Helgarpósturinn - 15.10.1987, Side 6

Helgarpósturinn - 15.10.1987, Side 6
kjaramarkaönum þá oröid þess ualdandi aö þid getid ekki borgad jákuœda uexti á almennu bókunum? „Það má orða það svo að al- menna bókin hafi orðið eftir og út undan,“ sagði Stefán Pálsson. VIÐ VITUM AF ÞESSU handveð í sparisjóðsbók og hana þarf ekki að nafnskrá," sagði Bragi Hannesson. GÖMLU LÚMSKHEITIN ,,Ég held oð þetta sé sambland af mati bankanna og hreinni henti- stefnu," sagöi Bjarni Bragi Jónsson, aöstoöarbankastjóri Seðlabankans, í samtali uiö Helgarpóstinn. „Okkur finnst þetta ekki í lagi," sagöi Bragi Hannesson, bankastjóri Iðnaðarbankans, í samtali uiö Helg- arpóstinn. ,,Þaö eru enn þá nei- kuœöir uextir á þessum bókum, en á hitt er aö benda aö í öllum bönkum eru sérkjarareikningar sem eru nán- ast óbundnir. Þaö er á ábyrgö spari- sjóösbókareigenda sjálfra aö fœra sitt fé á milli, þannig aö fé þeirra áuaxtist sem best. Ég held að kynning á innlánskjör- um í bönkum hafi aldrei verið meiri en síðustu mánuði. Það er alltaf ver- ið að tala um það hver verðbólgan er, þannig að fólk veit af því. En það er alveg rétt að vextir á almennum bókum hafa orðið eftir, af því menn hafa verið að auglýsa mikið þessa sérkjarareikninga. Það má segja að óbeint hafi þetta brambolt í kringum sérkjarareikn- inga komið niður á sparisjóðsbók- inni." En afhuerju hœkkiö þiö ekki uexti á almennum bókum þannig aö þeir' hangi í veröbólgunni? „Þetta er góð spurnig. Það er vegna þess að við erum með óskap- lega mikið fé bundið inni á okkar bónusreikningi, sem er verðtryggt með 3% vöxtum." Þiö hafiö m.ö.o. ekki efni á aö breyta þessu? „Já, það má orða það þannig. En ef við breyttum þessu eitthvað veru- iega þyrftum við að hækka útláns- vextina eða þá lækka sérkjaravext- ina. En nú hafa okkar sérkjarareikn- ingar verið verðtryggðir í ár vegna þess að það hefur gefið hæsta ávöxt- un. En því miður virðist þróunin vera að eyðileggja þetta innlánsform, almennu sparisjóðsbókina, sem hef- ur þó marga kosti. Það má t.d. taka „Staðreyndin er sennilega sú að verulegur fjöldi sparisjóðsreikninga hafi verið notaðir sem hlaupareikn- ingar, eða sem nokkurs konar bak- hjarlsreikningur fyrir ávísanareikn- inga til að ná hærri vöxtum. Því finnst bönkunum þessar almennu sparisjóðsbækur ekki verðskulda fulla raunvexti. Þetta er eitt viðhorf- ið. Annað er það að það getur verið svo mikið um sljóleika hjá eigend- um sparisjóðsbókanna. Að þetta sé venjuhegðunarfólk og þegar bank- arnir komast að því að vaxtakjör skipta það ekki miklu máli, þá er ekki sama brýningin fyrir hendi fyrir bankana að halda vöxtum raunhæfum. Þetta er svona óopin- ber skoðun, sem menn fá tilfinningu fyrir. Ég get ekki neitað því að það hlýt- ur að vera mótuð afstaða bankanna að bjóða neikvæða vexti á þessum bókum. Það eru gömlu lúmskheitin að láta sparifjáreigendur sjálfa taka frumkvæðið að því að skipta yfir í hagstæðari reikninga. Reynslan hef- ur verið sú að tregðulögmálið hefur virkað þannig meðfram vanupplýs- ingu, að það er alltaf svo og svo mik- ið sem bankarnir græða á þessu." Er þaö ekki í uerkahring Seöla- bankans aö upplýsa almenning um huersu slœm kjör eru á þessum bók- um? „Það má segja að okkur beri skylda til að uppfræða landslýðinn um þessi mál í hóflegum mæli, en hitt er annað mál að það hefur aldrei verið túlkað þannig að við séum skyldugir til að vera í einhverj- um auglýsingalegum djöfulgangi. En það er sjálfsagt alveg rétt að við mættum kynna þetta miklu betur,“ sagði Bjarni Bragi Jónsson. „Maður er alveg steinhœttur aö vera hissa. Ríkisstjórnin boöar nýja skattaálögur á hverj- um degi.“ ° Albert GuÖmundsson, formaöur Borgaraflokksins. „Fjármólaróðherra virðist nú róða öllu. Ég vona hins vegar að fram- sóknarmenn sjái að sér og fari eftir sannfæringu sinni og Framsóknar- flokkurinn standi við stefnu sína." Stefán Valgeirsson, þingmaöur Samtaka um jafnrótti og fólagshyggju. „Ég lýsti því yfir að ég myndi ekki styðja hugmyndir rikisstjórnarinn- ar um söluskatt ó matvæli nema gerðar yrðu hliðarráðstafanir þar sem bætur kæmu til barnflestu fjölskyldnanna." Guímundur G. Þórarinsson, þingmaður Framsóknarflokkalns, „Þau mól sem við erum að undir- búa fyrir kirkjuþíng eru mörg hver alvörumál. Það er því ekki til mikils ætlast af kirkjuráði að það afgreiði þau af einhverri alvöru." Dr. Gunnar Kristjánsson, kirkjuþingsmaöur. „Ég reyndi að gera Andreotti grein fyrir því að enginn saltfiskur er með haus ... Það er ó mörkunum að hægt sé aö ræða þetta við utan- ríkisráðherra en ég var búinn að lofa því heima að gera það." Steingrímur Hermannsson, utanrikisráöherra. „Það er verulegur hagnaður af rekstri bankans, en ég get engar tölur staðfest." Guðmundur Hauksson, bankastjóri Útvegsbankans. „Við getum ekki rekið starfsemi okkar áfram. Ég sé ekki annað en við verðum að loka." Pálmi Gíslason, formaöur Ungmennafólags íslands. „Seölabankinn er akademískur fílabeinsturn þar sem ekki er álag ó neinum." Jón Baldvin Hannibalsson, . fjármáfaráðherra. SKALLARÁÐSTEFNA / •• IKAUPMANNAHOFN Lyfjaframleiðandinn Upjohn bauð þrermir húðlækn- um á ráðstefnu í Kaupmannahöfn laugardaginn 3. októ- ber síðastliðinn. Læknarnir voru eina helgi í borginni, þó ráðstefnan stæði ekki yfir nema í fáeinar klukkustundir. Á ráðstefnunni var kynnt ný framleiðsla fyrirtækisins; lyf við skalla. Þetta lyf er bæði dýrt og hættulegt. Það er því ólíklegt að það fáist skráð hérlendis. EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON MYND: JIM SMART í síðustu viku kynnti Félag heim- ilislcekna nýjar reglur varðandi boðsferðir lækna. Þessar reglur eru settar til þess að koma í veg fyrir að framleiðendur eða innflytjendur lyfja geti haft áhrif á hvaða lyf lækn- ar skrifa upp á fyrir sjúklinga sína. í þeim er meðal annars tekið fram að heimilislæknar skuli hafna ferðum ef þær ráðstefnur sem upp á er boð- ið auka ekki þekkingu þeirra um- fram það sem þeir geta aflað sér með lestri sérhæfðra tímarita. Auk þess er tekið fram að heimilslæknar taki ekki konur sínar, eða aðra gesti, með í slíkar ferðir. YFIRLÆKNAR KYNNA SÉR SKALLAMEÐAL Húðsjúkdómalæknar eru ekki í Félagi heimilislækna. Þeir þrír læknar sem fóru á ráðstefnuna um skallameðalið í Kaupmannahöfn voru því ekki að brjóta reglur síns félags. Engu að síður hljóta slíkar ferðir að vera gagnrýnisverðar. Tveir af þessum læknum eru yfir- læknar á opinberum spítölum. Jón Guögeirsson er yfirlæknir á húð- sjúkdómadeild VífUsstaöaspítala og Jón Hjaltalín Ólafsson er yfirlæknir á húð- og kynsjúkdómadeild Heilsu- verndarstööuar Reykjauíkur. Þeir sem hafa skalla koma sjaldan til meðferðar á þessar deildir. Hins vegar eru lyf frá Upjohn, sem fyrir- tækið Lyf hf. í Garðabæ hefur um- boð fyrir, notuð þar. Upjohn er stórveldi í lyfjafram- leiðslu og Lyf hf. er eitt stærsta fyrir- tækið í lyfjainnflutningi hérlendis. HRIKALEGAR AUKAVERKANIR Það lyf sem hér um ræðir, Lonnot- en, hefur hingað til verið notað gegn háum blóðþrýstingi. Hjá sér- fræðingi í hjartasjúkdómum fékk Helgarpósturinn þær upplýsingar að þetta lyf væri einungis notað ef um mjög hættulegan þrýsting væri að ræða og öll önnur lyf hefðu brugðist. Ástæðan fyrir því er sú, að þessu lyfi fylgja miklar aukaverkanir. Hugsanleg notkun þess gegn skalla kom einmitt í ljós við inntöku þess gegn háum blóðþrýstingi. Sjúkling- um óx mikið hár um líkamann, á ólíklegustu stöðum. En hárvöxtur- inn er einungis ein af aukaverkun- unum. Þeir sjúklingar sem taka lyfið við blóðþrýstingi þurfa að taka inn mikið magn af öðrum lyfum til að slá á aukaverkanirnar. Þeir þurfa auk þess að gangast undir gífurlega kostnaðarsamar blóðrannsóknir. Lonnoten frá Upjohn Þetta lyf hefur verið notað gegn hóum blóðþrýstingi í neyðartilfellum. Ein af aukaverkunum þess er mikill hárvöxtur. Upjohn hefur nú reynt að markaðs- setja lyfið sem skallameðal. Fyrir stuttu var þremur íslenskum læknum boðið til Kaupmannahafnar yfir helgi til að hlýða á þriggja stunda fyrirlestur um þetta lyf. Upjohn stóð allan straum af þeirri ferö. „Þegar ég var uitgur var ekki nema eitt og eitt l|óoskáld á stangli, nú eru skald á hverju strái. Það ntá segja að þetta sé ntikil breyting/# ggggggggigggggBggggggggBIBgggggi Sigfus Daöason, „Ég tel að það hafi veriö unniö skipulega aö því á fundinum aö koma í veg fyrir aö ég næði kjöri sem fulltrui á landsfundinn." Pröstur Ásmundsson, fyrrverandi formaöur Alþýðubandalags- félagsins ó Akureyri. „Ég kem á landsfund meö breið- an stuöning og má vera að það hafi áhrif á fulltrúavaliö." Sigríöur Stefánsdóttir, bœjarfulltrúi og frambjóöandi til formanns Alþýöubandalagsins. „Ég skil ekkert i þvi að ráðherr- ann skuli ekki standa við giidandi lög um úthlutun lána, það er hans hlutverk." Halfdór Blöndal, þingmaöur Sjólfstœöisflokks. „Það er ekkí hægt að gera kjara- samninga og koma siðan til rikisins og segja: Elsku mamma, lækkið þið gengið fyrir okkur." Porsteinn Pélsson, forsaetisráöherra. „Mikili viðskiptahalli er ávallt vísbending um að gengið sé of hótt skráð." Þórarinn V. Pórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins. „Skipulag launþegahreyfingar- innar er slys, sem er kjarabarótt- unni í raun fjötur um fót." Hrafnkell A. Jónsson, „Verkalýðshreyfingarinnar biður þó ekki annar kostur en leggja þungann á beinar kauphækkanir og sjálfvirkt vísitölukerfi." Ásmundur Stefónsson, forseti AlþýÖusambandsins. „Sú spurning vaknar; er þetta vegna mjög árangursríkrar sölu- mennsku? — sem ég held aö það sé — eða vegna þess aö þörf Islend- inga fyrir svefnlyf er svo miklu meiri en annarra þjóða." Guöjón Magnússon, aöstoöarlandlæknir. „Eins og hverjum öðrum flækingi hefur mér verið úthýst ó íslandi vegna þess að ég vildi ekki sænga hjá dvergnum sem þar stjórnar öll- um skemmtanaiðnaöinum." Leoncie, poppsöngkona. „Almennt þurfa launþegar ekki að reikna með kauphækkunum meira en orðið er." Víglundur Poretoinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda. Notkun þessa lyfs hefur hingað til verið bundin við sjúkrahús, en heimilt er að afhenda lyfið í apótek- um gegn lyfseðlum sérfræðinga í hjartalækningum. Það er mjög dýrt. Mánaðar- skammtur fyrir sjúkling með of há- an blóðþrýsting kostar um 20 þús- und krónur. Þegar þau lyf sem tekin eru til þess að slá á aukaverkanir eru tekin með getur mánaðar- skammtur farið upp í 40—60 þús- und krónur. Það er Tryggingastofnunin sem greiðir megnið af þessum fjárhæð- um. Sjúklingurinn greiðir einungis fasta upphæð eins og fyrir önnur sérlyf. Sú upphæð breytist ekki eftir innkaupsverði lyfsins. UPJOHN BORGAÐI BRÚSANN Sú útgáfa af lyfinu sem ætlað er að lækna skalla hefur ekki fengist skráð hér á landi. Þar sem hún er í vökvaformi og borin á höfuðleðrið má ætla að aukaverkanir af henni séu minni en þegar lyfið er tekið inn. Þrátt fyrir það hefur lyfið enn hvorki fengist skráð í Bandaríkjunum né Bretlandi. Danir munu hins veg- ar hafa sett þetta lyf á skrá hjá sér. En hvað eru yfirlæknar á húðsjúk- dómadeildum hins opinbera að gera til Danmerkur að kynna sér þetta lyf eina morgunstund? Það verður að teljast ólíklegt að þessar deildir fáist við skallalækningar í framtíðinni. Samkvæmt heimildum Helgarpóstsins hafa allar upplýsing- ar um það legið á lausu í fagtímarit- um húðlækna í langan tíma. Auk þess má benda á, að þar sem lyfið er óheyrilega dýrt er ólíklegt að það fáist niðurgreitt af Tryggingastofn- un, sem skallalyf. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfj- um hf. stóð framleiðandinn, Upjohn, allan straum af þessari kynnisferð læknanna til Kaup- mannahafnar. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.