Afmælismót Skáksambands Íslands

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Qupperneq 28

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Qupperneq 28
Læknishúsið gamla á Blönduósi, þar sem stofnfundur Skáksambands íslands var haidinn. Það var reist 1901. Fjær er lægri viöbygging, sem var sjúkraskýli, byggt 1923 í tíð Krístjáns Arinbjarnar. í skákfélaginu, var Jón Sigurðsson, 27 ára gamall starfs- maður klæðaverksmiðjunnar Gefjunar, hafði þar titil- inn litunarmeistari. Jón er annar tveggja sem enn er á lífi af þeim er þarna voru á ferð fyrir nær 60 árum. Jón fékk það embæti á stofnfundinum að skrá fundargerðina, þótt ekki færi hann með fullt umboð félags síns með at- kvæðisrétti. Jón var í tölu beztu skákmanna á Akureyri á þessum árum og hinum næstu og auk þess áhugasamur í félagsmálum. Hann var kjörinn varaforseti sambands- ins á aðalfundinum 1926, sem haldinn var á Akureyri. Fyrir 20 árum, á 40 ára afmæli Skáksambands íslands, var Jón gerður að heiðursfélaga ásamt fyrsta forseta sambandsins, Ara Guðmundssyni, sem var þá enn á lífi. Jón Sigurðsson, aldursforsetinn meðal núlifandi heið- ursfélaga sambandsins, er orðinn 87 ára gamall og hefur átt heima suðvestanlands nær 40 ár. Hann vann hjá Kaupfélagi Borgfirðinga í 7 ár, síðan var hann lengi starfsmaður verksmiðju J.B. Péturssonar í Reykjavík og fékkst einnig við húsvörzlu og innheimtustörf. Heilsa hans hefur nokkuð látið undan síga, og dvelur hann nú í íbúðastofnun aldraðra við Dalbraut. Ég gekk til hans á dögunum og spurði, hvort hann minntist ekki ennþá Blönduósferðarinnar vorið 1925. Jú, víst hafði hún ekki liðið honum úr minni, ekki í hinum stærri dráttum. Hann sagði að Sigurður Hlíðar hefði haft forgöngu um ferðina vestur til Blönduóss. Hann hefði látið boð út ganga meðal skákfélagsmanna á Akureyri og beðið þá að gefa sig fram, sem hefðu áhuga á að taka hesta á leigu og riða vestur héruð um Jónsmessuleytið, á mörkum vors og sumars. Nokkrir gáfu sig fram, og varð hópurinn 5 manns. Þeir voru: Sig- urður E. Hlíðar dýralæknir, Ari Guðmundsson banka- maður (forseti bráðabirgðastjórnar), Hannes Arnórsson ljósmyndari, Ingvar Guðjónsson útgerðarmaður og Jón Sigurðsson. Tveir þessara manna voru Húnvetningar að uppruna, Hannes frá Bjarnastöðum í Vatnsdal og Ingvar 28 frá Neðra-Vatnshorni í Línakradal. Báðir voru þeir út- nefndir til fullgildra fundarmanna á stofnfundinum ásamt Sigurði, því að þrír menn skyldu þar hafa atkvæð- isrétt af hálfu Akureyringa. Þeir ferðafélagarnir lögðu af stað árla dags 22. júní og riðu sem leið lá upp Öxnadalinn. Þar bættist sjötti mað- ur í hópinn, Skafti Guðmundsson búfræðingur frá Gerði, sem var fulltrúi Skákfélags Hörgdæla (bróðir Ara Guðmundssonar, nú 90 ára). Áfram var haldið yfir Öxnadalsheiði og langleiðina yfir um Skagafjörð, áður en þeir tóku gistingu á Víðimýri. Fengu þar bezta beina. Voru þá 45 km ófarnir til Blönduóss og var þangað komið upp úr hádegi daginn eftir. Þann sama dag var stofnfundurinn haldinn á heimili læknishjónanna, Kristjáns og Guðrúnar Arinbjarnar. Kristján læknir var fulltrúi skákfélags staðarins, og svo voru þarna komnir tveir mætir Skagfirðingar: Sigurður Á. Björnsson hrepp- stjóri á Veðramóti og Gísli Magnússon á Frostastöðum, og var Sigurður aðalfulltrúi Taflfélags Sauðárkróks. Hér á við að skjóta inn örstuttri greinargerð um fund- arstörfin, samkv. skýrslu Sigurðar Hlíðar í 2. tbl. ísl. skákblaðs. Ari Guðmundsson stýrði fundinum og Joni Sigurðssyni var falin fundarritun. Miklar umræður urðu um sambandslagafrumvarpið, sem var þarna til lokaaf- greiðslu. Þótt ekki væri að öllu leyti gengið til móts við þær óskir, sem talið var að Taflfélag Reykjavíkur hefði um lagasetningu, var þess vænst að þetta aðalfélag ís- lenzkra skákmanna gæti senn gengið í skáksambandið á grundvelli hins sanna félagslyndis, en svo væri ráð fyrir gert að í sambandinu skipaði jafnréttishugsjónin æðsta sæti. — Sett voru þau skilyrði fyrir upptöku í sambandið að félög hefðu ekki lög eða reglur, sem færu í bága við sambandslög, að félagsmenn þeirra væru a.m.k. 10 tals- ins og greitt yrði 1 kr. inntökugjald fyrir hvern þeirra, en þó hæst 50 kr. Árgjald skyldi einnig verða 1 kr. fyrir fé- lagsmann. Á aðalfundi sem halda skyldi í tengslum við skákþing íslands, skyldi hvert sambandsfélag eiga 1 full- trúa fyrir hverja 20 félaga eða brot úr þeirri tölu, sem stærra væri en helmingur. Stjórnina skyldu skipa 3 menn: Forseti, ritari og gjaldkeri og þrír til vara. Stjórn- arkosning fór þannig: Ari Guðmundsson var kosinn forseti, Kristján Arinbjarnar ritari og Jóhann Havsteen á Akureyri gjaldkeri. Frásögn sinni í ísl. skákblaði lýkur Sigurður Hlíðar með þessum orðum: Fundurinn fór vel fram, og naut hlýleika og gestrisni læknishjónanna við. Jón Sigurðsson sagði mér að þeir aðkomumenn hefðu fengið gistingu í kvennaskólahúsinu á Blönduósi. Og um hádegið næsta dag, sem var sunnudagur og Jónsmessa, sátu þeir matarveizlu hjá læknishjónunum, svo að ekki gerðu þau endasleppt við skákfulltrúana úr austurvegi. Að loknum málsverði og drukkinni hestaskál stigu Eyfirðingar og Skagfirðingar á bak reiðskjótum sínum og héldu nú austur um Norðurárdal á Skaga og Koluga- fjall til Sauðárkróks. Var þá orðið kvöldsett og gisting tekin á hótel Tindastóli (að því er Jón minnir). Næsta dag riðlaðist hópurinn. Sumir fóru fram Skagafjörð og aftur til baka yfir Öxnadalsheiði, en Jón og Ari héldu austur í Hjaltadal og gistu næstu nótt á Reykjum. Þaðan riðu þeir svo daginn eftir fjallveginn milli Hjaltadals og Hörgárdals í Eyjafirði. Hann liggur meðfram aðaljökl-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Afmælismót Skáksambands Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælismót Skáksambands Íslands
https://timarit.is/publication/2052

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.