Tímarit FHH - 01.09.1990, Síða 12
Klínisk hjúkrun, fortíð
nútíð —framtíð
séð með augum hjúkrunarfræðingsins
Elín J. G. Hafsteinsdóttir
Gyða Baldursdóttir
Erindi flutt á ráðstefnu Fhh, „Klínísk hjúkrun, fortíð — nútíð
— framtíð“ sem haldin var á Hótel Sögu 17. febrúar 1990.
Það hefur oft vafist fyrir okkur hjúkrunarfræðingum að skilgreina hjúkrun. Það er hins
vegar ekki hœgt að merkja að það hafi á nokkum hátt vafistfyrir þeim sem sáu um nýj-
ustu útgáju íslensku orðabókarinnar því þar segir að það að hjúkra merki að annast
sjúkling, veita aðhlynningu. Þeir hafa hins vegar enga tilraun gert til þess að skýra
merkingu orðsins ,,klínískur“ því það finnst ekki í þeirri góðu bók. í ensk-íslenskri
orðabók, Sörens Sörenssonar er hins vegar sagt að orðið ,,clinical“ merki það sem
fjallar um eða byggir á beinni skoðun og meðferð sjúklings. Aðfjalla um klíníska hjúkr-
un er ákaflega yfirgripsmikið. Við gætum haft hér vetursetu, haft það sem eina umræðu-
efnið og œrinn starfa. Það að setja manni síðan fyrir að fjalla um klíníska hjúkrun í
fortíð, nútíð og framtíð í 30 mínútur gæti sumum þótt mikið í lagt, enda er það svo.
I erindi okkar verður því stiklað á stóru, dregnir út þeir þœttir sem okkur þykja
mikilvægastir svo sem ábyrgð, skráning hjúkrunar, gœðamat, símenntun, samstarf
heilbrigðisstétta og þátttaka klínískra hjúkrunarfræðinga í rannsóknum. Annað er látið
liggja milli hluta.
Halldóra Gunnsteinsdóttir, sem sagt er
frá í Víga-Glúmssögu og María Péturs-
dóttir getur um í bók sinni Hjúkrunar-
saga, hefur líklega ekki velt því mikið
fyrir sér hvað klínísk hjúkrun væri þegar
hún sagði við konur sínar ,,ok skulum
vér binda sár þeirra manna er lífvænir
eru, úr hvorra liði sem eru“. En hún var
að hjúkra, veita aðhlynningu, vernda líf.
Fram til síðustu aldamóta voru þær
kröfur gerðar til kvenna sem stunduðu
hjúkrun hér á landi, að þær væru laghent-
ar, þrifnar og góðar stúlkur. Kröfúr til
menntunar jukust þó smám saman.
Nokkrar íslenskar stúlkur fóru upp úr
aldamótum utan til hjúkrunamáms. Þeg-
ar þær komu heim aftur urðu þær braut-
ryðjendur á sviði hjúkrunar hér á landi.
Með þeirra hjálp var Hjúkrunarskóli Is-
lands stofnaður 1931 og starfaði hann
allt til ársins 1986. I íyrstu var nám í
hefðbundnum hjúkrunarskóla að mestu
fólgið í verklegri þjálfun og þekkingar-
forði, byggður á kenningum og rann-
sóknum, var af skomum skammti. Leikni
var mikilvægari en þekking. Starf, hegð-
un og viðhorf hjúkmnarkvenna byggðist
á hefð og þjálfun. Með aukinni tækniþró-
un jukust kröfur til hjúkrunarkvenna um
aukna þekkingu. Ekki reyndist lengur
fúllnægjandi fyrir hjúkrunarkonu að vita
hvemig skyldi framkvæmt, heldur var
jafnmikilvægt, ef ekki mikilvægara að
vita hvers vegna ákveðinni meðferð var
beitt.
í fyrstu þróaðist hjúkmnarstarfið í
skjóli læknisfræðinnar. Læknamir höfðu
haslað sér völl inni á sjúkrahúsunum og
víða varð hjúkrun þjónustugrein við
læknisfræðina frekar en sjúklingana.
Hjúkmnarfræðingar höfðu áður einungis
sinnt sjúkum. Hjúkmn var verk- og sjúk-
dómsmiðuð og hlutirnir vom gerðir við
eða fyrir sjúklinginn. Nú leitast hjúkmn-
arfræðingar hins vegar við að líta á skjól-
stæðing sinn í heild, fást bæði við sjúka
og heilbrigða og vilja ekki eingöngu gera
eitthvað fyrir sjúklinginn heldur einnig
með honum í þeim tilgangi að hann verði
virkur þátttakandi.
í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 57
frá 1978, grein 29.2 segir:
,,A svæðis- og deildarsjúkrahúsum
skulu vera yfírlæknar sérgreina og
hjúkmnarstjórar deilda. Yfirlæknir
(forstöðumaður) sérdeildar ber
ábyrgð á lækningum, sem þar fara
fram. Hann skal hafa eftirlit með
starfsemi deildarinnar og stuðla að
því að hún sé ávallt sem hagkvæmust
og markvissust. Hjúkmnarstjóri
skipuleggur hjúkmn á deildinni í sam-
Elín J. G. Hafsteinsdóttir lauk prófi frá
námsbraut í hjúkrunarfræði við H.I. 1982.
Hún hefur síðan starfað á Landspítalanum,
lengst af sem deildarstjóri á 12 A en er
núna í fríi frá störfúm.
Gyða Baldursdóttir brautskráðist frá náms-
braut í hjúkrunarfræði við H.I. 1982. Hún
hefur síðan starfað á Landspítalanum. Hún
hefur verið deildarstjóri á Bráðamóttöku
Landspítalns frá því að hún opnaði.
10
Tímarit Fhh