Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Blaðsíða 27

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Blaðsíða 27
Baldur Pálmason Byrjunin: Staður og stund Á Blönduósi 23. júní 1925 Vordagurinn getur verið fagur við Húnaflóa, og þannig var hann laugardaginn 23. júní 1925. Mikið sólfar og sunnanstæður þeyr lék um sveitir og þorp í 15—18 stiga hita. Sem Blönduósingur verð ég að biðja forláts á því, að ekki kem ég fyrir mig, hvað ég var að bjástra þennan til- greinda dag. Það hef ég mér til afsökunar, að ég var þá á miðju sjötta aldursári einungis. Ekki er ósennilegt að ég hafi verið á stjái niðri i pláss- inu eins og oft og einatt, enda þótt ég ætti heima uppi með brekkunni. Trúlega hef ég þá orðið var mannaferða kringum læknishúsið, ekki manna úr næstu sveitum í læknisvitjun, því að þá hefði ég e.t.v. kannast við, heldur ókunnugra manna með öllu, komna langt að með marga hesta til reiðar. Ég þekkti lækninn þónokkuð vel, hann Kristján Arinbjarnar, sem búinn var að eiga heima á Ósnum í 2—3 ár sem héraðslæknir Austur-Húnvetninga. Hann hafði látið mig fá lyf, þegar ég var eitthvað lasinn, og komið oftar en einu sinni heim í torfbæinn til okkar mömmu, til þess að skoða mig. Því að nokkuð var ég kvellisjúkur á þeim árum. Og ég bar mikla virðingu fyrir lækninum, vegna þess að hann var bæði góðmenni og góður læknir. (Og ég get bætt því við innan sviga, að ég ber ætíð greinileg merki um handaverk hans, frá því er hann skar burt úr mér botnlangatotuna fjórum árum seinna heldur en vorið, sem hér er til umræðu). Kristján læknir var fyrirmannlegur að ytra útliti, hár og grann- vaxinn, ljós að yfirbragði og frjálsmannlegur í fram- göngu. Guðrún læknisfrú var einnig mjög glæsileg kona og góð. Voru þau hjón í miklum metum meðal Húnvetn- inga. Ekki áttu þau þó ættartengsl þar um sveitir, því að Kristján óx upp í Reykjavik, sonur Arinbjarnar Svein- bjarnarsonar bókbindara og bókaútgefanda, en frú Guðrún var dóttir Ottós Tuliniusar kaupmanns og út- gerðarmanns á Akureyri. Þess er vert að geta hér um Ottó Tulinius, að hann var meðal stofnenda Skákfélags Akureyrar árið 1919, og hefur Guðrún sagt frá því á prenti, að faðir sinn hafi löngum setið að tafli með kunn- ingja sínum á sunnudögum að vetrarlagi, þegar hún var að alast upp. En það voru þessir aðkomumenn, þessir gestir læknis- hjónanna á Blönduósi júnídaginn góða. Hverjir voru þeir, og hvaða erindi áttu þeir? Þetta voru Eyfirðingar og Skagfirðingar, 8 að tölu, fulltrúar þriggja taflfélaga þar um slóðir. Fimm taflfélög, öll norðanlands, höfðu lýst sig samþykk drögum að sambandslögum, sem Skákfélag Akureyrar hafði haft frumkvæði um að semja árið áður (1924) og dreifa meðal skákfélaga fyrir norðan og sunn- an. Elzta og stærsta taflfélag landsins, Taflfélag Reykja- Greinarhöfundur, Baldur Pálmason, var gjaldkeri Skáksambands íslands 1958—66. víkur, hafði ekki fallizt á drögin, vildi t.d. ekki una því að skákþing íslands, sem haldið hafði verið á snærum þess síðan 1913, yrði framvegis haldið jöfnum höndum utan Reykjavíkur og innan. Forvígismennirnir á Akur- eyri héldu þó striki sínu, komu upp bráðabirgðastjórn fyrir sambandið með Ara Guðmundsson bankamann fyrir formann eða forseta og ákváðu að koma upp mál- gagni. Var Þorsteinn Thorlacius bókhaldari á Akureyri fenginn til að ritstýra því, og kom fyrsta hefti þess út í maí 1925, mánuði fyrir Blönduósfundinn, undir nafninu íslenskt skákblað. Þar lætur einn aðalhvatamaður skák- sambandsmálsins, Sigurður Einarsson Hlíðar dýra- læknir, í ljós þá skoðun að tilfinnanlega hafi vantað und- irstöðu eðlilegrar framþróunar skáklistarinnar hérlend- is, og með sambandsstofnuninni fáist sá tengiliður milli skákmanna á landi hér, sem verði mestur aflgjafi. Ekki er ósennilegt að fyrsti aðalfundur — og eiginleg- ur stofnfundur — Skáksambands íslands hafi verið ákveðinn á Blönduósi, til þess að auðvelda skákmönnum að sunnan að sækja hann, ef þeir hyrfu að því ráði að gerast stofnaðilar. Svo fór þó ekki. Félögin, sem fulltrúa áttu á stofnfundinum voru: Skákfélag Akureyrar, Skák- félag Hörgdæla, Taflfélag Sauðárkróks og Skákfélag Blönduóss. Þegar að fundinum kom, munu tvö önnur félög hafa lýst samþykki sínu við sambandslagadrögin og því talizt meðal stofnfélaga: Skákfélag Siglufjarðar og Skákfélag Hvammstanga — en þau sendu ekki full- trúa á fundinn. Einn Akureyringanna, sem lagði leið sína ríðandi vest- ur yfir Öxnadalsheiði og Vatnsskarð i fylgd félaga sitma 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Afmælismót Skáksambands Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælismót Skáksambands Íslands
https://timarit.is/publication/2052

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.