Helgarpósturinn - 23.10.1986, Síða 19
ekkert verði af prófkjöri sjálfstæðis-
manna á Reykjanesi, heldur sjái
uppstillingarnefnd alveg um röð
efstu manna. þar með er fyrirséð að
núverandi þingmenn flokksins __ í
kjördæminu, þeir Matthías Á.
Mathiesen, Gunnar G. Schram,
Salóme Þorkelsdóttir og Ólafur
G. Einarsson, sitji áfram efst, en
nýju andlitin sem gátu alveg hugsað
sér árangur sitji eftir með skeifu.
Hér er átt við gilda sjálfstæðismenn
á borð við Júh'us Sólnes, Krist-
jönu Millu Thorsteinson og
Önund Björnsson. . .
V
ið greindum frá -því í sumar
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES:............ 93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
að Bent Bjarnason, fyrrv. aðstoð-
arsparisjóðsstjóri SPRON, hefði
verið fluttur um set innan spari-
sjóðsins og gerður að útibússtjóra á
Seltjarnarnesi. Þetta var gert eftir
að hann lánaði kaupendum að fyrir-
tæki konu sinnar, Líkams- og
heiisuræktinni, megnið af kaup-
verðinu úr sjóðum SPRON. Bent
hefur nú látið af störfum útibús-
stjóra og Lísa Gunnarsdóttir full-
trúi gegnir þeim störfum þar til ráð-
ið verður í stöðuna. Ekki hefur held-
ur verið ráðið í stöðu aðstoðarspari-
sjóðsstjóra sem Bent yfirgaf síðast-
liðið vor en Benedikt Geirsson
skrifstofustjóri gegnir því starfi þar
til úr rætist. Það er því óhætt að
segja að Bent hafi skilið girnilegar
stöður eftir sig á leið sinni út úr
bankanum. . .
A
næstunni verður akveðið a
kjördæmisþingi Framsóknarflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi hverjir
muni skipa framboðslistann með
Steingrími. Steingrímur Her-
mannsson er talinn fá rússneska
kosningu í fyrsta sætið. Reiknað er
með að Jóhann Einvarðsson sem
áður skipaði efsta sætið fái annað
sætið, bæði í umbunarskyni fyrir
fórnina sem hann færði með því að
styðja Steingrím sem og vegna þess
að hann hefur lagt á sig að búa í
Keflavík allt kjörtímabilið. Reiknað
er með að það sé eðlileg skipting
milli byggðakjarna í kjördæminu að
Jóhann fái annað sætið. Um næstu
sæti er meira deilt á þessu stigi.
Margir hafa viljað sjá konu framar á
listanum og hefur nafn Helgu Jóns-
dóttur oftast borið á góma í því
sambandi. Hún er hins vegar að-
stoðarráðherra Steingríms og þykir
því dæmd úr leik að þessu sinni. Þá
hefur Inga Þyrí Kjartansdóttir í
Kópavogi ákveðið að gefa kost á sér
og öðru hvoru hafa nöfn Drífu Sig-
fúsdóttur í Keflavík og Elínar Jó-
hannsdóttur í Kópavogi verið
nefnd. Níels Árni Lund sem al-
mennt er mjög vinsæll meðal fram-
sóknarmanna býður sig einnig
fram, en þar sem hann er annars
vegar að flytja sig úr kjördæmi
(Norðurlandi eystra) og með heima-
byggð í Hafnarfirði (of nálægt Arn-
arnesi Steingríms) þykja möguleik-
ar hans ekki mjög miklir á þessu
stigi. Svo er hann heldur ekki
kona...
NÝJUNG
Þjónusta
við
húsfélög
oonao«o»»“””P““°§
HELGARPÓSTURINN 19