Helgarpósturinn - 18.12.1986, Page 48
ðalfundur Hjálparstofn-
unar kirkjunnar verður í janúar.
Þar munu tvær nefndir, önnur skipuð
af stjórn stofnunarinnar og hin af
kirkjuráði, skila skýrslum sínum. Á
fundinum mun líka að öllum líkind-
um verða skimað eftir eftirmanni
Guðmundar Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra. Gunnlaugur Stef-
ánsson, sem er um margt efnileg-
ur arftaki, sótti um prestakallið í
Heydölum áður en hitna fór undir
Guðmundi. Hann hefur nú messað
þar einu sinni en ekki verður gengið
til kosninga í Heydölum fyrr en í
byrjun nýs árs. Gunnlaugur er einn
í kjöri. Áðrir sem hafa verið áber-
andi hjá Hjálparstofnuninni eru
flestir í ágætum stöðum: Árni
Gunnarsson er kominn með ann-
an fótinn á þing, Jón Ormur Hall-
dórsson á enn eftir um tvö ár í sínu
námi og sr. Bernharður Guð-
mundsson er fréttafulltrúi þjóð-
kirkjunnar. Jón Ormur á reyndar lítt
upp á pallborðið hjá kirkjunnar
mönnum þar sem hann er enn álit-
inn upphafsmaður skrifa HP um
málefni Hjálparstofnunarinnar. Ef
enginn annar kemur fram á sjónar-
sviðið er ekki ólíklegt að sr. Bern-
harði verði boðin staðan...
largt kemur á óvart í
heimi hér. Hjónin Ólafur Ragnar
Grímsson og Guðrún Þorbergs-
dóttir eru komin í stétt kaup-
manna. Þau hafa keypt verslunina
Garn Gallerí við Skólavörðustíg.
Þar með geta þau hæglega farið að
sækja fundi Kaupmannasamtak-
anna og haft áhrif á álagningarmál
og aðra hagsmuni verslunarinnar.
Þetta skapar sjálfsagt gremju sumra
manna, þar sem Ólafur Ragnar hef-
ur einmitt beint spjótum sínum að
þessum þjóðfélagshópi undanfarin
ár. Kannski enska orðatiltækið eigi
þarna við: If you can’t beat them,
join them...
Toppurinn
Toppurinn í dag: Nautahryggur með
öllu góðgœti í veisluna á aðeins 690,- kr.
pr. mann.
Ath.: Jóladlboð okkar 399 kr. er
hangikjöt með öllu + desert.
fyrirtœki og stofnanir.
Leitið til fagmannsins
VEITINGAMAÐURINN
Sími 68 68 80
Fyrir
B
48 HELGARPÓSTURINN