Golf á Íslandi - 01.10.2011, Blaðsíða 34
1. dagur
Axel jafnaði vallarmetið og tók forystuna
Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili, tók forystuna
á fyrsta hring í Íslandsmótinu í höggleik. Axel lék á
65 höggum eða sjö höggum undir pari og jafnaði
um leið vallarmetið sem Gunnar Þór Jóhannsson úr
GS setti árið 2001. Axel hefði hæglega getað bætt
vallarmetið því hann missti stutt pútt fyrir fugli á 18.
holunni eftir frábært vipp. Axel var ekki langt frá því
að setja þriðja högg sitt niður fyrir erni en hann átti
þá pútt fyrir fugli sem virtist vera formsatriði að setja
niður. Axel púttaði hins vegar ákveðið í holubrúnina
og framhjá og missti þar með af tækifærinu á að eiga
einn vallarmetið á Hólmsvelli í Leiru.
„Þetta var nánast fullkominn hringur. Aðstæður buðu
upp á rautt skor, völlurinn frábær og gott veður. Ég
hefði auðveldlega getað verið á lægra skori en ég get
ekki kvartað. Þetta er frábær byrjun á Íslandsmótinu,“
sagði Axel eftir hringinn.
Aðstæður voru frábærar á fyrsta keppnisdegi og léku
alls 22 kylfingar undir pari á fyrsta hring í karlaflokki.
Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili í Mos-
fellsbæ og Alfreð Brynjar Kristinsson úr Golfklúbbi
Kópavogs og Garðabæjar voru jafnir í öðru sæti á
66 höggum. Kristján Þór fékk skemmtilegan örn á
18. holu þegar hann vippaði þriðja höggi sínu beint í
holuna á flugi. Alfreð Brynjar átti góðan endasprett
á fyrsta hring og lék síðustu sjö holurnar á fimm
höggum undir pari. Helgi Birgir Þórisson úr GSE og
Hjörleifur Bergsteinsson úr Keili voru jafnir í fjórða
sæti á 68 höggum.
Staðan eftir 18 holur:
1. Axel Bóasson GK 65 -7
2.-3. Kristján Þór Einarsson GKJ 66 -6
2.-3. Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 66 -6
4.-5. Helgi Birkir Þórisson GSE 68 -4
4.-5. Hjörleifur G Bergsteinsson GK 68 -4
6.-8. Arnar Sigurbjörnsson GKJ 69 -3
6.-8. Heiðar Davíð Bragason GÓ 69 -3
6.-8. Helgi Runólfsson GK 69 -3
9.-11. Ottó Sigurðsson GKG 70 -2
9.-11. Guðjón Henning Hilmarsson GKG 70 -2
9.-11. Ólafur Björn Loftsson NK 70 -2
Svona þróaðist mótið:
3. dagur
Axel með þriggja högga forystu fyrir lokahringinn
Axel Bóasson úr Keili hafði þriggja högga forystu
fyrir lokahringinn í Íslandsmótinu en hann var sam-
2. dagur
Systkini í forystu í Íslandsmótinu
Það var uppi nokkuð sérstæð staða eftir annan hring í
Íslandsmótinu í höggleik. Alfreð Brynjar Kristinsson úr
GKG leiddi karlaflokkinn ásamt Axel Bóassyni á sam-
tals átta höggum undir pari eftir að hafa leikið annan
hringinn á 70 höggum. Þar með voru systkini í forystu
í mótinu því systir Alfreðs, Ólafía Þórunn, var í forystu
í kvennaflokki.
Alfreð fékk örn á 18. holunni og náði þar með að
jafna við Axel sem fékk fugl á sömu holu og lék sá
síðarnefndi á 71 höggi en Alfreð á 70 höggum. Ólafur
Már Sigurðsson úr GR var þriðji á sex höggum undir
pari en hann átti hring dagsins þegar hann lék á 67
höggum eða fimm höggum undir pari.
Heiðar Davíð Bragason GÓ var fjórði á fimm höggum
undir pari en svo komu Hlynur Geir Hjartarson
GOS, Þórður Rafn Gissurarson GR, Guðjón Henning
Hilmarsson GKG og Kristján Þór Einarsson GKj jafnir í
fimmta sæti á samtals fjórum höggum undir pari.
„Aðstæður voru erfiðari í dag en helgin leggst vel
í mig. Sjálfstraustið er í botni og ég er að pútta og
slá mjög vel,“ sagði Alfreð eftir annan hring. Ólafur
Már Sigurðsson úr GR kom sér í baráttuna með hring
dagsins og segir að stöðugleikinn hafi ráðið ferðinni.
„Ég var að slá mjög vel og stutta spilið var fínt. Ég
spilaði líka vel á fyrsta keppnisdegi en náði ekki að
skora alveg jafn vel. Stefnan var sett á að sækja á
öðrum hring og það gekk upp. Ég er stöðugur og það
er kannski ekki neitt eitt sérstakt sem er að skila þessu
hjá mér. Leikurinn hjá mér er mjög fínn. Ég byrjaði
strax í vor að spila og æfa meira eftir að hafa nánast
ekkert gert í 4-5 ár. Það tekur sinn tíma að komast
aftur í gírinn en hægt og bítandi er þetta að koma,“
sagði Ólafur Már.
Staðan eftir 36 holur:
1.-2. Axel Bóasson GK 65-71=136 -8
1.-2. Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 66-70=136 -8
3. Ólafur Már Sigurðsson GR 71-67=138 -6
4. Heiðar Davíð Bragason GÓ 69-70=139 -5
5.-8. Þórður Rafn Gissurarson GR 71-69=140 -4
5.-8. Hlynur Geir Hjartarson GOS 71-69=140 -4
5.-8. Guðjón Henning Hilmarsson GKG 70-70=140 -4
5.-8. Kristján Þór Einarsson GKJ 66-74=140 -4
9. Arnar Sigurbjörnsson GKJ 69-72=141 -3
10.-11. Sigmundur Einar Másson GKG 72-70=142 -2
10.-11. Helgi Birkir Þórisson GSE 68-74=142 -2
EIMSKIPS
mótaröðin
tals á fjórum höggum undir pari eftir 54 holur. Axel
lék þriðja hringinn í mótinu á 76 höggum við afar
krefjandi aðstæður á Hólmsvelli. Axel fékk fugl á 18.
holu eftir að pútt hans fyrir erni krækti. Guðjón Henn-
ing Hilmarsson úr GKG vann sig upp í annað sætið
eftir að hafa verið í fimmta sæti eftir 36 holur. Hann
lék þriðja hringinn á 75 höggum eða þremur höggum
yfir pari.
Axel Bóasson úr Keili hafði þriggja högga forystu
fyrir lokahringinn í Íslandsmótinu en hann var sam-
tals á fjórum höggum undir pari eftir 54 holur. Axel
lék þriðja hringinn í mótinu á 76 höggum við afar
krefjandi aðstæður á Hólmsvelli. Axel fékk fugl á 18.
holu eftir að pútt hans fyrir erni krækti. Guðjón Henn-
ing Hilmarsson úr GKG vann sig upp í annað sætið
eftir að hafa verið í fimmta sæti eftir 36 holur. Hann
lék þriðja hringinn á 75 höggum eða þremur höggum
yfir pari.
Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG var í þriðja sæti á
samtals pari eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 80
höggum á Hólmsvelli. Engum kylfingi tókst að leika
undir pari þriðja hring og voru það þeir Haraldur
Franklín Magnús úr GR og Davíð Gunnlaugsson úr
GKj sem áttu bestu hringi dagsins er þeir léku á 74
höggum.
„Það er mjög gaman að vera í forystu fyrir lokahring-
inn. Þetta gekk upp og niður hjá mér í dag eins og
hjá öllum í þessum vindi. Ég var að pútta mjög vel og
skilaði inn góðu skori ef miðað er við aðstæður. Ég er
mjög sáttur,“ sagði Axel eftir hringinn.
„Ég hefði alltaf tekið því að spila á 75 höggum
fyrir hringinn. Það verður gaman að leika í lokarás-
hópnum, alltaf gaman að vera í sviðsljósinu,“ sagði
Guðjón Henning Hilmarsson úr GKG léttur að loknum
Axel setti vallarmet
með frábæru golfi í
fyrsta hring.
Alfreð Brynjar var
í toppbaráttunni
allan tímann.
34