Helgarpósturinn - 04.02.1988, Page 36

Helgarpósturinn - 04.02.1988, Page 36
Myndlykill kostar nú kr. 14.990,- (st.gr. verð) Þú færð myndlykil lánaðan til reynslu. Nú geturðu fengið myndlyki! að Stöð 2 lánaðan heim. Haft hann að láni í 10 daga, horft á alla dagskrá Stöðvar 2 og sannreynt hvort þér líkar. Að þeim tíma liðnum ákveður þú, hvort þú viljir eignast myndlykilinn eða ekki. Viljirðu eignast hann, þá greiðirðu hann. Viljirðu ekki eignast hann, þá skilar þú honum aftur. Flóknara er það ekki. Alls engar skuldbindingar, en skilatryggingar er óskað. Svona er framkvæmdin... Til þess að framkvæmdin fari ekki úr böndum, er nauðsynlegt að taka fyrir eitt ákveðið byggðasvæði í senn. Byrjað verður á höfuðborgarsvæðinu. í þættinum 19:19 í kvöld munum við draga um hvaða íbúðahverfi á þess kost að hefja leikinn. Þeir íbúar þess hverfis sem óska, geta haft samband við Heimilistæki hf. (sími 691500) og pantað sér myndlykil. Sé þess óskað er hægt að fá myndlykilinn heimsendan og uppsettan, þótt það gæti tekið eilítið lengri tíma. Annað íbúðahverfi tekur svo við eftir 2 vikur. Svona gengur leikurinn koll af kolli. Allar frekari upplýsingar eru veittar í símum 691500 (Heimilistæki hf.) og 673777 (Stöð 2). ÞADB!G0TTAðG{TAVAUÐ B-36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.