Tímarit FHH - 01.09.1990, Qupperneq 5

Tímarit FHH - 01.09.1990, Qupperneq 5
lýsa etv. best virðingu hennar fyrir öllu lífi: „Verndaðu lífið, hvar sem þú kannt að mæta því“. Hjúkrunarfræðingar hafa endurvakið hugmyndir um samhengi mannlegs lífs við líf í alheimi með auk- inni þekkingu á raunvísindum. í hjúkrun- arritum er nú rætt meira um andlega um- önnun en fyrir nokkrum árum síðan. Bandaríski hjúkrunarfræðingurinn Martha Rogers hvatti til þessarar um- ræðu með flóknu líkani af hjúkrun, sem á að skýra flutning orku og efna í manni og á milli manna annars vegar og á millj manna, lífvera og geimsins hins vegar. Hjúkrunarfræðingar gera gjarnan að gamni sínu, þegar þeir lýsa hugmyndum M. Rogers sem „geimhjúkrun". Þó er athyglisvert við líkan hennar að maður- inn sé í senn háður náttúrunni og andan- um og að margt sé skynfærum okkar hulið, sem er þrátt fyrir allt raunverulegt og áhrifamikið í daglegu lífi. Hjúkrunar- fræðingar hafa stuðst við líkan M. Rogers til að rannsókna á áhrifum birtu og hljóðs á sjúklinga. Að öðru leyti þykir kenningin of sértæk til að byggja á henni rannsóknir (Williams M.A, 1988). Rannsóknir á áhrifum umhverfisþátta á sjúklinga Á síðustu áratugum hafa hjúkrunar- fræðingar í auknum mæli rannsakað um- hverfisáhrif á öldrunar-, gjörgæslu- og vökudeildum. Doren Norton, lærður verk- og hjúkrunarfræðingur í Bretlandi, skrifaði tímamótaverk um hjúkrun og umhverfi aldraðra á sjúkrastofnunum: „By Accident Or By Design“ (1970) og ,,An Investigation Of Geriatric Nursing Problems In Hospitals“ (1975). í báðum ritunum fjallar hún um fatnað, húsgögn, hjúkrunargögn, hjálpartæki og skipulagn- ingu deilda með tilliti til sjálfsbjargar- getu aldraðra. Margt hefur verið fært til betri vegar, sem var ábótavant við aðbún- að aldraðra, síðan rannsóknir hennar birtust. Samt sem áður eru niðurstöður og ábendingar hennar enn víða í fullu gildi. Hún komst t.d. að því að hjálpar- tæki og hjúkrunarvörur eru lagðar til hliðar eítir stuttan reynslutíma án þess að framleiðendur fái ábendingar og svör um notagildi nýjunga og annmarka þeirra. Sálfræðingar hafa rannsakað hvemig öldrunardeildir hafa áhrif á heilaskadd- aða sjúklinga, sem em ekki áttaðir á tíma og stað. Niðurstöður þeirra benda til þess að margt megi bæta í umhverfi til að auka áttun þessara sjúklinga (Taulbee L.R,1976). Bandaríski sálfræðingurinn Skinner telur að aldraðir eigi auðveldara með að lifa við skert minni, ef umhverfið veiti þeim áreiti, sem minna á hluti og at- burði tengda venjum daglegs lífs. Rannsóknir á þörfum fólks fyrir ákveð- in rými og yfirráðasvæði hafa reynst gagnlegar til að skilja þarfir sjúklinga á langlegudeildum. Tilfinning fyrir yfir- ráðasvæði getur birst í því að sjúklingar haldi sig helst á ákveðnum stað, sitji á ákveðnum stól, gangi oft sömu leiðina o.s.frv. Tilhneiging manna til að skapa sér yfirráðasvæði tengist öryggisþörfum svo og þörfum fyrir að ráða einhverju sjálfir (Newcomer R.J, Caggiano M.A.). Umhverfi gjörgæslu- og annarra sjúkradeilda hefur verið rannsakað með tilliti til skynfæðar og oförvunar. Þessi þekking hefur leitt til þess að hjúkmnar- fræðingar áttuðu sig betur á þörfum sjúk- linga fyrir misjafnt magn og tegund skyn- áreita. Sjúklingar geta annaðhvort haft þörf fyrir aukna eða fjölbreyttari skynjun, eða þeir þurfa að losna við óþægilegt áreiti, eins og hávaða og stöðugt sterkt ljós (Roberts S, 1978). I þessu sambandi er vert að minnast á hávaðamælingu, sem hjúkmnarfræðinemar gerðu árið 1989 á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún leiddi í ljós að starfsfólk veldur meiri hávaða en tæki eða aðrir umhverf- isþættir (Aldís Jónsdóttir o.fl.,1989). Skynfæð og oförvun geta leitt til ofskynj- unar og streitusjúkdóma, sérstaklega þó hjá þeim, sem em viðkvæmir fyrir. Hjá ungbömum hefur oförvun í umhverfi þeirra nýlega verið greind, sem einn af fleiri þáttum, er geta valdið óværð (McKenzie, 1989). Umhverfi barna á nýbura- og vöku- deildum hefur verið kannað með tilliti til skynáreita tengdum þroska bama. Ná- lægð foreldra og örvun með snertingu, rödd og augnaráði hefur greinst sem mik- ilvægasti þáttur fyrir þroska og tengsla- myndun nýbura (Kenell J, Marshall K, 1982). Umönnun á barnadeildum hefur víða breyst mikið síðan rannsóknir greindu frá því að börnum liði best þegar for- eldra gátu verið sem mest nálægt þeim. Það var ekki óalgengt að börn hlutu skamm- og langtíma sálrænan skaða af sjúkrahúsvist þegar þörfum þeirra fyrir trúnaðarpersónu og leiki var ekki full- nægt, (Thompson R.H, 1985). Framtíðarverkefni í heilsuvernd tengd umhverfi Ekki er hægt að ljúka svo hugleiðing- um um umhverfi sjúkra án þess að minn- ast á heilsuvemd og umhverfi yfirleitt. Islenskir hjúkmnarfræðingar hafa á síð- ustu tveimur áratugum sinnt heilsuvemd í auknum mæli. Heilbrigðisstefna Al- þjóðaheilbriðisstofhunarinnar hvetur hjúkmnarfræðinga í Evrópu til aukinnar þátttöku á þessum vettvangi. Þar sem af miklu efni er að taka fylgja hér aðeins nokkrar uppástungur um framtíðarverk- efni, sem væm þess virði að hjúkmnar- fræðingar ræddu þau sín á milli. Sumir hafa þegar hafist handa við að vinna að þeim málum eða við rannsókn þeirra. Þau em: Umhverfi barna og fyrirbygging slysa. Umhverfi ungbarna með tilliti til fyrirbyggingar ungbarnaofnæmissjúk- dóma. Umhverfi, lífsstíll og sjúkdóms- mynstur Islendinga og nýjar leiðir í heilbrigðisfræðslu. Starfsumhverfi; áhrif þess á heilsufar manna og þáttur hjúkmnarfræðinga í atvinnuheilsuvernd. Lokaorð Hjúkmnarfræðingar hafa lengi velt áhrifum umhverfis á heilsu og líðan manna fyrir sér. Fyrirrennarar í hjúkmn gáfu gott fordæmi við að stuðla að heilsu- samlegu umhverfi sjúklinga. Rannsóknir benda til þess að umhverfi, sem er skipu- lagt með þarfir sjúklinga í huga, getur aukið sjálfsbjargargetu, bætt líðan og dregið úr slysum og kvillum. Það er nauðsynlegt að hjúkmnarfræðingar líti einnig framvegis á umhverfi sjúkra og heilbrigðra, sem hlekk í heilbrigði manna. Heimildir Aldís Jónsdóttir, Guðný Björk Guðjónsdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Sigrún Gerður Finnbogadóttir (1989). Hávaðamæling á Gjörgæsludeild Landspítalans. Háskóli íslands, Námsbraut í hjúkrunarfræði, lokaverkefni. Fox, M. (1985). Illuminations of Hildegard of Bing- en. Bear & Co., Santa Fe, New Mexiko. Hertzka, G., Strehlow, W. (1986). Die Edelsteinmed- izin der heiligen Hildegard. Bauer, Freiburg im Breisgau. ICN International Nurses Day 1990: Nurses and the en- vironment, ICN/89/208. Kenell, J., Marshall, K. (1982). Parent-Infant bond- ing. Mosby, St. Louis, USA. McKenzie, S. (1989). Troublesome crying in infants. The effect of advice to reduce overstimulation. Symposium: Feeding, sleeping and crying pro- blems. 8th Annual Conference, The society for reproductive and infant psychology, care for in- fants and their families in the 1990 s, St. Peter s College, Oxford, 13.—15. 9. 1989. Nightingale, F. (1859) Notes on nursing. London, Harrison & Sons. Nightingale, F. (1859) Notes on hospitals. London, Longmans, Grenn & Co. Newcomer, R.I., Caggiano, M.A. (1976). Environ- ment and the aged person, In Mortenson Bumside I. Nursing and the aged. McGraw Hill Book Co., USA. Framhald á bls. 21. 3 7. árg. 1. tbl. 1990

x

Tímarit FHH

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit FHH
https://timarit.is/publication/2014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.