Helgarpósturinn - 05.06.1986, Qupperneq 7

Helgarpósturinn - 05.06.1986, Qupperneq 7
Þessi náungi er greini- lega á leið til suð- rænna stranda. NÝJAR UPPLÝSINGAR UM AFLEIÐINGAR TSÉRNÓBÍL- SLYSSINS VARÐA AFMÖRKUÐ SVÆÐI í SVÍÞJÓÐ OG Á ÍTALÍU: GEISLAVIRKNIN MEIRI EN BÚIST VAR VIÐ ÍSLENDINGUR í SVÍPJÓÐ: FÓLK ER HÁLF RÁÐVILLT HÉRNA ÍSLENDINGUR Á NORÐUR-ÍTALÍU: FER EKKI MEÐ BÖRNIN Á STRÖNDINA eftir Jónínu Leósdóttur myndir Jim Smart Um heim allan hefur fólk verið slegiö óhug vegna kjarnorkuslyss- ins í Tsérnóbíl í Sovétríkjunum. Mikil hrœðsla greip að vonum um sig í nágrannalöndunum, eflir að fregnir tóku að berast um atburð- inn, en með tímanum tókst yfirvöld- um á hverjum stað og alþjóðlegum stofnunum að sefa óttann að veru- legu leyti. A síðustu dögum hafa hins vegar borist fréttir af óvenjumikilli geisla- virkni í kringum bæinn Gávle í Sví- þjóð og á afmörkuðum svæðum á Norður- og Mið-Ítalíu hafa yfirvöld látið bann við mjólkurdrykkju ganga aftur i gildi, sökum nýrra upp- lýsinga. Bæði þessi svæði, og þó einkum það síðarnefnda, sækja ís- lendingar í sumarleyfum sínum, sem nú eru að bresta á. Helgarpósturinn náði tali af fjór- um íslenskum konum, sem búsettar eru á þessum svæðum og ræddi við þær um ástandið í kjölfar brunans í Tsérnóbíl og framtíðarhorfurnar. Einnig var haft samband við veður- fræðing á Veðurstofu íslands, að- stoðarlandlækni og Geislavarnir ríkisins, sökum fregna af nýjum upp- lýsingum um aukna geislavirkni, m.a. í Svíþjóð, á Ítalíu og víðar. Sigurður Magnússon hjá Geisla- vörnum ríkisins tjáði blaðamanni HP að sífellt væru smábrot að bæt- ast í þá heildarmynd sem menn gerðu sér af afleiðingum Tsérnóbíl- slyssins. Varðandi fregnir um að aukinnar geislavirkni gætti, m.a. á vissum svæðum í Svíþjóð og Ítalíu, hafði Sigurður eftirfarandi að segja: ,,Þau geislavirku efni sem fóru út í andrúmsloftið við brunann í Tsér- nóbíl, dreifast um allar jarðir með loftstraumum. Ef það rignir þar sem þau eiga leið um, fellur mun meira til jarðar þar heldur en annars stað- ar. Rigningin hreinsar skýin að ein- hverju leyti og það hefur m.a. gerst á ákveðnum svæðum í Svíþjóð, t.d. í bænum Gávle í nágrenni Uppsala. Þegar þessi ósköp dundu yfir, dag- ana 27. til 29. apríl, voru vindarnir þannig, að á tímabili blésu þeir yfir Balkanlöndin og yfir til Italíu. Ef það hefur rignt þar, hefur magn geisla- virkra efna á viðkomandi svæði aukist. Þetta þvæst síðan smám saman burt og berst niður í jörðina, eins og annað sem á yfirborðið fell- ur. Ég hef hins vegar engin gögn í höndunum um það að ástand sé var- hugavert á Ítalíu og það hafa ekki verið gefnar út neinar tilkynningar í nágrannalöndunum um að fólk eigi ekki að ferðast þangað." Hjá Veðurstofu Islands fengust Á þessu svæði, á mótum Ítalíu, Austurrlkis og Þýskalands, hafa menn áhyggjur vegna regnskúra sem féllu í kjölfar kjarnorkuslyssins. þær upplýsingar að vindátt hefði vérið þannig fyrstu dagana eftir slysið í Tsérnóbíl að mest af geisla- virku ryki hefði borist norður og norðvestur, eins og fram hefur kom- ið í fjölmiðlum. Það hafi hins vegar tekið langan tíma að ráða niðurlög- um brunans og þess vegna hafi geislavirkni haldið áfram að berast upp í háloftin í nokkurn tíma, þó þetta hafi verið mest á allra fyrstu dögunum. „Geislavirkt ryk, sem lendir ekki í vætu, getur farið með vindum eftir ótal krókaleiðum um hnöttinn. Ef kjarni af geislavirkni lendir í úrkomu, fellur hún gjarnan á tiltölulega afmörkuðu svæði. Það getur m.a. verið skýring þess að geislavirkni mælist meiri á einum stað en öðrum, því það hreinsar nánast loftið af þessum geislavirku rykögnum, ef mikið rignir.“ Þannig fórust veðurfræðingi á Veðurstofunni orð um ferðir geisla- virku agnanna frá kjarnorkuverinu í Sovétríkjunum. Elsa Harðardóttir lyfjafræðingur er ein þeirra fjölmörgu sem búa á svæðum þar sem rigndi á fyrstu dögunum eftir brunann í Tsérnóbíl. Hún býr í borginni Udine á Ítalíu og kom heim til Islands með börnin sín tvö eftir að fregnir bárust af kjarn- orkuslysinu. Nú hefur Elsa snúið til HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.