Helgarpósturinn - 19.12.1985, Blaðsíða 17
s
vonefnt forval Alþýðubanda-
lagsins vegna borgarstjórnarkosn-
inga í Reykjavík á næsta ári, er nú í
fullum undirbúningi. Kjörnefnd
flokksins hefur skilað af sér tillögu
um framboðslista og hefur tilnefnt
16 einstaklinga. Athygli vekur að
Adda Bára Sigfúsdóttir gefur ekki
kost á sér aftur. Þá er einnig athygl-
isvert að á listanum er ekki að finna
Álfheiði Ingadóttur, hinn sígilda
varamann Alþýðubandalagsins í
borgarstjórn. Ekki er síður eftir-
tektarvert að ekkert nafnanna, sem
tengjast „nýrri sókn“ og „nýju fólki,“
er á listanum. Þarna er enn að finna
fólk sem ónefndur flokksmaður
allaballa kallar „gömlu, fölsku tenn-
urnar": Guðmund Þ. Jónsson
borgarfulltrúa, Guðrúnu Ágústs-
dóttur borgarfulltrúa, og Sigurjón
Pétursson borgarfulltrúa. Ný nöfn
úr hópi menntamanna eru Helga
Sigurjónsdóttir, kerfisfræðingur,
Jóhannes Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna og Guðni Jó-
hannesson verkfræðingur. Þessi
nöfn eru þó að rhestu óþekkt, hafa
enga fótfestu í flokknum og munu
eiga litla sem enga möguleika á að
ná fram. Önnur nöfn á listanum sem
vekja athygli eru nokkrir krakkar úr
Æskulýðsfylkingunni sem smellt er
inn: Björk Vilhelmsdóttir, Pálm-
ar Halldórsson og Anna Hildur
Hildibrandsdóttir, sem mun hafa
átt lögheimili á ísafirði en heimilis-
fangi hennar var breytt í ofboði fyrir
1. desember svo hún gæti boðið sig
fram í Reykjavík. Samsetning list-
ans þykir benda til þess að Alþýðu-
bandalagið vilji tryggja gamla liðinu
traustan sess í efstu framboðssætun-
um. Það vekur til dæmis mikla at-
hygli að Kristín Ólafsdóttir vara-
formaður flokksins skuli ekki hafa
boðið sig fram því nauðsynlegt er
fyrir varaformann að hafa fastan,
pólitískan vettvang ef hann á að
geta beitt sér sem skyldi. Kristín,
sem nýtur talsverðs fylgis, hefði get-
að tryggt sér öruggt sæti á fram-
boðslistanum og þar með tryggt sér
sæti í borgarstjórn. Nú óttast margir
að hún lendi í sömu myllunni og
fyrrverandi varaformaður, Vilborg
Harðardóttir og gufi upp í fundar-
gerðum, pappírsstússi og ályktun-
um kjördæmaráða og miðstjórnar.
Hins vegar höfum við heyrt að það
hafi verið mikill barningur kjör-
nefndar að koma framboðslistanum
saman og hafi flestir sagt nei takk
þegar til þeirra var leitað. En nú
virðist sem sagt ljóst að þeir borgar-
fulltrúar sem fengu tækifærið 1978
og hlutu síðan dóm kjósenda 1982,
þegar Alþýðubandalagið missti
þriðjung atkvæða, eigi enn einu
sinni að stíga fram og vera fulltrúar
Alþýðubandalagsins gegn íhaldinu.
Til hamingju Davíð, segjum við...
GERIÐ GÓÐ KAUP!!!!
/
LITIÐ INN
TAKMARKAÐAR BIRGÐIR
BERGÞÓRUGÖTU 2 SÍMI21215
HELGARPÓSTURINN 17