Helgarpósturinn - 04.02.1988, Page 27
ÁRIÐ 1987 KEYPTU MENN SÉR BÍLA OG ÞVOTTAVÉLAR. I FYRRA
VANN FÖLK SÉR INN MIKLA
PENINGAOG EYDDI ÞEIM JAFNÓÐUM. ÞETTA VAR VERALDLEGT
ÁR, ÓVENJULEGT ÁR MEÐ
NÝRRI STJÓRN OG KRÖFUM; MESTAN PART AÐ HAFA ÞAÐ
GOTT, SUMPART AÐ GERA
ÞAÐ GOTT. OG AF ÞVI LIST VAR ENNÞÁ TIL VAR HÚN GÓÐ OG
GILD. ÞANIN EINS OG ALLT
ANNAÐ — OG KEYPT — KEYPT DÝRUM DÖMUM.
ÁBERANDI
MÁLARINN Louisa Matthíasdóttir.
íslenskt landslag með nýjum Jór-
víkuraugum.
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN Friðrik
Þór Friðriksson. „Frægð mín kemur
að utan." Locarno — Lúbeck...
RITHÖFUNDURINN Vigdís Gríms-
dóttir. Kaldaljos: ... og það birtir yfir
íslenskum skáldskap. Frásagnargleði
og lipurð.
NÝTT FÖLK
LEIKSKÁLDIÐ Birgir Sigurðsson.
Dagur vonar — ste rkt, hrífandi, djúpt.
Sigur íslensks leikhúss.
SÖNGVARINN Kristján Jóhannsson.
Kominn í höfn. Skemman — La Scala.
Stóð við stóru orðin.
HALLMAR Sigurðsson — nýr leikhússtjóri við
Tjörnina. Hann tók við af félaga sinum Stefáni
Baldurssyni leikstjóra.
BERA Nordal listfræðingur er orðin forstöðu-
maður Listasafns íslands, en dr. Selma Jóns-
dóttir, sem féll frá á árinu, hafði gegnt
embættinu frá þvi safnið hóf starfsemi á önd-
veröum sjöunda áratugnum.
ARNÓR Benónýsson leikari tók við for-
mennsku hjá Bandalagi íslenskra listamanna
á árinu, en fyrirrennari hans var Birgir Sigurðs-
son rithöfundur.
GUNNAR B. Kvaran hefur komið sér fyrir á
Kjarvalsstöðum. Eftir merkilegt starf í Ás-
mundarsafni settist listfræðingurinn í stól
Einars Hákonarsonar, forstöðumanns á Mikla-
túni.
HELGARPÓSTURINN B-27