Freyja - 01.06.1901, Qupperneq 39
FREYJA
11!)
um mánuði, í stað þess að senda
liana út síðustu dagana, eins og und-
auförnu hefur of oft átt sér stað. Til
þess að koma svona lagaðri reglu á
útsendinguna höfum vér haft þetta
númer tvöfalt, sem sé fyrir bæði
júní og júlí.
Vér viljum biðja þá sem kunna
að verða fyrir vanskilum með Frey-
ju, að gjöra ráðsmanni blaðsins að-
vart um það svo fijótt sem mögulegt
er.
WINNIPEG SÝNINGIN.
Sýningarnefndin í Winnipeg hef-
ur beðið oss að taka eftirfylgjandi
yfirlýsing upp í blað vort.
FLUTNINJS GJA.LD Á SÝNING-
ARMUNUM TIL WINNIPEG.
Á fundi sem Winnipeg iðnaðar-
sýningarnefndin hélt fyrir skömmu
síðan, kom liún sér saman um
að taka gild meðmæli fjárhagsnefnd-
arinnar utn eftirfylgjandi atriði.
Að félagið borgi fluttningsgjald á
sýningarmunum inn til Winnipeg frá
síðustu áfangastöð, með því móti, að
sagðir munir séu sendir heini aftur
strax og sýningin er afstaðin,og haíi
þeir þá ekki skift um eigendur.
Nefndin vill láta taka það skýrt
fram, að þetta boð gildi að eins fyr-
ir þetta sumar, og að það sé gjört
til að hjálpa þeim sem taka vilja
þátt í sýningunni, vegna peninga-
þurðar sem almennt eigi sér stað
vegna uppskerubrestsins ú síðast
liðnu suinri.
Það má búast við að Iðnaðarsýn-
ingin í Winnipeg verði enn þá betri
en að undanfðrnu. Gestir semþang
að koma geta vonast eftir að hafa
bæði gagn og gaman af för sinni
þangað.
Eitt af því marga merkilega sem
19. öldin lætur oss eftir, eru framför-
in í því að kenna allrahanda skepn-
um ýmsar íþróttir, sem fyrir nokkr-
um árum var álitið al\eg ómögu-
legt. Einn af þeim mönnum sem
mest hefur fengist við þesskonar
verk, er hr. Lockart, sein ,f undan-
farin þrjú ár liefur verið að temja
þrjá fíla. Með þessa fíla verður liann
á Winnipeg sýningunni í sumar.
Fílar þessir hafa leikið íþróttir sínar
fyrir konungum og kotungum. Með-
al annars ríða þeir þrí-hjólum, spila
á orgel, ganga á bjórflöskmn og
ríða á völtuhestum alveg eins og
kátir drengir, ásamt mörgu fleiru.
í annað siiju sitja þeir við borð
með hvíta brjóstadúka um hálsinn.
Einn kastar dúknum með fyrirlitn-
ingarsvip. Nágranni hans tekur
hann upp og lætur hann á hann, en
liinn kastar honum óðar aftur.
Þenna leik endurtaka þeir upp aft-
ur og aftur þar til sá fyrri hringir
eftir víni og fær það. Drekkur hann
þar til hann veltur út af augafullur.
Kemur þá inn fíll í lögreglu búningi
sem hýðir þrælinn þar til hann hljóð-
ar eftir vægð. Þykir þessi Ieikur
næsta spaugilegur.
Prógram sýningarnefndarinnar
verður afbragðs gott f suinar. Eitt
með því allra stórkostlegasta er
UMSÁTRIÐ uin borgina TIEN-
TSIN, sem verður sýnt mjög ræki-
lega. Borgin sézt og áin Pei- ho fyr-