Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Blaðsíða 64
ísland—Ungverjaland.
Tékkóslóvakía—Island.
stórmeistari Breta, hinn þekkti Nigel Short, en við hlið
hans stendur stórmeistarinn Kavalek, sem er tékkneskur
að uppruna, en er bandarískur ríkisborgari og tefldi með
„flóttamannaliði" U.S.A. eins og gárungarnir kölluðu
það, en kjarni bronsliðsins bandaríska voru fyrrum
austantjaldsmenn — Dzindzichashvili, Alburt og
Kvalek.
Það var á margra vitorði að samkomulag í liði Ung-
verja var ekki sem best, sérstaklega mun Adorian ekki
ofurvinsæll meðal félaga sinna. Þeir sáust sjaldan saman
allir og því er skiljanleg athugasemd aumingja Adorinas,
er íslensku strákarnir komu saman í hóp hlæjandi og
stappandi stálinu hver í annan, — hann stundi upp: „Oh,
what a team!“
Á myndinni til vinstri sést íslenska liðið uppi á sviði
að tafli við Tékka. Fremst á Helgi í höggi við vin okkar
Hort. Helgi vann sem kunnugt er þá skák glæsilega og
vafalaust hyggur Hort á hefndir í þessu afmælismóti S.í.
Margeir tefldi við Smejkal, sem einnig hefur teflt á Is-
landi, en Jóhann berst við Ftacnik — sem einhverrra
hluta vegna hefur fengið gælunafnið Fantasitc —, en
bæði Margeir og Jóhann gerðu jafntefli.
Fjærst er Karl Þorsteins að tefla við Mokry og varð
Karl að láta í minni pokann í þeirri skák.
Maður þessa 26. Ólympíumóts var án efa Sovétmað-
urinn Beljavsky, sem sést iynr miðju á næstu mynd.
Hann tefldi á 1. borði í sovéksu sigursveitinni og lagði
þar hvern stórmeistarann eftir annan, að ekki sé talað um
minni spámennina. Það var aðeins fyrrum landi hans
Dzindzichashvili, sem var á 1. borði hjá bandarísku
64