Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Blaðsíða 143
sóknaskyni undir ströngu eftirliti til að fjölga og
auka við hina fátæku flóru okkar.
Ef sjúkdómar eða skaðvaldar berast hingað
með plöntum af óþekktum uppruna, getur verið
erfitt að greina sjúkdóminn eða komast fyrir
vandann.
Tillaga svipuð þessari var lögð fram og sam-
þykkt á aðalfundi Skógræktarfélags íslands fyrir
fjórum árum og er þessari tillögu ætlað að hvetja
til að þetta mál verði afgreitt eins fljótt og unnt
er. Samþykkt samhljóða.
3.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands, haldinn
í Reykholti 26.-28. ágúst 1988, beinir þeim til-
mælum til Skógræktar ríkisins að annast skóg-
græðslu innan nýreistrar girðingar í Reykholti og
að því stefnt að fullplantað verði í landið á 3
árum. Samþykkt samhljóða.
4.
Aðalfundur Skógræktarfélags Islands, haldinn
að Reykholti 26.-28. ágúst 1988, lýsir yfir von-
brigðum sínum vegna framkvæmda jarðræktar-
laga sent varða skjólbeltaræktun. Framlag vegna
skjólbeltaræktunar á að vera 75% plöntuverðs.
Við uppgjör jarðræktarframlags fyrir árið 1987
var aðeins greitt 25% af lögbundnu framlagi.
Fundurinn beinir því til Landbúnaðarráðuneytis-
ins, Fjármálaráðuneytisins og Búnaðarfélags
íslands að úr þessu verði bætt. Samþykkt.
5.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands, haldinn
að Reykholti 26.-28. ágúst 1988, hvetur stjórn-
völd eindregið til að fylgja eftir lögum um nytja-
skógrækt á jörðum bænda með stórauknum fjár-
veitingum. Fundurinn beinir einnig þeint til-
mælum til fjármálaráðherra og framleiðnisjóðs
landbúnaðarins að fjármagni, sem veitt er til
skógræktar í landinu, verði í auknum mæli beint
til skógræktar á jörðum bænda. Fundurinn telur
að sá mikli áhugi, sem lögin vöktu meðal bænda
muni dofna ef ekki verður betur staðið við þau
fyrirheit sem lagasetningin gaf. Samþykkt sam-
hljóða.
6.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands, haldinn
dagana 26.-28. í Reykholti, Borgarfirði, sam-
þykkir að stjórn Skógræktarfélags íslands komi á
fót námskeiðum fyrir forráðamenn skógræktar-
félaga með það fyrir augum að þeir geti miðlað
þekkingu og reynslu varðandi fjölgun og hirðingu
á plöntum til hins almenna félaga. Samþykkt
samhljóða.
7.
Aðalfundur Skógræktarfélags Islands, haldinn
að Reykholti 26.-28. ágúst 1988, Iýsir áhyggjum
sínum af því tjóni, sem sinubrunar hafa valdið á
undanförnum árum, sem hafa orðið fyrir gálausa
meðferð elds. Oft hefur það gerst að ekki varð
við eldinn ráðið. Aðalfundurinn beinir því til
Skógræktarfélags íslands að hefja nú þegar
áróður gegn sinubruna, og jafnframt verði unnið
að því að lögum um sinubruna verði breytt
þannig að sinubrennsla verði aðeins leyfð undir
ströngu eftirliti og þeir sem ekki framfylgja
settum reglum verði látnir sæta viðurlögum og
gerðir ábyrgir fyrir tjóni sem kann að verða. Sam-
þykkt samhljóða.
II
TILLÖGUR FRÁ ALLSHERJARNEFND
1.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands haldinn í
Reykholti 26.-28. ágúst 1988 fagnar því að sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum
hafa sameinast um að afnema þar lausagöngu
búfjár og telur að nú sé tímabært að friða land-
nám Ingólfs á sama hátt. Samþykkt samhljóða.
2.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands 1988
leggur til að stjórn félagsins kanni möguleika á að
efna til samkeppni um gerð og hönnun vandaðra
en ódýrra hliða og girðinga, sem féllu vel að
umhverfinu. Samþykkt samhljóða.
3.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands 1988
leggur til að félagið kanni möguleika á samstarfi
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
141