Skógræktarritið - 15.05.2002, Síða 23
hitt á komandi árum. Eftirtalin
atriði munu stuðla að þvf:
* Niðurstöður hinnar miklu
kvæmatilraunar, sem Rann-
sóknastöðin á Mógilsá stendur
fyrir, og skýrt var frá hér að
framan, munu leiða til stórum
betri árangurs í ræktuninni en
verið hefir til þessa, þegar
hægt verður að hagnýta þær.
* Fræ til nota í ræktun verður á
alveg næstu árum eingöngu
framleitt í gróðurhúsum af
völdum trjám í náttúruskógum,
þar sem kvæmatilraunin mikla
verður grundvallarleiðsögn, og
einnig af kynbættum trjám.
* Kynbætt birki mun gera teg-
undina eftirsóknarverðari en
áður (sjá rammagrein).
* Bættar aðferðir við gróðursetn-
ingu (plöntugerðir, jarðvinnslu,
áburðargjöf) munu stórauka
„framleiðni" birkiræktunar með
minni vanhöldum og snarpari
vexti plantnanna á fyrsta skeiði
nýmarkanna.
* Stærri hlutur beinnar sáningar í
útjörð til þess að búa til „fræ-
banka" fyrir sjálfgræðslu (sjá
ummæli Ásu Aradóttur hér að
ofan).
* Aukin þekking og skilningur
skógræktarfólksins á nauðsyn
réttrar umönnunar birkiskóga
mun gerbreyta útliti þeirra frá
því, sem verið hefir og gera þá
aðgengilegri (grisjun).
* Allir þessir þættir, sem nú voru
taldir, munu auka stolt íslend-
inga yfir þjóðartré sínu.
Beygt 3 km austan viö Hverageröi
Harðgerð tré og runnar í garða, skógrœkt og skjólbelti.
Einnig úrval dekurplantna s.s. alparósir, klifurplöntur,
rósir, sígrœnir dvergrunnar, fjölœr blóm og sumarblóm.
Haigstæft weró « €»ééar plésmtuir
Að koma við íNátthaga borgar sig.
Oplö alla daga
frái kl. lO tll 19
Sími: 483 4840
Fax: 483 4802
Netfang: natthagi@centrum.is
Veffang: http://www.natthagi.is
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002
21