Golf á Íslandi - 01.10.2011, Síða 66

Golf á Íslandi - 01.10.2011, Síða 66
U N G I R og efnilegir Væri ekki slæmt að vera besti kylfingur heims Birgir Björn Magnússon úr Keili er einn af efnilegustu kylfingum landsins. Hann kemur úr sannkallaðri golffjölskyldu en hann er sonur Magnúsar Birgissonar golfkennara og barnabarn Birgis Björnssonar heitins, fyrr- verandi formanns Keilis. Birgir Björn lék mjög vel í sumar og stóð meðal annars uppi sem sigur- vegari á Íslandsmóti unglinga í höggleik, var þar í algjörum sérflokki og vann með 18 högga mun. Hann gerði sér lítið fyrir og setti vallarmet á Grafarholtsvelli af rauðum teigum þegar hann lék lokahringinn í Íslandsmóti unglinga á 64 höggum eða sjö höggum undir pari. Birgir er með 4,3 í forgjöf og verður spennandi að fylgjast með þessum 14 ára dreng í fram- tíðinni. Golf á Íslandi lagði fyrir hann nokkrar spurningar. Staðreyndir Nafn: Birgir Björn Magnússon Aldur: 14 Klúbbur: Keilir Forgjöf: 4,3 Uppáhalds matur: Humar Uppáhalds drykkur: Egils Appelsín Uppáhalds kylfa: 3-járnið Ég hlusta á: Tónlist Besta skor: 64 högg á Grafarholtinu Adam Scott eða Martin Kaymer? Martin Kaymer Evrópska mótaröðin eða PGA-mótaröðin? PGA Besta vefsíðan: Kylfingur.is og Facebook Besta blaðið: Golf á Íslandi Besta bókin: Á enga uppáhalds bók Besta bíómyndin: Þær eru margar Hvað óttastu mest í golfinu? Ég óttast mest, að óttast eitthvað golfpokINN: Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? Það er hægt að segja að ég hafi alist upp úti á golf- velli með mömmu, pabba og bróður mínum. Svo þegar ég var orðinn 9 ára ákváðum ég og bróðir minn að byrja að æfa golf. Hvað er það sem heillar þig við golf? Það sem heillar mig við golf er að það er svo gallalaust, maður veit aldrei hvað gerist næst. Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Að verða besti kylfingur í heimi væri ekki slæmt. Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undan- förnum árum? Haustið 2007 byrjaði ég að taka golfið alvarlega og hef verið að bæta mig jafnt og þétt síðan þá. Ertu sáttur við frammistöðu þína á unglingamótaröðinni í sumar? Ég er nokkuð sáttur með frammistöðu mína í sumar fyrir utan fyrsta mótið á Hellu og þriðja á Leirdalsvelli. Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? Fyrsti örninn minn kom þegar ég var 10 ára í meistaramótinu á Oddi þegar ég var að spila 17. braut. Ég var búinn að slá gott teighögg en átti slæmt innáhögg sem rétt náði yfir trén og allir í hollinu fóru að leita að boltanum mínum í trjánum. Ég ofan í holuna og þá var hann þar. Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfinu? Helsti styrkleikinn minn er teighögg, löng inn- áhögg og spil í vondu veðri en ég á það til að pútta mjög illa sem er líklega minn helst veikleiki. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? Þegar ég skrifaði undir vitlaust skor í fyrsta stigamóti sumarsins á Hellu og þurfti að hringja inn og kæra sjálfan mig úr mótinu. Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Miguel Angel Jimenez því hann er svo mikill töff- ari. Einnig Dustin Johnson því hann er með svo skemmtilegt hugarfar og gaman að fylgjast með honum. Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Ég er í Hvaleyrarskóla og tel mig vera nokkuð góðan námsmann. Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Á sumrin er ég 7 daga í viku á golfvellinum frá því að ég vakna þangað til ég fer að sofa en það er ekki allt 100% æfingar. Á veturna fer ég fjórum sinnum í viku kannski tvo klukkutíma í senn. Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Arcos Garden, Montecastillo og El Saler eru fal- legustu og bestu vellir sem ég hef spilað og get ekki gert upp á milli þeirra. Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku upp- áhaldi hjá þér? 17. hola á Urriðavelli, 11. hola á Hvaleyrarvelli, 15. á Grafarholtsvelli. Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtöldum? Miguel Angel Jiminez, Dustin Johnson og Tiger Woods. Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Körfubolti og aðrar íþróttir. Ef þú værir ekki í golfi, hvað værir þú að gera? Ég væri að reyna að vera atvinnumaður í körfubolta eða einhverri annarri íþrótt. Dræver: Titleist 909 D3 9,5°Brautartré: Wilson Staff fybrid 15°Járn: 3-PW Wilson Staff fg59 tour bladeFleygjárn: Ben Hogan Apex tourPútter: Ping Zing en er að skipta í See-more sb2w mallet Hanski: Allskonar Skór: Adidas Adipure og Ecco Street 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Golf á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.