Helgarpósturinn - 04.02.1988, Qupperneq 42
Þórdís Geirsdóttir sigraði í mfl.
kvenna.
Frammarar urðu bikarmeistarar í
kattspyrnu karla með 5—O-sigri á
Viði í úrslitaleiknum. Víðismenn
höfðu áður slegið út bæði Val og KR.
ÍR-ingar unnu sinn 16. sigur í röð
í bikarkeppni frjálsfþróttamanna,
nú var sigurinn í naumasta lagi,
munurinn aðeins eitt stig.
September
fslenska knattspyrnulandsliðið
vann tvo frábæra sigra á Norð-
mönnum i undankeppni EM. Fyrst
hér á Laugardalsvelli, 2—1, en síðan
í Noregi, 1—0, þar sem Atli Eðvalds-
son fyrirliði skoraði sigurmarkið í
beinni útsendingu. Þá sigraði (s-
lenska ÓL-liðið í knattspyrnu
A-Þjóðverja, 2—0, á Laugardalsvelli
f bráðskemmtilegum leik.
Valsmenn urðu fslandsmeistarar í
knattspyrnu. Víðir og FH féllu í 2.
deild en f þeirra stað koma „spútnik-
liðið" Leiftur frá Ólafsfirði svo og
Vfkingar. Skagastúlkurnar urðu
fslandsmeistarar kvenna en Vals-
stúlkurnar bikarmeistarar. Breiða-
blik féll f 2. deild f kvennaflokki, en
liðið er margfaldur íslandsmeistari
frá fyrri árum.
Vaismenn urðu Reykjavíkur-
meistarar í handknattleik en Fram
sigraði í kvennaflokki.
Pétur Ormslev var kjörinn besti
knattspyrnumaður 1. deildar og
Rúnar Kristinsson sá efnilegasti f
hófi sem leikmenn héldu að loknu
erfiðu móti. Pétur hlaut einnig gull-
skóinn fyrir að verða markahæsti
leikmaður fslandsmótsins.
fslensku liðunum gekk misvel f
fyrri leikjum fyrstu umferðar í
Evrópumótunum í knattspyrnu.
Skagamenn gerðu jafntefli við
Kalmar frá Svíþjóð uppi á Skaga en
Valsmenn gerðu 0—0-jafntefli gegn
Wismute Aue í A-Þýskalandi.
Frammarar töpuðu fyrir Sparta Prag
á Laugardalsvelli.
Vfkingur og Stjarnan komust f
aðra umferð í Evrópukeppninni í
handknattleik en Blikarnir féllu úr
keppni fyrir danska liðinu HIK.
Október
Valsmenn féllu úr leik í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu ásamt
Fram og Skagamönnum. Valsmenn
gerðu 1—1-jafntefli við Wismute,
Fram tapaði fyrir Sparta, 0—8, og
Skagamenn fyrir Kalmar, í fram-
lengdum leik, 0—1.
Guðrún Sæmundsdóttir var kjörin
besti leikmaður 1. deildar kvenna.
Ólympfulandslið fslands f knatt-
spyrnu tapaði fyrir Portúgal, 1—2, á
útivelli og KR varð Reykjavíkur-
meistari í körfuknattleik karla en ÍS
í kvennaflokki.
Gunnar Gíslason og félagar hjá
Moss urðu norskir meistarar í knatt-
spyrnu.
íslenska handknattleikslandsliðið
tapaði fyrir A-Þjóðverjum í úrslita-
leik á fjögurra landa móti f Sviss en
U-19 ára landsiiðið í handknattleik
sigraði glæsilega á móti í V-Þýska-
landi. Knattspyrnulandsliðið tapaði
hins vegar, 0—2, fyrir Sovétmönn-
um f lokaleik sfnum f undankeppni
EM. fslendingar enduðu þó í 4. sæti
í riðlinum á undan Norðmönnum.
Nóvamber
Stjarnan féll úr leik í Evrópu-
keppninni í handknattleik er liðið
tapaði fyrir Urædd frá Noregi á úti-
mörkum. Víkingar unnu hins vegar
Kolding frá Danmörku og eru
komnir í 3. umferð þar sem þeir
eiga við CSKA Moskva frá Sovétríkj-
unum.
fsienska landsliðið í handknatt-
leik sigraði Pólverja létt, 28—21, í
Höllinni, en tapaði síðan daginn eft-
ir (fastir liðir eins og venjulega).
Þessi lið spiluðu síðan á móti á Ak-
ureyri ásamt ísrael og Portúgal og
þar unnu íslendingar sigur á PÖI-
verjum í úrslitaleik. íslendingar
unnu til tvennra verðlauna á NM í
karate. Jónína Olesen og Árni Ein-
arsson voru þar að verki.
Desember
Alfreð Gíslason ákvað að ganga til
liðs við KR í handknattleiknum
næsta vetur. fslenska landsliðið f
handknattleik tapaði fyrir Júgóslöv-
um og Norðmönnum á Polar Cup en
vann síðan Júgóslava í Höllinni
nokkrum dögum seinna. Júkkarnir
unnu sfðan seinni leikinn f Höllinni.
fslenska handboltalandsliðið U-21
árs spilaði i HM og vann annan ieik-
inn en tapaði hinum og hafnaði f
neðsta sæti. Mikil vonbrigði.
Ægir varð bikarmeistari í sundi.
íslendingar lentu með Sovét-
mönnum, A-Þjóðverjum, Austurrík-
ismönnum og Tyrkjum í undan-
keppni HM í knattspyrnu.
Handknattleikslandsliðið spilaði
gegn S-Kóreu í Höllinni. Vann fyrri
leikinn en tapaði þeim seinnil! Þá
spilaði liðið á móti f Danmörku og
tapaði fyrir Dönum í úrslitaleik.
AF ERLENDUM
ATBURÐUM
Af erlendum atburðum á árinu er
ekki mikið að segja nema fara f
gegnum alltof mörg smáatriði. Á
árinu voru hvorki Ólympíuleikar né
HM í knattspyrnu eða EM í knatt-
spyrnu. HM í handknattleik var
heldur ekki til staðar og eina veru-
lega stórmótið var HM f frjálsum, en
þar vannst afrek ársins er Ben John-
son sigraði Carl Lewis í 100 m hlaupi
á frábæru heimsmeti, 9,83 sek.
B-42 HELGARPÓSTURINN