Helgarpósturinn - 19.12.1985, Page 11

Helgarpósturinn - 19.12.1985, Page 11
HAUKUR í HORNI ER HALLDÓRSSON Haukur Halldórsson myndlistar- maður hefur verið ráðinn til Helgar- póstsins sem skopteiknari blaðsins og munu teikningar hans birtast reglulega á blaðsíðu 2 í Helgarpóst- inum. Haukur sér þjóðlífið og mannverur þess gegnum sterk og gagnrýnin gleraugu en sjálf augu listamannsins eru glettin og kímin eins og myndir hans sýna og sanna. Lesendur geta dæmt sjálfir, en fyrsta teikning Hauks birtist í þessu tölu- blaði og dregur dám af gjörningum i skipaflutningum og bankamálum líðandi stundar. Haukur Halldórsson er fæddur á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, þ. 4. júlí 1937 að Stórási á Seltjarnar- nesi. Að loknu hefðbundnu námi, stundaði hann fagrar listir við Hand- íða- og myndlistarskólann í Reykja- vík en hélt síðan til Danmerkur þar sem hann lærði teikningu og málun við Kunst- og hándverkskolen í Kaupmannahöfn og var ennfremur í einkakennslu þar í borg. Eftir dvöl- ina i Danmörku hélt Haukur aftur til Islands og stofnaði og rak teikni- stofu í Kassagerðinni í fjölda ára. Hann hefur undanfarin ár stundað eigin list og sýnir nú á sér nýja en langþráða hlið í Helgarpóstinum. Við bjóðum Hauk velkominn til leiks og megi hann una sem lengst í sínu horni. V V ið heyrum á skotsponum að Thor Vilhjálmsson hafi orðið nokkuð hvumsa við á dögunum er hann var staddur á alþjóðlegu skálda- og rithöfundaþingi á Korfu. Þar var meðal annars komin sendi- nefnd skáeygra austurlandabúa sem gerði boð fyrir Thor einn dag- inn án þess hann renndi grun í hvað stæði til. Á tilsettum tíma beið Thors fríður flokkur brosmildra og ógn kurteisra Kínamannasem tóku hon- um með kostum og kynjum og af- hentu honum skjal þar sem stóð að hann hefði verið útnefndur heid- ursdoktor hjá samtökum sem nefnast „The World Congress of Poets and Poetry“ (Alþjóðaþing skálda og ljóðlistar sumsé — við vonum að við förum rétt með) og ná með anga sína um víða veröld. Það sem hljómar kannski svolítið kynlega í eyrum Islendinga sem þekkja til Thors er að umræddir Kínamenn voru frá Formósu eða Taiwan, en Thor hefur svo sannarlega ekki gert sér neitt sérstaklega dælt við hægri- menn um dagana. . . En samt mun þetta þykja hin ágætasta viðurkenn- ing, sem Thor fær einkum fyrir fjölda Ijóða sem eftir hann hafa birst á enskri tungu, í tímaritum og á bók. .. . TVÆR GOÐAR •• - f BHK GÆOI I HVERJUM ÞRÆDI. KOMIÐ OG SKOÐIÐ HIN VINSÆLU (323 ULLARTEPPI. AFGREIÐSLUTÍMI: 1-2 VIKUR. NlOG 4,57*^ EPPI FRIÐRIK BERTELSEN H/F TEPPAVERSLUN SÍÐUMÚLA 23 S.686266 HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.