Helgarpósturinn - 05.06.1986, Síða 14
HP SPJALLAR VIÐ FJÓRA EFTIRLAUNAMENN UM ÞÁ REYNSLU
AÐ SETJAST í
HELGAN STEIN
Margar samverkandi orsakir eru
þess valdandi ad mannskepnan lifir
nú lengur en ádur. Við œvi manna
bœtast þvi ár, sem ekki er varid til
brauðstrits. Oft er talað um þau sem
árin þegar „sest er í helgan steirí'.
Petta skeið í lífi mannsins, eftir-
launaaldurinn, getur orðið afar
góður tími, efheilsa og fjárráð eru í
sœmilegu lagi. Margir kvíða samt
þessu tímabili, finnst þeir orðnir
einskis nýtir í þjóðfélaginu og vera
hálfpartinn utanveltu í fjölskyldu-
munstri nútímans.
Helgarpósturinn hafði samband
við fjóra menn, sem tiltölulega ný-
lega hafa farið á eftirlaun en
gegndu áður erilsömum ábyrgð-
arstöðum í marga áratugi. Þeir voru
svo vinsamlegir að svara nokkrum
spurningum um þá reynslu að yfir-
gefa fyrri starfsvettvang og teljast
skyndilega ,,eftirlaunamenrí‘.
Andrés Björnsson,
fyrrverandi útvarpsstjóri:
Auðveldara en ég
gerði róð fyrir
— Er reynslan ef eftirlaunaaldrin-
um lík því sem þú bjóst við eða kom
eitthvað á óvart?
„Ég gekk að því vísu að miklar
breytingar yrðu á lífi mínu þegar ég
færi frá Ríkisútvarpinu og hætti að
fást við öll þau fjölbreytilegu við-
fangsefni sem fylgdu embætti mínu.
Ég hafði þar stundum þolað von-
brigði eins og gengur, en líka átt
margar góðar stundir, þegar m'ér
fannst ég vinna almenningi gagn og
heppnast að stuðla að vexti og við-
gangi stofnunarinnar sem ég var
orðinn svo nátengdur eftir öll þessi
ár. Ábyrgðin gagnvart eigendunum,
almenningi í landinu, var mér oft
býsna þung, og ég vildi efla Ríkisút-
varpið og starfsemi þess sem best ég
gat.
Nú ákvað ég sem sagt að fara
heim og finna mér ný viðfangsefni.
Það reyndist jafnvel auðveldara en
ég hafði gert ráð fyrir. Ég hugsaði lít-
ið um það sem liðið var, en þeim
mun meira um þær nýju brautir sem
framundan lágu. Mig hafði alltaf
langað til að skrifa, og girnileg verk-
efni biðu mín sem ég hafði ekki haft
tóm til að sinna."
— Lœturðu verða af öllu því sem
þú hafðir hugsað þér að hafa tíma
til að gera?
,,Æ, það er svo margt sem mig
langar til að gera. Ég býst varla við
að geta látið verða af því öllu. Tíma-
skeið heilsu og hreysti endist ekki
eilíflega og tíminn verður sífelit dýr-
mætari eftir því sem á líður. Ég verð
að játa þann veikleika að ég á erfitt
með að skipuleggja störf fram í tím-
ann. Ég hef alltaf verið hneigður fyr-
ir að taka verkefnin í áhlaupi, en þó
aldrei án þess að hugsa þau vand-
lega fyrirfram og reyna að gera mér
grein fyrir hugsanlegum vandkvæð-
um. Nú hef ég ekki annað en vonina
um að fá lokið því sem fastast sækir
á mig.“
— Lestu meira en áður?
„Því sem ég kalla nú helstu störf
mín fylgir mikill lestur og leit í bók-
Haraldur Steinþórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri BSRB.
14 HELGARPÖSTURINN