Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 13
nefnd Keflavíkur vinni eftir öðrum
lögum og reglugerðum en samskon-
ar nefnd á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Helgi Aðalsteinsson heitir
húðflúrmeistari sem tvivegis hefur
fengið starfsleyfi til að reka húðflúr-
stofu í Þingholtsstræti. Hann hóf
reksturinn árið 1983 og gekk hann
víst það vel að Helgi fór utan til frek-
ara náms hjá „tattoo-meisturum".
Hann lokaði því stofunni í Þing-
holtsstræti. Rekstur Helga á stof-
unni varð til þess að heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur og nágrennis
sendi frá sér Reglugerð um rekst-
ur húðflúrstofa. Þegar Helgi sneri
heim frá frekara námi hóf hann að
innrétta nýja stofu í Keflavík og
lagði umsókn um starfsleyfi fyrir
heilbrigðisnefnd þess byggðarlags.
Svar frá nefndinni dróst og kom
ekki fyrr en Helgi hafði innréttað
velbúna húðfiúrstofu og lagt í það
mikla fjármuni. Svarið var neikvætt
og Helga neitað um starfsleyfi án
þess að ástæður neitunarinnar
væru tilgreindar. Þetta fannst Helga
að vonum súrt í broti og hugðist
leita réttar síns hjá Ólafi Ólafssyni,
landlækni. Þegar Helgi loks náði
fundi Ólafs snerist samtal þeirra
mest um hversu illa Ólafi landlækni
væri við allt húðflúr. Helgi mun því
ætla sér að leita annað til að fá bót
sinna meina...
M
■ W Wargt taka verkalýðshetj-
urnar sér fyrir hendur. Sigfinnur
Karlsson, forseti Alþýðusam-
bands Austurlands, hefur komið
við sögu hér í Helgarpóstinum þeg-
ar greint var frá því hvernig hann
hefur rekið sambandið nánast úr
rassvasanum. En Sigfinnur er ekki
við eina fjölina felldur. í hinum rass-
vasanum geymir hann bókhaldið
fyrir umboð sitt fyrir Coca-Cola,
Lindu og Sana. Sigfinnur keyrir
þessar vörur í verslanir á Neskaup-
stað þegar tími gefst frá annasöm-
um verkalýðsmálum.. . .
Borðapantanir
í síma 11340.
I veisluna
Kaffi, snittur — adeins 35 kr. stk.
Gerum sérstakt tilboö í cocktail- og brauötertuveislur.
Ath.: Jólatilboö okkar 399 kr. er hangikjöt meö öllu
+ desert. Fyrir fyrirtœki og stofnanir.
Leitid til fagmannsins
VEITINGAMAÐURINN
Sími 68 68 80
AFBURÐA TÆKNI SEM SPARAR
ÞÉR TÍMA, FÉ OG FYRIRHÖFN
Undanfarin ár hafa VICTOR tölvurnar skapað sér virðingarsess
á íslenskum markaði. Þær eru hraðvirkar, öruggar og tæknilega
fullkomnar. Reynslan hefur sýnt að þær eru vandaðar, sterk-
byggðar og hafa lága bilanatíðni.
Mikið framboð er af tölvum á markaðinum sem virðast líkar við
fyrstu sýn. Gjarnan eru gylliboð auglýst sem auðvelt er að láta
ginnast af. Við ráðleggjum viðskiptavinum að kynna sér vandlega
hvað á boðstólum er, til að kaupa ekki köttinn í sekknum.
Reynslan sýnir að ódýrustu tölvurnar eru yfirleitt ekki ódýrastar
þegar upp er staðið.
Einar J. Skúlason er gamalgróið fyrirtæki sem starfað hefur í
hartnær hálfa öld. Fyrirtækið hefur á að skipa reyndu og vel
menntuðu starfsfólki, sem kappkostar að veita viðskiptavinum
trausta og góða þjónustu.
VICTOR VPC II
VICTOR V286
Síðastliðið vor kom á markað-
inn ný og endurbætt tegund
einmenningstölva frá Victor,
VPC II. Fyrirtæki, skólar og
einstaklingar tóku Victor VPC
II opnum örmum og hafa á
þessum stutta tíma u.þ.b. 500
tölvur verið teknar í notkun
hérlendis. Victor VPC II ein-
menningstölvan er mjög vel
útbúin, hún hefur vinnsluminni
í fullri stærð, þ.e. 640 kb, og er
hraðvirkari. Victor VPC II er
IBM PC samhæfð, sem þýðir að
úrval staðlaðra íorrita er
mikið.
Hún er með tveimur lágum
disklingadrifum, 14" skjá, graf-
ísku skjákorti, raunverulegum
16 bita örgjörva (Intel 8086,
sem gerir vélina hraðvirkari),
MS-DOS 3.1. stýrikerfi, GW-
BASIC, 3 vönduðum handbók-
um, endurstillingarhnappi og
innbyggðum rað- og hliðar-
tengjum. Victor VPC II tekur
lítið pláss á skrifstofunni en er
gífurlega öflug.
Victor V286 er öflug einkatöiva
með mikið geymslurými. For-
senda þess er 16 bita örgjörvi
af gerðinni Intel 80286 og
Winchester diskur sem er ým-
ist 20 eða 40 MB. Intel 80286
hefur tiftíðnina 6 eða 8 MHz
sem gerir Victor V286 jafn af-
kastamikla og raun ber vitni.
Victor V286 er búin endurstill-
ingarhnappi til að tryggja ör-
yggi gagna á diskum Victor
V286 hentar mjög vel sem
móðurtölva í tölvuneti. í Victor
V286 er það innbyggt sem í
öðrum tölvum telst aukabún-
aður. Victor V286 hentar vel
þar sem gögn eru fyrirferðar-
mikil. Val á Victor V286, af-
burðatölvu, leiðir til aukinna
afkasta og hagkvæmni á skrif-
stofunni.
V)
:o
O)
o
(0
Hringið eða komið á Grensásveg 10 og við veitum góðfúslega allar nánari upplýsingar.
vict. n
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33