Golf á Íslandi - 01.10.2011, Blaðsíða 14
G O L F
fyrri 9
Tinna Jóhannsdóttir, Íslandsmeistari
í golfi 2010, hefur ákveðið að gerast
atvinnukylfingur og stefnir að því að
verða fyrsti íslenski kvenkylfingurinn
sem vinnur sér varanlegan sess á
Evrópumótaröð kvenna.
Tinna mun dvelja í Bandaríkj-
unum og vera þar við æfingar og
keppni fram að úrtökumótinu.
Hún er þegar farin vestur um haf, þar
sem hún lék háskólagolf, fyrst með
McNeese State University og síðar undir
merkjum University of San Francisco, en
þaðan útskrifaðist hún sl. vor með BA-
gráðu í alþjóðafræðum. Til að komast í
keppnisæfingu meðal sterkra kylfinga
hyggur hún á þátttöku í all nokkrum
mótum á Cactus-mótaröðinni í október
og nóvember en það er sterk svæðis-
mótaröð kvenna í vesturhluta Banda-
ríkjanna og stökkpallur fyrir marga
efnilega og góða kvenkylfinga upp á
hæstu þrep íþróttarinnar.
Tinna kveðst ætla að gefa sér fjögur ár til að ná
fyrsta markmiði sínu, sem er skilyrðislaus þátt-
tökuréttur á Evrópumótaröðinni. Takist henni ekki
ætlunarverk sitt í fyrstu tilraun, kveðst Tinna ætla
að einbeita sér að minni mótaröðum. „Nordea
Tour í Svíþjóð er góð mótaröð til að halda áfram
að vinna í settum markmiðum og halda sér í topp-
formi á vellinum. Einnig er til mótaröð sem heitir
LET Access Series og er tengd Evrópumótaröðinni,
þannig að möguleiki er á að vinna sér inn rétt á
henni í gegnum úrtökumótið í janúar. Í gegnum
þessa mótaröð er þá hægt að vinna sér inn rétt
á Evrópumótaröðina með jöfnu og góðu gengi,“
segir Tinna.
Tinna, sem er 25 ára, hóf golfiðkun er hún var tólf
ára hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, enda
hæg heimatökin þar. Föðurbróðir Tinnu er Björg-
vin Sigurbergsson, margfaldur Íslandsmeistari
í golfi sem sjálfur hefur reynt fyrir sér í heimi
atvinnumennskunnar. Innan fjölskyldunnar býr
því reynsla og þekking sem reikna má með að
reynist Tinnu dýrmæt.
Framfarir Tinnu á golfvellinum hafa verið í senn
skjótar og stöðugar. Aðeins fjórum árum eftir
að hún hóf fyrst golfiðkun, þá sextán ára, fékk
Tinna fyrsta verkefnið á vegum Golfsambands
Íslands og hefur hún átt víst sæti í afrekssveit
Keilis og landsliðum æ síðan. Tinna vann sitt
fyrsta stigamót á íslensku mótaröðinni er hún var
sautján ára og hefur síðan sigrað sex sinnum til
viðbótar.
Til að greiða götu sína leitar Tinna nú stuðnings
frá fyrirtækjum og öðrum mögulegum velunn-
urum. „Ég er að leita eftir fjárhagslegum
stuðningi, svo ég geti náð markmiðum mínum
sem íþróttamaður og kylfingur. Ég hef unnið
kostnaðaráætlun fram yfir úrtökumótið í janúar
til að varpa ljósi á hvað til þarf svo ég geti einbeitt
Tinna í atvinnumennsku
mér að því að verða betri kylfingur og ná þannig
markmiðum mínum,“ segir Tinna Jóhannsdóttir.
Ferill Tinnu er glæsilegur en þar ber þó hæst Ís-
landsmeistari kvenna 2010 og sex sigrar á Eimskips-
mótaröðinni. Hún varð fjórum sinnum Íslands-
meistari unglinga í höggleik og tvisvar varð hún
holumeistari. Tinna varð í 2.
sæti á Norðurlandamóti
með íslenska kvenna-
landsliðinu 2007 og
fjórum sinnum hefur hún
orðið klúbbmeistari Keilis.
Þá hefur hún verið valin í
landslið Íslands til þátttöku á heims-
meistaramótum landsliða og Evrópumótum alls sjö
sinnum. Tinna var valin kylfingur ársins 2010.
Fyrstu krónurnar í kassann
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili hóf svo atvinnu-
mannaferilinn með að leika á Wigwam mótinu síðla
septembermánaðar í Arizonafylki í Bandaríkjunum.
Hún varð í 6. sæti á mótinu á samtals 218 höggum.
Hún lék fyrsta hringinn í mótinu á 76 höggum eða
fjórum höggum yfir pari.
Tinna svaraði hins vegar fyrir sig með tveimur
góðum hringjum sem hún lék báða á 71 höggi eða
einu höggi undir pari Southern Dunes vallarins og
lyfti sér fyrir vikið upp í sjötta sæti. Tinna varð ellefu
höggum á eftir Alejandru Llaneza sem sigraði á
mótinu.
Fyrir sjötta sætið fékk Tinna um 80 þúsund krónur í
sinn hlut sem vafalaust kemur sér að góðum notum
við æfingar og keppni næstu vikurnar.
14