Tímarit FHH - 01.09.1990, Side 23

Tímarit FHH - 01.09.1990, Side 23
fyrri þekkingu og hæfni viðkomandi, í þeim tilgangi að dýpka hana og víkka. Mjög brýnt er að skipulögð endurmennt- un fyrir hjúkrunarfræðinga hefjist sem fyrst á vegum námsbrautar í hjúkrunar- fræði við Háskóla íslands. Uppbygging og skipulagning fram- halds- og endurmenntunamámsins mun væntanlega vera fyrst og fremst í hönd- um þeirra aðila sem eiga að sjá um þessi mál innan námsbrautar í hjúkrunarfræði, en allar stærri ákvarðanir hljóta þó að vera háðar samþykkti námsbrautarstjórn- ar. Ljóst er að skipulagning námsins verður að lúta þeim reglum er háskólinn setur um háskólanám, en leggja verður áherslu á að samráð verði haft við félög hjúkrunarfræðinga, eða eins og segir í skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnun- arinnar um þróun námsskrár í endur- menntun fyrir hjúkrunarfræðinga, (í lauslegri þýðingu): „Námskrá er ekki hægt að þróa í einangrun í heilbrigðis- deildum ráðuneyta. Þar verður að leita til kennara jafnt í hjúkrun og öðram greinum, til neytenda (bæði neytenda hjúkranarþjónustunnar og nemenda er sækja námskeiðin), til aðila er ráða fjár- magni, til hjúkranarfræðinga sjálfra og vinnuveitenda þeirra og til fagsambanda hjúkranarfræðinga og tengdra greina.“ (WHO, 1985). Engin könnun hefur verið gerð sérstak- lega til að kanna áhuga og þörf hjúkran- arfræðinga á Islandi fyrir framhalds- og endurmenntun. Hins vegar var spurt um áhuga háskólamenntaðra hjúkranarfræð- inga á námskeiðum, í könnun sem gerð var meðal félagsmanna Fhh í febrúar og mars 1986. Af þeim 130 einstaklingum sem tóku þátt í könnuninni höfðu 49 áhuga á námskeiðum í stjómun, 45 höfðu áhuga á að sækja klínisk endurmenntun- amámskeið og 57 höfðu áhuga á að sækja námskeið í rannsóknum, aðferðafræði og tölvunotkun. Þá höfðu 24 áhuga á upp- riijunarnámskeiðum og námskeiði í nýj- ungum í hjúkranarfræði (Jóna Siggeirs- dóttir, 1987) Brýnt er að könnun sem gefur til kynna áhuga og þörf hjúkranar- fræðinga fyrir framhalds- og endur- menntun verði gerð sem fyrst. Félagsmenn Fhh binda miklar vonir við breytta skipan í framhalds- og endur- menntunarmálum hjúkranarfræðinga og má segja að þessi hópur hafi sýnt mikið langlundargeð á þeim þrettán áram sem liðin era frá útskrift fyrsta hóps hjúkran- arfræðinga með B.S. próf frá Háskóla íslands. Heimildir Jóna Siggeirsdóttir (1987). Nokkrar niðurstöður úr könnun á viðhorfum háskólamenntaðra hjúkrunar- fræðinga. Tímarit Fhh 4 (1) 2—6. WHO (1985). Postbasic and graduate education for nurse, Report on a WHO meeting in Helsinki 4.-8. júní 1984, Copenhagen: WHO Regional Off- ice for Europe. Bréf stjórnar Fhh til formanns stjómar námsbrautar í hjúkrunarfræði dags. 30. ágúst 1990 undirritað af Lauru Sch. Thorsteinsson. Fhh (1990). Óbirt könnun á menntun félagsmanna Fhh gerð á vegum Félags háskólamenntaðra hjúkmnar- fræðinga vor 1990. Framhald frá bls. 3. Norten, D. (1970). By accident or by design. Churc- hill Livingstone, Edinburgh. Norten, D. (1975). An investigation of geriatric nurs- ing problems in hospitals. Churchill Livingstone, Edinburgh. Reid, N.G., Boore, J.R.P. (1987). Research methods and statistics in health care. Edward Amolds, U.K. Roberts, S. (1978). Behavioral concepts and nursing throughout the life span. 4. Sensory deprivation. Prentice Hall, Inc. Englewood Cliffs, N.J. 07632. Seidler Eduard (1966). Geschichte der Pflege des kranken Menschen. Kohlhammer, Stuttgart. Taulbee L.R. (1976). Reality Orientation and the aged. In Mortenson Bumside I. Nursing and the aged. McGraw-Hill Book Co., USA. Thompson, R.H., (1985). Psychosocial research on pediatric hospitalization and health care. Charl- es Thomas, Publ., Springfield, Illionois, USA. Williams, M.A (1988). The physical environment and patient care, Chapter 3. Annual Review of Nurs- ing Research, 6: 61.84.In: Research On Nursing Practice. Hjúkrunarfræðingar Bæklingurinn um Meðferð óhreinna sára eftir Ástu Thoroddsen, hjúkrunarfræðing, er nýkominn út á vegum Háskólaútgáfunnar og kostar eintakið kr. 500. Pantanir óskast gerðar á skrifstofu námsbrautar í hjúkrunarfræði, Eirbergi við Eiríksgötu, símar 694960 og 69469. 21 7. árg. 1. tbl. 1990

x

Tímarit FHH

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit FHH
https://timarit.is/publication/2014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.