Helgarpósturinn - 12.11.1987, Side 16
Frá vinstri: Einar Sigurðsson og Haraldur Árnason í hrókasamræöum.
Inga Guðmundsdóttir, Steinunn Jónsdóttir og Steinunn Jónsdóttir (sést í baksýn) ásamt óþekktri
konu fyrir miöju.
Laugardaginn 7. nóvember síðastliðinn hittist í Domus
Medica glæsilegur hópur af ,,fermdum meyjum og sveinum
1937“ eins og stendur í kirkjubókum Reykjavíkur, íþvískyni
aö minnast 50 ára fermingarafmœlis. Eins og búast mátti við
var glatt á hjalla og miklir fagnaðarfundir enda höfðu sumir
ekki hist í hálfa öld. Ljósmyndari HP lét sig ekki vanta á stað-
inn til að mynda fermingarbörnin á góðri stundu.
Móa Tvíburasysturnar Ólöf og Ásdís Ríkharðsdætur ásamt Steinunni Jónsdóttur á góðri stundu.
Jónína Niljóníusardóttir, Steinunn Jónsdóttir, Hjördis Einarsdóttir og Kristjana Brynjólfsdóttir
rifjuðu eflaust upp margar skemmtilegar minningar við þetta tækifæri.
Veitingar voru á boðstólum og hér sjást þær Unnur Jónasdóttir, Hjördís Einarsdóttir og Steinunn
Jónsdóttir við hlaðborðið.
Karlmennirnir létu sig ekki vanta á staðinn. Hér eru þeir Jón Kvaran tæknifulltrúi, Haraldur Árna-
son ráðunautur, Einar Stefánsson og Loftur Loftsson.
16 HELGARPÓSTURINN