flatarmáli. Sama skipulagi var beitt við útplöntun stafafurunnar: 670 plöntum af 60 klónum var plantað í 2,4 ha. Sama aðferð við gróðursetningu var viðhöfð við útplöntun fjallaþins á Gunnars- hólma, en þar voru settar 106 plöntur af 8 mis- munandi klónum, eða 12-13 endurtekningar. ÁRANGUR STARFSINS í upphafi var ekki ráð fyrir því gert, að afrakstur þessa starfs skilaði sér fyrr en eftir 15-20 ár. Hinsvegar varð reyndin önnur, því bæði sitka- grenið og stafafuran hafa náð skjótari þroska en spáð var. Fyrsta uppskera sitkagrenifræs fékkst þegar haustið 1983, eða aðeins 7 árum eftir gróðursetn- ingu. Á þessu ári var óvenju mikil blómgun og fræ á flestum barrviðartegundum í Noregi. Jafn- vel tegundir eins og Araucaria voru hlaðnar könglum. Þá um vorið blómgaðist stafafuran allvel, þannig að búast mátti við töiuverðu fræi 1984. Starfsmenn gróðrarstöðvarinnar í Etne, en þeir hafa haft umsjón með fræekrunum, töldu þó að karlblóm á furunni væru of fá til að gefa góða frjóvgun. Af þessum sökum var engu fræi safnað þá um haustið. Sumarið 1985 var þó nokkur könglamyndun bæði á sitkagreni og stafafuru. Safnað var um 0,5 kg af sitkafræi þá um haustið, en fræi af stafafuru var ekki safnað fyrr en á útmánuðum 1986. Þá var safnað um 200 kg af könglum, bæði frá árunum 1984 og 1985. Þeir sem söfnuðu könglunum höfðu gert sér vonir unr að fræið héldist í könglunum bæði árin eins og tíðkast við innsveitakvæmi í heimkynnum fur- unnar. En hér var reynslan önnur því aðeins 0,7 kg fræs fékkst úr þessum 200 kg köngla og þá næstum allt úr könglunum frá 1985. Frá og með 1985 hafa sitkagrenið og stafafuran borið fræ árlega og sýnir meðfylgjandi listi það fræmagn af báðum tegundum, sem borist hefur hingað frá 1983 til 1988. Að undanskildu 1983 hefur allt fræið verið þreskt, hreinsað og spírun- arprófað hjá Statens Skogfröverk á Hamri í Noregi og hafa frægæðin reynst nreð afbrigðum góð - spír- un hefur oftast verið um og yfir 90%. Flest virðist benda til þess að vænta megi góðs afraksturs af fræi frá Taraldseyju á allra næstu árum. Gæti hér verið um verulegt fræmagn að ræða. Þó er erfitt að spá nokkru um hámarksupp- skeru. Sé ráð fyrir því gert að fræþörf okkar hvað varðar sitkagreni og stafafuru aukist ekki veru- lega á næstu árum er nokkuð öruggt að frægarð- urinn á Taraldseyju mun geta séð okkur fyrir nægilegu fræi. Enn sem komið er hefur ekki fengist neitt fræ af fjallaþininum á Gunnarshólma. Við því mátti búast, því fjallaþinurinn nær ekki eins skjótum þroska og sitkagrenið og stafafuran. T.d. blómg- aðist þinurinn á Hallormsstað ekki fýrr en eftir 40 ár frá gróðursetningu. Síðan hefur hann blómg- ast nokkrum sinnum og borið fræ, en fræið hefur oftast verið mjög illa þroskað eða ófrjótt. Þá má gera því skóna að hið hafræna loftslag á Gunnars- hólma eigi ekki við þininn, en hann er meginlands- tegund, er vex hátt til fjalla, og því vanur allt öðru veðurfari en því sem ríkir í strandhéruðum V.- Noregs. NIÐURSTÖÐUR - ÁLYKTANIR Af framangreindu má ráða að á næstu árum megi vænta verulegs fræmagns frá Taraldseyju. Hinsvegar er eftir að fá reynslu af því fræi, sem 104 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.