Helgarpósturinn - 05.06.1986, Qupperneq 28
með eindæmum undarlegt og jafn-
an hvað mest brenglað skömmu fyr-
ir kosningar. Þannig tóku menn eftir
því að blaðið sá sér, einhverra hluta
vegna, ekki fært að skýra lesendum
sínum frá því að Halldór Laxness
hefði sent Sjónvarpinu mótmæla-
bréf vegna styttingar á uppruna-
legri leikgerð Hrafns Gunnlaugs-
sonar á Silfurtúnglinu en endur-
gerðin var sem kunnugt er ekki bor-
in undir nóbelskáldið. Þessu var
hinsvegar slegið upp í öðrum blöð-
um, enda um mikla menningarfrétt
að ræða — en sem sagt, ekki stafur
í Mogga. í framhjáhlaupi er þess
kannski að geta að Hrafn Gunn-
laugsson var einhver raunbesti
stuðningsmaður Davíðs í kosninga-
slagnum fyrir helgi. ..
M
fli V ■leirihluti á Selfossi hefur
undanfarin ár verið myndaður af
sjálfstæðismönnum og framsóknar-
mönnum. Nú eftir kosningarnar
eiga þeir enn kost á meirihluta með
samtals sex menn af níu. Það geng-
ur hinsvegar ekki upp því algerlega
hefur skipt um menn í bæjarstjórn-
inni. Nú geta framsóknar- og sjálf-
stæðismenn ekki lengur unnið sam-
an. Því hafa framsóknarmenn biðl-
að til Alþýðuflokks og Kvenna-
lista um meirihlutamyndun á Sel-
fossi. Víst er talið að sjálfstæðis-
menn verði í minnihluta. Mun þetta
allt stafa af óánægju manna með
efsta mann D-lista, Brynleif H.
Steingrímsson, að því er HP heyr-
ir. Jafnvel má skýra hluta fylgistaps
D-lista á Selfossi með þessari
óánægju, að sögn heimildamanna
HP. . .
Þ
að eru alls ekki öll kurl kom-
in til grafar í Hafskipsmálinu — eða
þeim anga þess sem snýr að
Ameríku. Erfitt er að eiga við mál
þegar um slíkar fjarlægðir er að
ræða sem raun ber vitni, en Skipta-
réttur í Reykjavík er þó svo hepp-
inn að hafa Islending sem getur
sinnt Hafskipsmálinu yfir í
Ameríku. Það er Magnús Gylfi
Þorsteinsson lögfræðingur. Eftir
próf hér fór hann utan og lagði
stund á framhaldsnám í Sviss. Hann
hélt síðan til Bandaríkjanna og vann
á lögmannsstofu í New York og með
því ávann hann sér full iögmanns-
réttindi í New York. Samtímis því að
hann ákvað að fara út í sjálfstæðan
lögmannsrekstur kom svo Hafskips-
málið upp. Og það varð því Hafskip
sem ýtti Magnúsi Gylfa úr vör. Það
er svo auðvitað ómetanlegt fyrir
Skiptarétt að hafa mann á staðnum
sem þekkir til í frumskógi laganna r
henni Ameríku, en þeir kalla ekki
allt ömmu sína þar á bæ ...
Þú borðaðir rúmlega eitt hundrað
SS pylsur á síðasta ári.
SLATURFELAG
O
=1
cn
>'
SUÐURLANDS
Ariö 1985 borðuðu íslendingar hvorki meira né minna en
17 milljónir og eitt hundrað þúsund (17.100.000) SS pylsur.
Það gera liðlega 100 pylsur á hvert mannsbarn sem náð hefur
,,kjötaldri“. Betri meðmæli eru vandfundin.
28 HELGARPÓSTURINN