Freyja - 01.01.1905, Blaðsíða 35
VII.6.-7.
FREYJA
18
KVENNFRELSI.
(Eftir REVIEW of REVIEWS.)
-----:o:-——
Herra Will Crooks M. P. lagði fyrir síöasta þing frumvarp
til laga viövíkjandi kvennfrelsi. Þetta gjöröi hann í nafni sjálf-
stæða verkaflokksins (Indipendent Labor party,) í fjarveru full-
trúa hans, hr Keir Hardei. Þetta lagafrumvarp tekur það fram.að
í öllu sem aö þingkosningum lýtur skuli þau orð, sem sérstaklega
benda til karlkynsins, látin vera innibinda kvennkynið líka. Til
þess að koinast eftir áliti hr. Crooks á þessu lagafrumvarpi fann
ég hann heima hjá honum.
,,Ég veit, hr. Crooks, að þér eruð mjög meðmœltur jafnrétti
kvenna. “ ,,Já, því í öllu sem ég gjöri, vil ég hjálpa til að gjöra
fólkið sjálfstætt og fœrt um að hugsa fyrir sig sjálft. Vegna þess
arna vil ég að það fái það vald og þá ábyrgð sem atkvoeðisréttinum er
samfara. Það er vegha þess, fremuren vegna hins, hversu konan
muni hagnýta atkvæðaréttinn, að ég vil að hún fái liann. Svo hefi
ég og sannfœringu fyrir því, að framförunum stafi engin hœtta af
þessum rétti konunnar. Vér trúum konunum fyrir að vera kenn-
arar barnanna bœði í skólum og heimahúsum, og felum þeim þegj-
andi á hendur hið stórkostlega undirbúningsverk komandi kyn-
slóða. Þess vegna er það heimskulegt að neita þeim um þessi
réttindi. Viðvíkjandi konum þeim sem tilheyra verkalýðnum er
það að segja, að ég ber dýpstu virðingu fyrir dugnaði þeirra Og
baráttu við örbyrgð og allt sem henni er samfara. Ég hefi œtíð
i'eynt að sýna fólki fram á það, að hin mörgu mannfélagsspursmál
sem nú eru á dagskrá, snerta konur meira en menn, og þess vegna
verðum Vér aðgefa þeim tækifœri til að ráða fram úr þeim. “
Herra Crook lagði mikla áhezlu á aðferðina sem hafa skyldi
til að koma þessu kvennfrelsismáli í æskilegt horf. ,,Það þarf að
leggja mikla áherzlu á það við hvern þingmann, að hann verSi að
berjast fyrir því ef hann vilji hafa fylgi fólks. Og engin kona ætti
að veita þeim þingmanni fylgi sem ekki vill skuldbinda sig til að
berjast fyrir þegnréttindum kvenna, “ segir hann. Sé konum þetta
áhugamál VerOa þœr að sína það í verkinu, með því, að láta það
œjinlega sitja fyrir flokksfylgi.