Helgarpósturinn - 23.10.1986, Side 40
Tl^ðinda er að vænta úr við-
skiptaheiminum, því allt útlit er fyr-
ir að veldi stórfyrirtækisins Fálk-
ans á Suðurlandsbraut verði skipt í
tvo hluta frá og með næstu mánaða-
mótum. Ólafur Haraldsson hætti
sem kunnugt er sem forstjóri Fálk-
ans fyrir nokkru, en hann er sonur
Haraldar Ólafssonar, sem stofn-
PIZZAHUSIÐ
GRENSÁSVEGI 10 108 R.
Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni.
Njótið þægilegra veitinga í þægilegu umhverfi
Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu
heim eða pantið í síma 39933.
aði Fálkann á sínum tíma ásamt
tveimur bræðrum sinna. Heimildir
eru reyndar fyrir því að afkomend-
ur þessara tveggja bræðra í stjórn
Fálkans hafi beitt sér fyrir því að
Ólafur léti af forstjórastarfinu. Hvað
sem því líður virðist nú ljóst, að
Ólafur og hans fjölskylda hafi fengið
því framgengt að hluti af
starfsemi Fálkans, hljómplötu- og
hljómtækjadeildin, verði aðskilinn
öðrum rekstrarþáttum Fálkans og
Ólafur fái full yfirráð yfir þeim hluta
með stofnun nýs firma. Þessar hrær-
ingar innan Fálkans segja viðskipta-
menn vera dæmigerðar fyrir það
los sem oft verði á einkafyrirtækj-
um þegar annar og þriðji ættliður
taki við þeim. Aðrir herma að þess-
ar hremmingar Fálkans séu mestan-
part afleiðing af erfiðri rekstrar-
stöðu fyrirtækisins á síðustu miss-
erum. Fálkinn sé einfaldlega að
missa flugfjaðrirnar í síharðnandi
samkeppni við fyrirtæki í samskon-
ar rekstri. . .
mr að er fjallað um Byggung
hér í blaðinu. Þar kemur fram að fé-
lagið, og þar með þeir sem eru að
kaupa íbúðir af félaginu, er skuldum
vafið. Viðskiptabanki Byggung, Út-
vegsbankinn, virðist hafa sýnt fé-
laginu óvenjumikla lipurð. í gegn-
um hann hefur félagið fengið erlend
lán ofan á þau langtímalán sem
Byggung hefur tekið hjá bankanum.
Byggung hefur einnig mjög háa yfir-
dráttarheimild á hlaupareikningi
sínum hjá bankanum og samkvæmt
ársreikningum virðist sú heimild
hafa verið notuð óspart. Hver svo
sem ástæðan fyrir þessu er hafa
menn bent á tengsl Þorvaldar
Mawby, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Byggung og stjórnarformann
félagsins, við Útvegsbankann.
Þannig er að Þorvaldur er kvæntur
Helenu Albertsdóttur, Huldu-
hershöfðingja, dóttur Alberts Guð-
mundssonar, ráðherra og fyrrv.
bankaráðsformanns Útvegsbank-
ans...
ikil viðkvæmni ríkir
meðal alþýðubandalagsmanna í
Reykjavík vegna forvais í borginni.
Búist er við miklum átökum — og á
innanflokksfundum á næstunni er
reiknað með að titringurinn geri
vart við sig. Samkvæmt auglýsing-
um í Þjóðviljanum er aðalfundur
verkalýðsmálaráðs um helgina. Þar
er reiknað með útspili frá Asmundi
Stefánssyni í forvalsslagnum —
þar sem hann hefur ekki þótt ganga
manna lengst til þessa í kröfugerð.
Hins vegar brá svo einkennilega við
að til að byrja með vantaði Ásmund
í auglýsinguna og þótti það dálítið
sérkennilegt, þó svo Björn Björns-
son hægri hönd Ásmundar ætti að
tala á staðnum. í gærdag var svo bú-
ið að bæta um betur og færa Ás-
mund og mynd af honum inní aug-
lýsingu um fundinn. Einsog margir
muna sagði formaður verkalýðs-
málaráðs AB af sér og úr flokknum,
Bjarnfríður Leósdóttir ásamt
fleiri konum og óvíst er hver verður
kosinn að þessu sinni, þó víst sé að
enginn úr andófsliðinu gefi kost á
sér eftir að Bjarnfríður gafst uppá
verkalýðsforystunni hefð-
bundnu.. .
RUj
■ ú er lag fyrir frjálsu stöðv-
arnar! Fréttastjórar Ríkisútvarps-
ins, þeir Ingvi Hrafn Jónsson hjá
sjónvarpi og Kári Jónasson á
hljóðvarpi hafa þekkst boð Sigurð-
ar Heigasonar forstjóra Flugleiða
um fjölskylduferð til Skandinavíu-
landa. Lagt verður í ’ann í dag,
fimmtudag, og komið heim að tæpri
viku liðinni. Illar tungur skýra þetta
boð Flugleiða sem þakkir félagsins
fyrir krítíska fréttaumfjöllun ríkisins
um málefni Arnarflugs á undan-
förnum mánuðum...
með
kókos
með
rúsinum
með
hnetum
með hunangi
Morgungull er fáanlegt í þremur tegundum eftir smekk hvers
og eins. Með rúsínum, kókos og svo sú þriðja með hnetum.
Morgungull er sérstök tegund af íslensku músli og er frábær
uppspretta fjölmargra næringar- og hollustuefna. Morgungull
er kjarngóður morgunmatur og fer vel í maga.
Gott Granola er holl og bragðgóð morgun-
kornsblanda og eru tvær tegundir fáan-
legar: Gott Granola og Gott Granola með
hunangi. Granola hollustublöndurnar eru
mjög vinsælar'hérlendis og þykja sérlega
bragðgóðar.
Gott Músli er „ori-
ginal“ hollustublan-
dan. Gott Músli er
blanda af korni,
hnetum, fræjum og
ávöxtum og er talin
einhver hollasta
fæða sem til er.
|S5jggg:
Hollustublöndur við allra hæfi í morgunmatinn. Sex mismunandi tegundir á boðstólum fyrir alla sem
veija hollan næringar- og trefjaríkan morgunmat. Morgunmatsins frá Góðu fæði hf. má njóta á ýmsan
hátt t.d. með mjólk, léttmjólk, súrmjóik, jógúrt eða skyri.
1 h';> " • • * T*
40 HELGARPÓSTURINN