Golf á Íslandi - 01.10.2011, Page 68

Golf á Íslandi - 01.10.2011, Page 68
U N G I R og efnilegir golfpokINN:Dræver: Mizuno JPX 800 regular skaft, 10,5° Brautartré: Callaway Diablo Octane 3-tré og 5-tré Járn: Callaway x22 Fleygjárn: 52° Titleist Vokey, 56° Mizuno MPTseries, 60° Titleist VokeyPútter: Odyssey Rossie DivineHanski: Nota ekki hanska Skór: FootJoy Bolti: Pro V1 Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? Pabbi minn var mikið í golfi og fannst það mjög gaman þannig að ég prófaði það og fannst það líka mjög skemmtilegt. Hvað er það sem heillar þig við golf? Það er mjög góður félagsskapur í golfinu og leikurinn sjálfur er svo skemmtilegur af því að þótt þú klúðrir kannski einu höggi þá geturðu alltaf bjargað þér. Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Það væri mjög gaman að komast í háskóla í Bandaríkj- unum. Svo bara að bæta mig og ná sem lengst. Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undan- förnum árum? Já, ég myndi segja það. Ég er búin að bæta sveifluna mikið og stutta spilið er orðið mun stöðugra en það var. Ertu sátt við frammistöðu þína á unglingamótaröðinni í sumar? Já, ég var mjög ánægð með suma hringi en svo komu líka alveg nokkrir lélegir hringir inn á milli. Yfir heildina litið þá var þetta bara fínt. Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfinu og hvers vegna? Minn helsti styrkleiki eru vippin og svo slæ ég oftast vel með trékylfunum mínum. Mínir helstu veikleikar Selsvöllur í uppáhaldi Staðreyndir Nafn: Særós Eva Óskarsdóttir Aldur: 16 ára Klúbbur: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Forgjöf: 7,5 Uppáhalds matur: Tacos, hreindýrakjöt og rjúpur Uppáhalds drykkur: Vatn Uppáhalds kylfa: 52° fleygjárn Ég hlusta á: Flest allt bara Besta skor: 78 högg í Grafarholti Adam Scott eða Martin Kaymer? Adam Scott Evrópska mótaröðin eða PGA-mótaröðin? PGA-mótaröðin Besta vefsíðan: Facebook Besta blaðið: Mörg Besta bókin: Allar Harry Potter bækurnar Besta bíómyndin: Never Back Down er mjög góð. Hvað óttastu mest í golfinu? Held það sé nú ekkert sérstakt Særós Eva Óskarsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er ung og efnileg í golfíþróttinni. Hún varð í þriðja sæti í bæði Íslandsmótinu í höggleik og holukeppni í sumar og lauk að lokum leik í þriðja sæti á stigalista Arion banka mótaröð unglinga í telpnaflokki. Hún stundar nám við Verzlunarskóla Íslands og býr í Kópavogi ásamt fjölskyldu sinni. Særós er með 7,5 í forgjöf og stefnir að því að því að komast í há- skólagolfið í Bandaríkjunum í framtíðinni og bæta sig í golfíþróttinni. eru innáhöggin og líklegast vegna þess að ég æfi þau ekki nógu mikið. Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? Það var þegar ég og stelpurnar í GKG sveitinni vorum að taka æfingahring fyrir sveitakeppnina í fyrra í Leir- unni. Einn strákur sló golfboltanum beint í hausinn á vinkonu minni og hún hrundi bara niður, það var svakalegt. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? Í sveitakeppni kvenna í Keili núna í sumar þá vorum við í GKG að spila á móti GKj. Ég var á 13. holu og var í glompu við grínið og ég sló í bakkann og boltinn fór beint upp í loft og lenti á hausnum á mér. Það var frekar vandræðalegt. Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Rory McIlroy og Tiger Woods. Þeir eru báðir mjög góðir kylfingar og mér finnst mjög gaman að horfa á þá spila. Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Ég er í Verzlunarskóla Íslands og það gengur bara vel. Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Yfir sumartímann æfi ég svona 3-6 tíma á dag, það er alveg misjafnt. Á veturna eru það þrír klukkutímar á viku. Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Selsvöllur á Flúðum, vegna þess að hann er mjög fjöl- breyttur og það er gaman að spila hann. Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku upp- áhaldi hjá þér? 17. holan í Vestmannaeyjum, 16. holan í Leirdalnum og 15. holan í Grafarholti. Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtaldri? Rory McIlroy, Tiger Woods, Matteo Manessero og ég. Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Skíði og vera með vinum. Ef þú værir ekki í golfi, hvað værir þú að gera? Ég var að hætta að æfa skíði núna í vor þannig að ég væri líklegast ennþá í því. 68
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.