Helgarpósturinn - 05.06.1986, Síða 17

Helgarpósturinn - 05.06.1986, Síða 17
ið upp við sem flesta skóla í þéttbýli. Sverrir Hermannsson sló því ný- lega fram að stytta þyrfti skóla- skyldu til þess að börn gætu fylgst með sauðburði. Kennarar sem hafa fylgst aðeins með, vita að sá munur er á sveitadvöl barna nú og þegar Sverrir var polli að bændur taka peninga fyrir að ala upp börn fyrir kaupstaðarbúa — rétt eins og aðrir sem taka að sér uppeldi fyrir vanda- lausa. Það kostar því orðið vel mán- aðarlaun að senda einn grísling í hálfsmánaðardvöl til bænda og því engin leið önnur til þess að hafa eitthvert skikk á því að börnin kynnist sauðburði en að skólarnir komi sér sjálfir upp fjárhúsum. Helsti meinbugur sem menn sjá á þessari tilhögun er að ekki er víst að bændamafían, margfræg, eigi nokkurt búmark aflögu fyrir svona lagað sem bændur eru vísir til að kalla leikarabúskap. . . A ^^^^ðfaranott föstudagsins 30. maí síðastliðinn lagði af stað heil geðdeild af Kleppsspítala til tveggja vikna dvalar í sumarhúsum í Hollandi. Þetta mun í fyrsta sinn sem heil deild fer í slika ferð. Sextán vistmenn fóru ásamt átta starfs- mönnum. Þetta hefði ekki verið hægt nema vegna dugnaðar bæði vistmanna og starfsmanna við að safna fé, því fé það sem rennur úr ríkiskassanum dugir ekki til að heil deild komist í utanlandsferð. Sótt hefur verið um styrk til fararinnar til hins opinbera en mestmegnis hafa verið neitanir á þeim bæ. Hver kannast ekki við það? En menn á Kleppi dóu ekki ráðalausir og í allan vetur hafa staðið yfir flóamarkaðir, pizzusala, útgáfa brandarablaðs sem ber nafnið Gleðibankinn o.s.frv., o.s.frv. Víst er að vistmenn- irnir ætla að skemmta sér konung- lega í Hollandi.. . BILSOM COM Þráðlaust fyrir útvarp/segulband • Hljómlist • Tilkynningar • Menntun • Útvarp Þetta kerfi er svokallað þriggjarása kerfi sem sendir á þrem rásum í einu, starfsmaður getur valið um rás sjálfur óháð öðrum, þ.e.a.s. Rás 1, Rás 2 frá Ríkisútvarpinu og/eða segulbandi, einnig er hægt að kalla inn á kerfið með hljóðnema ýmsar tilkynningar eins og ef þarf að ná til starfs- manns í síma eða til viðtals. Hentar t. d. fyrir verksmiójur, fiskiskip, frystihús, trésmiðjur, vélsmiöjur, saumastofur o. fl. Kerfið er ekki stefnuvirkt Upplýsingar og tæknilega ráðgjöf færðu hjá Ármúla 34,108 Reykjavík.Símar: 91-34060 34066. 3 slórkostlegar songkonur m.a. Shella Bonnick sem var ein aðal- söngkonan í Boney M. skemmta gestum okkar í Y fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld. Opið öll kvöld Smiðjuvegi Kópavogi. Opið öll kvöld SHELLA ANÐ THE EXTREMES HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.