Golf á Íslandi - 01.10.2011, Blaðsíða 46
EIMSKIPS
mótaröðin
Íslandsmótið í holukeppni fór fram um miðjan ágúst
á Strandarvelli á Hellu. Mótið fer fram með því sniði
að 32 efstu kylfingarnir á stigalista karla á Eimskips-
mótaröðinni er skipt niður í átta fjögurra manna riðla
þar sem leiknar eru þrjár umferðir. Einn kylfingur
úr hverjum riðli komst í 8-manna úrslit. Ekki var
riðlakeppni hjá konunum þar sem þátttaka var ekki
nægjanleg og því hófust leikar í 16-manna úrslitum.
Svo fór að lokum að þau Arnór Ingi Finnbjörnsson
og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR báru sigur úr
býtum eftir vel heppnað Íslandsmót.
Nokkur þekkt nöfn duttu úr leik í karlaflokki eftir
riðlakeppnina. Þar má helst nefna kylfinga líkt og
Guðmund Ágúst Kristjánsson úr GR, Alfreð Brynjar
Kristinsson úr GR og Harald Franklín Magnús úr GR.
Haraldur Franklín þótti sigurstranglegur fyrir mótið
en gerði sig sekan um mistök þegar hann skráði sig
ekki á settum tíma í mótið og fór fyrir í vikið í sterkan
riðil með kylfingum líkt og Andra Þór Björnssyni úr GR
og Guðjóni Henning Hilmarssyni úr GKG í stað þess
að leika í riðli með minni spámönnum sökum góðrar
stöðu sinnar á stigalistanum. Að auki fékk Birgir Leifur
Hafþórsson úr GKG ekki tækifæri á að verja titil sinn
í mótinu í ljósi þess að hann hafði ekki leikið í móti á
Eimskipsmótaröðinni í ár þrátt fyrir að hafa áhuga á
að taka þátt.
Gott gengi GR-inga
GR-ingar voru fyrirferðamiklir í 8-manna úrslitum
í karlaflokki en alls fimm kylfingar úr GR komast
upp úr riðlakeppninni. Heimamaðurinn Andri Már
Óskarsson úr GHR lagði Stefán Má Stefánsson úr
GR, 1/0, í 8-manna úrslitum en Stefán var stigahæsti
kylfingurinn á Eimskipsstigalistanum af þeim sem
Ólafía Þórunn tryggði
sér tvennuna með sigri
Arnór Ingi
braut ísinn á
Hellu
tóku þátt í mótinu. Andri Már lék á móti nafna
sínum Andra Þór Björnssyni úr GR í undanúrslitum
en Andri Þór fór illa með Arnar Snæ Hákonarson úr
GR, 6/5 í leik sem lauk á 13. flöt. Í hinni undanúrslita-
viðureigninni mættust GR-ingarnir Arnór Ingi Finn-
björnsson og Þórður Rafn Gissurarson. Arnór mætti
Helga Birki Þórissyni úr GSE í 8-manna úrslitum og
hafði betur 2/0. Þórður Rafn mætti hins vegar Davíð
Gunnlaugssyni úr GKj í 8-manna úrslitum og vann
góðan 3/1 sigur.
Það voru þeir Arnór Ingi og Andri Már sem tryggðu
sér sæti í úrslitaleikinn í mótinu eftir undanúrslitin.
Arnór Ingi lagði Þórð Rafn á meðan Andri Már hafði
betur gegn Andra Þór eftir spennandi viðureign.
Margir töldu Andra Má sigurstranglegri fyrir úrslita-
leikinn í karlaflokki enda þekkir hann sinn heimavöll,
Strandarvöll, betur en flestir. Keppni þeirra var
geysilega spennandi og þegar þrjár holur voru eftir
átti Arnór Ingi tvær holur og var í vænlegri stöðu.
Andri sótti þá af krafti og náði að jafna metin með
að vinna tvær holur í röð og fyrir lokaholuna var
leikur þeirra jafn. Þeir fengu báðir par á 18. holunni
og því þurftu þeir að fara í bráðabana um Íslands-
meistaratitilinn. Fyrsta holan á Strandarvelli var leikin
aftur og tryggði Arnór sér sigurinn með að setja
niður gott pútt fyrir fugli eftir að hafa leikið holuna
einstaklega vel. Andri Már var ekki langt frá því að
setja niður um fimm metra pútt fyrir fugli en varð
að játa sig sigraðan þegar tveggja metra pútt Arnórs
fór í miðja holu fyrir sigri. Um leið tryggði Arnór Ingi
sér sinn fyrsta sigur á Eimskipsmótaröðinni. Andri
Þór Björnsson úr GR tryggði sér þriðja sætið í mótinu
eftir að hafa lagt Þórð Rafn Gissurarson úr GR að
velli, 1/0.
Andri Már hefur leikið vel í sumar. Hann var
nálægt því að vinna holutitilinn á heimavelli.
Arnór og Ólafía fögnuðu sigri.
Íslandsmótið
í holukeppni
46