Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 110

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 110
EGGERT KONRÁÐSSON Birkisáðreitir í Vatnsdal FORMÁLI Vorið 1927 voru afgirtir reitir á þremur jörðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu og sáð í þá birkifræi. Þessar jarðir eru Eyjólfsstaðir, Hof og Haukagil. Eg sem þessar línur rita var ungur drengur að alast upp í Hvammi, sem er næsti bær við Eyjólfsstaði, en stutt er á milli bæjanna, svo ég hafði gott tækifæri til þess að fylgj- ast með þessu. Reynt var að verja þessa reiti vel fyrir ágangi búfjár ■og var það í fyrsta skipti sem ég sá járnstaura notaða í girðingu. Skógræktarstjóri var þá Kofoed-Hansen, en hann kom fyrst hingað til lands árið 1906. Hann var fæddur 22. maí 1869, dáinn 7. júní 1957. Skógræktar- stjóri varð hann 1. mars 1908 og gegndi því starfi til 1. mars 1935. Til gamans ætla ég að segja frá smáatviki, sem kom fyrir í sambandi við þessa sáningu. Þannig var staðið að þessu á Eyjólfsstöðum að plægðar voru rásir niður úr grasrótinni (náttúrlega með hestaplógi) og í þessar rásir var fræinu handsáð, dreift saman við moldina með garðhrífu og síðan þjappað niður. Skógræktarstjóri vann að þessu sjálfur. Eitt sinn tókst svo illa til að skaft garðhrífunnar brotnaði í hendi hans og hlaust af nokk- urt sár, sem blæddi úr. Viðstöddum fannst fyndið að heyra hvernig hann blótaði á dönsku. Ég undirritaður og Sigurður Blöndal, skógræktar- stjóri, áttum tal saman um þessa reiti í Vatnsdalnum. Sagði ég honum þá frá því að árið 1936 hefði komið grein um þessa reiti í ritinu „Búfræðingurinn". Greinin heitir „Birkisáðreitir í Vatnsdal" eftir Eggert Konráðs- son, bónda og hreppstjóra á Haukagili. Því einmitt á þessum árum gekk yfir hin margumtal- aða heimskreppa og svo bættust við karakúlpestirnar. Sennilega hefur hag bænda á þessari öld aldrei verið jafnilla komið. Þrátt fyrir þetta þreyttist Guðmundur Jónsson, kennari og síðar skólastjóri á Hvanneyri, aldrei á að hvetja bændur til dáða og benda á ýmsar leið- ir, sem gætu orðið til þess að fegra og bæta sveitirnar og þá um leið gera lífið þar arðvænlegra og eftirsóknar- verðara. Hann gleymdi heldur ekki skógræktinni, sem sýnir sig í því að hann biður Eggert á Haukagili að skrifa fyrir „Búfræðinginn" áður umtalaða grein um „Birki- sáðreiti í Vatnsdal“. Ég hef nú með góðfúslegu leyfi míns gamla kennara, Guðmundar Jónssonar, tekið ljósrit af grein Eggerts og kemur hún nú út í annað sinn eftir 53 ár og þá fyrir les- endur Ársrits Skógræktarfélags Islands. Hallgrímur Guðjónsson frá Hvammi í haust flutti skógræktarstjóri Hákon Á. Bjarnason erindi í útvarpið um skóggræðsluna, eins og henni er nú komið hér á landi. Þar gat skógræktarstjóri um þá þrjá staði í Vatnsdal, þar sem tilraun hefir verið gerð með sáningu á birki- fræi. Það langt er síðan að þessi sáning var framkvæmd, að telja má að fullséður sé árangur af henni. Vorið 1927 voru reitir þessir afgirtir og sáning framkvæmd um mánaðamótin maí og júní. Þá- verandi skógræktarstjóri K. Hansen og aðstoðar- maður hans framkvæmdu sáningu, en heimilin lögðu til vinnu eftir föngum. Undirbúningur til sáningarinnar var sá, að stungið var eða skorið niður úr grasrótinni hér og hvar og uppvarpinu velt frá. Reynt var að hafa sem mest snið á skurðinum. Á Eyjólfsstöðum var á nokkru af landinu plægðar grunnar rásir, þar í sáð fræinu og þjappað vel niður. Landið er talsvert ólíkt á öllum þessum 108 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.