Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Qupperneq 38
í næsta tölublaði tímaritsins Skák eftir heimsókn
þeirra félaga hreyfir lesandi (undir dulnefninu Hrókur)
þeirri hugmynd að halda alþjóðleg skákmót á íslandi.
Benti hann á legu landsins hugmyndinni til stuðnings:
Þar mætast austur og vesturshvel jarðar, og flugtæknin
hafði gert það að verkum að vart muni ákjósanlegra land
fyrir slíka keppni heldur en ísland.
Um þetta leyti lá flugleiðin milli Evrópu og Ameríku
að jafnaði um ísland, með viðkomu í Keflavík. Þetta
færðu íslendingar sér nýt haustið 1948, þegar dr. Euwe
ætlaði að fara frá Hollandi til Bandaríkjanna til að tefla
þar á skákmóti. Hann var fenginn til þess að koma hér
við á vesturleið og dvelja hér í hálfan mánuð.
1948: Machgielis (Max) Euwe (1901—1982)
Euwe þarf naumast að kynna: mesti skákmaður sem
hollendingar hafa eignast, feiknalega afkastamikill og
snjall rithöfundur um skák, forseti Alþjóðaskáksam-
bandsins.
Euwe kom hingað snemma í desember. Sjálfsagt þótti
að halda skákmót þar sem hann tæki þátt, en ekki var
tími til að hafa fleiri en sex þátttakendur. Var því 5 efstu
mönnum í landsliði boðið til keppninnar. Þetta mót fór
fram í samkomusalnum í Tívolí, í Vatnsmýrinni, húsa-
kynnum sem nú eru löngu horfin. Úrslit urðu þessi:
1. Euwe 3Vi\ 2.—3. Ásmundur Ásgeirsson og Guð-
mundur Pálmason 3; 4. Guðmundur Ágústsson 2Vi\ 5.
Árni Snævarr 2 og 6. Baldur Möller 1.
Ekki verður sagt að Euwe sýndi klærnar á þessu móti,
hann vann 2 skákir en gerði 3 jafntefli. Hann var hætt
kominn gegn Guðmundur Ágústssyni og Árni Snævarr
gat unnið af honum mann snemma í tafli, en kom ekki
auga á það frekar en Euwe og tapaði skákinni síðar.
Euwe tefldi mörg fjöltefli, þar á meðal klukkutafl við
tíu úrvalsmenn úr landsliði og meistaraflokki
(+4-1 =5).
Sá sem þessar línur ritar átti viðtal við Euwe í skák-
þætti í útvarpinu. Hann kvaðst hafa vænt sér mikils af
þessari för og ekki orðið fyrir vcnbrigðum, skákáhugi
væri hér óvenjulega mikill og skákstyrkur manna
almennt eftir því. Eg vissi að Euwe hafði þekkt vel þrjá
nafnkunnustu skákmeistara aldarinnar, Aljekín, Capa-
blanca og Lasker, og meira að setja teflt einvígi við tvo
þeirra, og spurði hann því, hver honum virtist mestu
skákmeistari þeirra er hann hefði kynnst á ferli sínum.
Svarið kom hiklaust, og mér á óvænt: Emanúel Lasker.
Annað atvik frá heimsókn Euwes er mér minnisstætt.
Hann tefldi fjöltefli við 30 manns í Háskólanum. Meðal
andstæðinga hans þar var gamalreyndur meistari sem
búinn var að draga sig í hlé: Jón Guðmundsson. Jón
tefldi af fornum þrótti og vann. Á leiðinni heim á Hótel
Borg úr Háskólanum spurði Euwe okkur Árna Snævarr
um þennan mann. Einhvern veginn fengum við grum um
að Euwe hefði kannast við Jón, ef til vill munað eftir
honum frá einhverju ólympíumóti. Við komust í hálf-
gerð vandræði, því að við kunnum ekki við að segja
Euwe að jafn öflugur skákmaður hefði teflt gegn honum
í venjulegu fjöltefli, og hliðruðum okkur því hjá að svara
spurningum hans beint.
Það var mikill fengur fyrir íslenska skákmenn að
kynnast dr. Euwe, ljúfmennsku hans, fjölhæfni og yfir-
sýn yfir ólíkustu þætti skákarinnr. Því miður gat hann
ekki staðið hér við nema hálfan mánuð, og er reynar með
ólíkindum hverju hann kom í verk á þeiya tíma.
En með þessari heimsókn Euwes er öldin hálfnuð og
verður hér því numið staðar að þessu sinni.
Biðjið um
áætlun.
RIKISSKIP
Sími: 28822
Brottfarardagar frá
Reykjavík:
VESTFIRÐIR:
Alla þriöjudaga og annan
hvern laugardag.
NORÐURLAND:
Alla þriöjudaga og annan
hvern laugardag.
NORÐ- AUSTURLAND:
Vikulega fimmtudaga eöa
laugardaga.
AUSTURLAND OG
VESTMANNAEYJAR:
alla fimmtudaga.
Þjónusta við
landsbyggðina!
38