Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Page 9

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Page 9
Avarp menn tam álaráðh erra Skáksamband íslands varstofnað árið 1925 oger því 60 ára á þessu ári. Það hefur leyst af hendi merkilegt menningarstarf áferli sínum, enda hefur skákíþróttin vaxið og dafnað vel á þessum tíma. Er t.d. athyglisvert hve ungir menn hafa staðið sig vel um langt skeið og er þar skýrasta dæmið velgengni Friðriks Ólafssonar á 6. og 7. áratugnum. Á þessu afmælismóti teflir harðsnúið lið ungra og vaskra manna. Ánægjulegur er hinn mikli og almenni áhugi landsmanna á skáklistinni. Mér er sérstök ánægja að bjóða velkomna áþetta mót erlenda keppendur, og þá ekki síst, þar sem meðal þeirra eru heimsfrægir skákmenn, sem hingað hafa komið áður og vakið verðskuldaða athygli fyrirharða, en jafnframt drengilega keppni, og nefni ég þar Boris Spassky, fyrrverandi heims- meistara, Bent Larsen og Vlastimil Hort. Um leið og ég flyt Skáksambandi Islands árn- aðaróskir á þessum tímamótum lœt ég í Ijós þá ósk að afmœlismót þetta fari vel fram og verði öllum, sem hlut eiga að máli, til ánægju og sóma. Ragnhildur Helgadóttir Tax^V\R E'V FILL Maxi Ó85522 er /angstærsta bifreiðastöð borg arinnar með fiesta 7 farþega bíia. F/jót og góð afgreiðsla, stæði um aiian bæ.

x

Afmælismót Skáksambands Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afmælismót Skáksambands Íslands
https://timarit.is/publication/2052

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.