Afmælismót Skáksambands Íslands

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Qupperneq 32

Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Qupperneq 32
Þetta þing var haldið í Osló, en árið eftir er aftur haldið þing Norðurlanda í Gautaborg og þar keppir Eggert að nýju. Oslóarförin varð til þess að haustið 1928 kemur hingað í heimsókn Karl Berndtsson sem þá var skák- meistari Norðurlanda. Karl Berndtsson var búsettur í Gautaborg og var talsverður áhrifamaður í skákinni. Hann gaf út um langt skeið tímaritið Schackvárlden, - sem var ágætt rit á sínum tíma, kom út mánaðarlega og flutti skákfréttir víða að. Það er til á Landsbókasafni. Berndtsson var Iíka kunnur skákmaður og hafði meðal annars tekið þátt í alþjóðamótinu í Keczemet í Ungverja- landi árið 1927, en þá var heldur sjaldgæft að skákmeist- urum á Norðurlöndum væri boðið á slík mót. Þessi heimsókn Karls Berndtssonar var mikill við- burður enda, enda fyrsta reglulega skákheimsóknin sem íslendingar fá. Hann tefldi fyrst fjöltefli við alla bestu skákmenn reykvíkinga, og tóku bæði þáverandi og fyrr- verandi íslandsmeistari þátt í fjölteflinu. Sýningin stóð í 8 stundir og vann Berndtsson 35 skákir, tapaði 11 en gerði 3 jafntefli. Næst á dagskránni var skákmót með forgjöf. Þar voru þátttakendur 39 og stóð mótið í 5 daga. Ekki veit eg nákvæmlega hvernig forgjöfinni var háttað, en svo virð- ist sem keppandi hafi teflt við því fleiri menn samtímis sem hann var öflugri, en þeir veikari, og sá sem forgjöf- ina gaf þurfti að vinna allar skákirnar ti' bess að fá heilan vinning. Meðal annars segist Berndtssc-a hafa teflt við þáverandi og fyrrverandi ídandsmeistara samtímis með tímatakmörkum — og hafði svart í báðum skákunum. Úrslit á mótinu urðu þessi: 1.—2. Ingvar Jóhannsson (2. fl.) og Karl Berndtsson 4l3/i6 vinninga hvor: 3. Ásmundur Ásgeirsson 4 vinn- inga. (Ingvar Jóhannsson fékk vinninga sina úr sex skák- um: 5 unnar og eitt jafntefli. Karl Berndtsson hlaut sína úr 38 skákum: 36 unnar, eitt tap og eitt jafntefli). Síðan var teflt fimm manna mót þar sem tveir fyrsta flokks menn tefldu með. Meistaraflokksmennirnir tefldu samtímaskák við fyrsta flokks mennina, sem voru spyrðaðir saman, en tefldu ekki hvor við annan. Úrslit urðu þessi: 1. Karl Berndtsson 2 Vi vinning, 2. Jón Guðmundsson (1. fl.) 2, 3. Brynjólfur Stefái son (meistarafl.) l'A, 4. Garðar Þorsteinsson (1. ' . 1 og Eggert Gilfer (meistarafl.) /i. í síðasta fjölteflinu voru 30 þátttakendur, afar öflugt lið segir Berndtsson. Það stóð í 3/2 stund og vann Berndtsson 15 skákir, tapaði 9 og gerði 6 jafntefli. Þeir sem unnu Berndtsson í þessu fjöltefli fengu að tefla til verðlauna á hraðskákmóti á eftir. Þar sigraði Árni Knud- sen, en Einar Þorvaldsson skákkóngur Islands varð annar. í þessari frásögn hefur verið stuðst við grein sem Berndtsson ritaði í tímarit sitt um íslandsförina. Hann ber íslendingum vel söguna og ákaflega hrifinn af hinum mikla skákáhuga, sem hefur greinilega komið honum á óvænt, þrátt fyrir það sem hann kann að hafa frétt áður. Berndtsson varð boðið í ferðalag austur fyrir fjall. Þar er honum einna minnisstæðust Grýla: „en underjordisk springkálla, ett naturfenomen af underbaraste slag“ — og lýsir gosum hennar. Þetta var í nóvembermánuði og 32 þeir ferðafélagarnir lentu í ýmsum hrakningum. Bíllinn bilaði og þeir urðu að ganga langa leið. Síðar lentu þeir í mikilli snjókomu og ófærð en komust að lok- um til Selfoss. Þar voru til töfl á gistihúsinu svo að þeir gátu stytt sér stundir meðan þeir biðu þess að veðrið batnaði. Frá Selfossi var svo haldið niður á Eyrarbakka og þar hittir Berndtsson héraðslækninn sem er mikill áhugamaður um skák. Læknirinn átti bók Nimzowitsch „Mein System“, hafði verið að lesa hana undanfarið, og fundið á henni ýmsa galla. „jo men, sá kan det tillgá i all tysthet, borta i ensliga trakter", skrifar Berndtsson. Berndtsson var kvaddur með miklum virktum þegar hann fór héðan eftir nærri mánaðardvöl. Honum var haldið samsæti í „Margeretadottirs Pensionat“, eins og Berndtsson kallar það, en það var í Kirkjuhvoli, og þar hélt Skáksambandið stundum veislur í Iok íslandsþinga. Þetta var hátíðlegt samkvæmi að því er Berndtsson segir, fánar á borðum og margar ræður fluttar. Honum var færður vindlakassi úr silfri með áletrun: „Heiðursgjöf til Karls Berndtsson með þökk fyrir komuna 1928. Skák- samband Íslandsí* Eins og áður er sagt var heimsókn Karls Berndtssonar merkisviðburður í íslensku skáklífi. Grein hans í Schack- várlden var góð kynning á íslensku skáklífi, skrifuð af mikilli vinsemd og þakklæti fyrir góðar viðtökur. Eitt er það sem mönnum hættir til að gleyma í sam- bandi við fyrri heimsóknir erlendra skákmanna til Is- lands: íslandsferð var miklu meira og tímafrekara fyrir- tæki þá en nú. Þá var ekki um annað að ræða en skips- ferð til íslands, ferð sem tók hátt í viku hvora leið. I því ljósi verður næsta heimsókn enn ótrúlegri en ella. Þá gerði sjálfur heimsmeistarinn í skák sér ferð hingað til lands. 1931: Alexander Áljekín (1892—1946) Aljekín stóð á hátindi frægðar sinnar þegar hann kom hingað til lands. Hann bar höfuð og herðar yfir alla keppinauta sína, nema ef til vill Capablanca sem hann hafði sigrað fjórum árum áður, öllum á óvænt, í ein- hverju harðasta og lengsta einvígi skáksögunnar. Árið 1930 hafði hann unnið ótrúlegan yfirburðasigur á skák- mótinu í Remo og frá íslandi fór hann beint til Júgó- slavíu, þar sem hann vann annan mesta sigur ævi sinnar á skákþinginu í Bled (Bad Veldes). Hann var ekki aðeins heimsmeistari í skák, heldur hafði hann sett glæsilegt met í blindskák þegar hann tefldi við 28 sterka skákmenn samtímis í París 1928 ( + 23, -3, =3, IU/2 klukkustund). En hvers vegna kom þessi frægðarmaður hingað til ís- lands? Það kann eg ekki að skýra og veit heldur ekki hver eða hverjir beittu sér fyrir heimsókninni. En um heimsóknina skrifar Pétur Zóphóníasson (Mbl. 2. ágúst 1931): „Hann kemur hingað að nokkru vegna þess skákorðs sem af oss hefur farið, en líka vegna þess hve vel boðs- gestir af Alþingishátíðinni létu af komu sinni hingað, höfðu dáð svo land og lýð í viðtali við hann að hann lang- aði til að koma hingað“. Bæjarstjórn Reykjavíkur studdi að komu Aljekíns með myndarlegu fjárframlagi. Svo mikill styrkleikamunur var á Aljekín og íslenskum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Afmælismót Skáksambands Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælismót Skáksambands Íslands
https://timarit.is/publication/2052

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.