Golf á Íslandi - 01.10.2011, Page 58

Golf á Íslandi - 01.10.2011, Page 58
Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram við frábærar aðstæður á Grafarholtsvelli snemma í ágúst. Skor kylfinga var sérlega glæsilegt og ljóst að Ísland á fjöldann allan af ungum og efnilegum kylfingum sem vafalaust eiga eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Birgir Björn Magnússon úr Keili, sem leikur í strákaflokki, stal senunni í mótinu en hann setti vallarmet á þriðja hring með að leika á 64 höggum eða sjö höggum undir pari vallarins. Hann setti í kjölfarið nýtt og glæsilegt vallarmet af rauðum teigum á Grafarholtsvelli. Gríðarleg eftirspurn var eftir þátttöku í mótinu og komust færri að en vildu. Í piltaflokki fór Bjarki Pétursson úr GB með sigur af hólmi. Hann lék hringina þrjá á samtals tveimur höggum undir pari og varð þremur höggum á undan Sigurði Ingva Þorvaldssyni úr GHD sem varð annar. Benedikt Sveinsson úr Keili varð þriðji á samtals þremur höggum yfir pari. Sigurganga Guðrúnar Brá Björgvinsdóttur úr Keili í stúlknaflokki heldur áfram eftir góðan sigur á Grafarholtsvelli. Guðrún Brá, sem hefur unnið öll mót sumarsins á mótaröðinni, lék hringina þrjá á samtals átta höggum yfir pari og varð sex höggum á undan Sunnu Víðisdóttur úr GR. Halla Björk Ragnarsdóttir úr GR varð í þriðja sæti. Í drengjaflokki fór Ragnar Már Garðarsson úr GKG með sigur af hólmi. Hann lék samtals á sex höggum yfir pari í mótinu og varð þremur höggum á undan Ísak Jasonarsyni úr Keili. Bráðabani á milli Árna Freys Hallgrímssonar úr GR og Birnis Snæs Ingasonar úr GKj um þriðja sætið fór alla leið á fimmtu holu þar sem Árni hafði betur. Guðrún Pétursdóttir úr GR er Íslands- meistari í telpnaflokki eftir spennandi keppni. Hún lék samtals á 238 höggum og varð tveimur höggum á undan Önnu Sólveigu Snorradóttur úr Keili sem varð önnur. Særós Eva Óskarsdóttir úr GKG varð þriðja. Í strákaflokki var Birgir Björn Magnússon úr Keili í al- Frábært skor á Íslands- mótinu í höggleik ARION banka mótaröðin gjörum sérflokki og lék frábært golf. Hann lék samtals á níu höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahring- inn á 64 höggum eða sjö höggum undir pari. Hann setti í kjölfarið nýtt vallarmet af rauðum teigum. Birgir varð 18 höggum á undan Gísla Sveinbergssyni úr Keili en þessir tveir kylfingar hafa verið í sérflokki í strákaflokki í sumar. Óðinn Þór Ríkharðsson úr GKG hafði betur gegn Kristófer Orra Þórðarsyni úr GKG um þriðja sætið en þeir urðu jafnir á samtals tólf höggum yfir pari. Í stelpuflokki vann Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR öruggan sigur. Hún lék samtals á 252 höggum í mótinu og varð tólf höggum á undan Karen Ósk Kristjánsdóttur úr GR sem varð önnur. Þriðja varð Þóra Kristín Ragnarsdóttir úr Keili sem hafði betur gegn Birtu Dís Jónsdóttur úr GHD eftir bráðabana um þriðja sætið. Helstu úrslit má sjá hér að neðan. Piltaflokkur, 17-18 ára: 1. Bjarki Pétursson GB  71-70-70=211 -2 2. Sigurður Ingvi Rögnvaldsson GHD  69-73-72=214 +1 3. Benedikt Sveinsson GK  69-72-75=216 +3 4. Emil Þór Ragnarsson GKG  72-72-74=218 +5 5. Dagur Ebenezersson GK  70-75-73=218 +5 Stúlknaflokkur, 17-18 ára: 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK  74-73-74=221 +8 2. Sunna Víðisdóttir GR  74-80-73=227 +14 3. Halla Björk Ragnarsdóttir GR  82-81-79=242 +29 4. Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK  80-84-85=249+36 5. Saga Ísafold Arnarsdóttir GK  85-86-84=255 +42 Drengjaflokkur, 15-16 ára: 1. Ragnar Már Garðarsson GKG  74-70-75=219 +6 2. Ísak Jasonarson GK  78-71-73=222 +9 3. Árni Freyr Hallgrímsson GR  74-77-74=225 +12 (e. bráðabana) 4. Birnir Snær Ingason GKj  75-72-78=225 +12 5. Bogi Ísak Bogason GR  75-79-75=229 +16 Guðrún Brá vann örugglega í stúlknaflokki. Guðrún Péturs- dóttir vann eftir jafna keppni. Ragnar Már sigraði í drengjaflokki. Telpnaflokkur, 15-16 ára: 1. Guðrún Pétursdóttir GR  83-76-79=238 +25 2. Anna Sólveig Snorradóttir GK  80-78-82=240 +27 3. Særós Eva Óskarsdóttir GKG  85-84-78=247 +34 4. Sara Margrét Hinriksdóttir GK  87-86-83=256 +43 5. Þórdís Rögnvaldsdóttir GHD  80-87-90=257 +44 Strákaflokkur, 14 ára og yngri: 1. Birgir Björn Magnússon GK  70-70-64=204 -9 2. Gísli Sveinbergsson GK  71-76-75=222 +9 3. Óðinn Þór Ríkharðsson GKG  78-72-75=225 +12 (e. bráðabana) 4. Kristófer Orri Þórðarson GKG  76-73-76=225 +12 5. Henning Darri Þórðarson GK  72-77-77=226 +13 Stelpuflokkur, 14 ára og yngri: 1. Ragnhildur Kristinsdóttir GR  85-87-80=252 +39 2. Karen Ósk Kristjánsdóttir GR  93-86-85=264 +51 3. Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK  90-88-87=265 +52 (e. bráðabana) 4. Birta Dís Jónsdóttir GHD  85-96-84=265 +52 5. Laufey Jóna Jónsdóttir GS  95-86-89=270 +57 58
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.