Freyja - 01.01.1905, Qupperneq 36
FREYJA
VII. 6.-7.
182.
„Kvennþjóöin í Australíu á verkalýönum þar aö þakka sín
borgaralegu réttindi. Eiga konur hér aö eiga von á sama fylgi
frá verkamannaflokknum á Englandi?“
„Þingmenn verkamannaflokksins í neöri deildinni eru því allir
meömæltir. “
,,Nokkrii leiðtogar frjálslynda flokksins hafa látið í ljósi aö
þeir vœru meömœltir kosninga endurbótum, en þeir hafa enn ekki
sagt neitt viövíkjandi því, hvort þaö ætti aö ná til kvenna líka.
Og ég er mjög hræddur um, aö endurbótatilraun þeirra nái einung-
is til karlmanna. Hvaö heldur þú um þaö?“
,,Ég get ekki sagt, hvaö frjálslyndi flokkurinn muni gjöra. En
ég veit aö þingmenn verkalýösins muni af öllum kröftum andmœla
öllum endurbótum sem útiloka konur frá borgaralegum rétt-
indum, hvort heldur þaö vœri gjört af núverandi stjórn eöa
annari. ‘ ‘
Herra Crooks hefir haldið fyrirlestra bæði á Englandi og
Skotlandi í þarfir kvennfrelsisins og komist aö þeirri niðurstööu aö
borgaralegum réttindum kvenna aukist daglega fylgi hjá verkamanna
stéttinni.
Athugasemd — Ofanrituö grein er eins og fyrir sögnin sýnir,
samtal milli W. T. Steads ritstj. Review of Reviews, og þing-
mans eins í neörideild Breska þingsins. Hún er tekin til aö sýna
afstööu kvennfrelsismálanna á Englandi og hvaöa skilyröi þing-
maður þessi álíti óhjákvæmilega nauðsynlega til aö þoka þeim mál-
um í viðunanlegt horf, í þeirri von að hún opni eöa hjálpi til aö
opna augun á þeim konum, sem eru svo blindar af flokksfylgi aö
þœr geta ekki séö veginn, sem þær verSa að ganga ef þœr vilja fá
sérmálum sínum hrundiö áfram. Þingmaðurinn segir: Engiti kona
æiti aS veita þeitti þingmattni fylgi sem ekki vill sknldbinda sig
til að berjast ýyrír þegnréttindum kvenna. Þetta er aðal atriöið,
sem hann leggur alla áherzlu á, og þetta verðum vér að muna.
Annars er líklegt að vér og dætur vorar megum lengi bíða eftir þegn-
réttindum, og áhrif vor og þeirra á félagsmálin verða æ títkmörk-
uö svo lengi sem vér ekki náum þegnréttindum.