Helgarpósturinn - 12.11.1987, Page 40
Þ
að ætlar að verða skammt
stórra högga á milli hjá Hæstarétti.
Bók Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar, „Deilt á dómarana", hefur að
vonum vakið athygli. Jón gagnrýnir
réttinn þar fyrir að draga taum ríkis-
ins og bera mannréttindaákvæði
stjórnarskrárinnar fyrir borð. Eftir
nokkra daga mun síðan nýtt hefti
tímarits laganema, Úlfljóts, koma
út. í þessu hefti er að finna grein eft-
ir Sigurð Gizurarson, bæjarfógeta
á Akranesi. í henni ræðst Sigurður á
Hæstarétt af miklum krafti. Sigurð-
ur rekur mál ákæruvaldsins gegn
Jóhanni Þóri Jónssyni og kemst
meðal annars að þeirri niðurstöðu
að Hæstiréttur hafi fundið Jóhann
sekan fyrir að hafa selt skuldabréf,
sem hann átti þó sjálfur. Sigurður
gagnrýnir því réttinn fyrir að hafa
ekki metið sönnunargögn rétt. . .
l uppboðsrétti í Reykjavík hefur
Markús Sigurbjörnsson borgar-
fógeti nú til meðferðar tvær upp-
boðsbeiðnir vegna vangreiddra af-
notagjalda Ríkisútvarpsins.
Hvorri tveggja þesssara beiðna hefur
verið mótmælt vegna þess að krafist
er uppboðs til fullnustu greiðslu inn-
heimtulauna til lögmanns, auk af-
notagjaldanna sjálfra. Helgarpóst-
urinn hefur nokkrum sinnum fjallað
um þessa aðferð Ríkisútvarpsins við
að innheimta afnotagjöldin, en það
er skoðun margra að hún fái ekki
staðist fyrir lögum. Jón Oddsson
hæstaréttarlögmaður flytur mál
annars þeirra sem mótmæla, en
Haraldur Blöndal hæstaréttarlög-
maður flytur hitt málið. Haraldur er
einmitt varamaður í útvarpsráði. . .
Góða
helgi!
Þú átt
■ þaö skiliö
OBO PIZZAHl Sl D
Grensásvegi 10, 108 R.
S: 39933
Amerískir bðar 02 hjól
Flytjum inn flestar gerðir evrópskra mótorhjóla frá Bandaríkjunum
Örugg og heiðarleg viðskipti
OPIÐ FRÁ 10 - 18 VIRKA DAGA
OG LAUGARDAGA FRÁ 9-16
Amerískir bílar og hjól
Skúlatúni 6, 3. h., 105 Reykjavík. Sími: 91-621901. Telefax: 91-621896
VORUM AÐ OPNA SKRIFSTOFU AÐ SKÚLATÚNI6,3. HÆÐ
SÉRHÆFUM OKKUR í INNFLUTNINGI
Á BÍLUM OG MÓTORHJÓLUM FRÁ USA
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
ALLIR BÍLAR OG MÓTORHJÓL
YFIRFARIN AF SÉRFRÆÐINGUM
40 HELGARPÓSTURINN