Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 17.03.1988, Qupperneq 8

Helgarpósturinn - 17.03.1988, Qupperneq 8
TIMASKEKKJA Arkitektar krefjast niöurlagningar húsameistaraembœttisins. Engin lög um embœttid. Ársskýrslur eda yfirlit ekki til. Aukavinna Garöars Halldórssonar talin bitna á þjónustunni. Flugstööin og Listasafniö dropinn sem fyllti mœlinn? í kjölfar bruðlsins og skipulagsleysisins í tengslum við byggingu Flugstöövar Leifs Eiríkssonar og Listasafns ís- lands við Fríkirkjuveg gerast þær raddir nú æ háværari sem vilja stokka upp embætti Húsameistara ríkisins og helst leggja það niður með öllu. Af samtölum HP við fjöl- marga arkitekta að dæma eru þeir að missa alla þolin- mæði gagnvart embættinu og ekki síst gagnvart ofríki Garöars Halldórssonar húsameistara. Telja þeir embætt- ið úrelt orðið og óábyrgt; það hafi ítrekað gert sig sekt um ábyrgðar- og skipulagsleysi með alvarlegum afleið- ingum fyrir ríkið og ekki síður fyrir arkitektastéttina sjálfa. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON OG JÓN GEIR ÞORMAR Flugstöð Leifs Eiríkssonar Húsameistari ber mikla ábyrgð á framkvæmdunum, sem einkenndust af skipulagsleysi, sífelldum breytingum, sambandsleysi og bruðli. Það er einkar athyglisvert að embætti Húsameistara ríkisins flýt- ur um í lagalegu tómarúmi. Um embættið gilda engin lög, eins og gilda um önnur embætti á vegum forsætisráðuneytisins og almennt um flestallar stofnanir hins opin- bera. Upphafið að embættinu má rekja aftur til ársins 1903, þegar ráð- inn var sérfróður maður til þess að gera uppdrætti að opinberum bygg- ingum. Síðan hafa 5 menn gegnt þessu embætti, Þar af Garðar síð- asta áratuginn. Það eina sem gildir um embættið beint, er fátækleg reglugerð frá 16. ágúst 1973. Þar segir að verksvið e mbættisins sé tví- þætt. ENGIN LÖG — GÖMUL REGLUGERÐ í fyrsta lagi umsjá (viðhald, breyt- ingar) með ákveðnum opinberum byggingum, þ.e. embættisbústað forseta íslands, gestahúsnæði ríkis- ins, húsnæði Alþingis og Hæstarétt- ar, skrifstofuhúsnæði stjórnarráðs- ins, safnahúsum í Reykjavík og Þjóð- leikhúsinu. í öðru lagi frumathugun og áætl- anagerð varðandi opinberar bygg- ingar eftir því sem um semst milli embættisins og eignaraðila og er í reglugerðinni vísað í lög um opin- berar framkvæmdir frá 1970. Sam- kvæmt þeim lögum er frumathugun „könnun og samanburður þeirra kosta er til greina koma við lausn þeirra þarfa, sem framkvæmdinni er ætlað að fullnægjá' og skulu þar vera áætlanir um kosti sem fyrir hendi eru og rökstuðningur fyrir því hvaða kostur skuli valinn. í áætl- anagerðinni skal meðal annars vera falið eftirfarandi: Fullnaðarupp- drættir og tæknileg verklýsing, skrá um efnisþörf, nákvæm kostnaðar- áætlun og einnig tímaáætlun. í reglugerðinni frá 1973, sem enn er óbreytt, er kveðið á um að fast starfslið embættisins skuli vera húsameistari, 3 arkitektar auk inn- anhússarkitekts, 2 byggingatækni- fræðingar og byggingaeftirlitsmað- ur auk þriggja manna í almennum skrifstofustörfum, alls 11 manns. Nú eru auk húsameistara 11 arkitektar, 4 innanhússarkitektar, 2 bygginga- fræðingar, tæknifræðingur, verk- fræðingur, hönnuðurogtækniteikn- ari auk þriggja manna í skrifstofu- störfum, alls 26 manns. 8 HELGARPÓSTURINN MILLJARÐA- FRAMKVÆMDIR í störfum sínum er embættið fyrir löngu komið út fyrir þann ramma sem reglugerðin setti. Embættið hefur síðustu árin haft hin aðskilj- anlegustu verkefni á sínum snær- um, nefna má framkvæmdir við danska sendiráðið, fangelsið við Síðumúla, íslensku óperuna, flug- málastjórn og lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli og sundlaug Sel- foss, alls um 30 verkefni ár hvert, mörg af smærri gerðinni en önnur afar stór, svo sem flugstöðin fræga og Listasafnið. Verkefnum hefur í sjálfu sér ekki fjölgað, en samt hefur starfsmönnum fjölgað án þess að það eigi sér stoð í lögum eða reglu- gerðinni. Af öðrum stórum verkefnum sem húsameistari hefur hannað og séð að öðru leyti um á undanförnum ár- um má nefna Lögberg, sem kostaði yfir 100 milljónir króna, lœkna- og lannlœknahúsid (Tanngarð), sem er komið vel yfir hálfan milljarð króna, geddeild bandspítalans, sem sömu- leiðis hefur kostað yfir 500 milljónir króna, sjúkrahúsiö á Selfossi, sem kostað hefur yfir 200 miiljónir, og embættið átti drjúgan þátt í hönnun sjúkrahússins á Akureyri, sem hefur kostað a.m.k. 600 milljónir króna. Þá má nefna K-byggingu Landspít- alans og nýbyggingu Kennarahá- skólans. Listasafnið, sem átti sam- kvæmt áætlunum að kosta 200 milljónir, endar samkvæmt for- manni bygginganefndarinnar, Guö- mundi G. Þórarinssyni, í 300 milij- ónum og hefur Guðmundur beðið um sérstaka skýrslu um umfram- kostnaðinn. Og alþjóð er kunnugt um að flugstöðin við Keflavíkurflug- völl fór a.m.k. milljarð króna fram úr áætlun. EKKI EINU SINNI RÁÐHERRA Ekki er síður athyglisvert, að embættið gefur engar ársskýrslur út né yfirlit yfir unnin störf á hverju ári, ekki einu sinni grunnlýsingu á helstu verkefnum embættisins. Til samanburðar má nefna að Skipu- lagsstjórn ríkisins (þar sem húsa- meistari á sæti) á samkvæmt lögum að skila ráðherra sínum árlegri skýrslu um unnin störf, en skipu- lagsstjóri sér meðal annars um gerð skipulags- og deiliskipulagsupp- drátta og fylgist með störfum bygg- ingarnefnda. Hjá húsameistara er enga samantekt að fá, heldur vísað til einstakra ráðuneyta og annarra aðila um hin mörgu verk. Ekki einu sinni ráðherra fær skýrslu. Af eðlilegum ástæðum hefur framkvæmdin við flugstöðina verið mikið til umfjöllunar og þar átti húsameistari einmitt að vera sam- ræmingaraðili framkvæmda. En allri upplýsingagjöf um stöðu og gang framkvæmda var áfátt og áfangaskýrslur ekki gefnar út eftir 17. febrúar 1984. Eiginlegur bygg- ingastjóri verkefnisins var húsa- meistari, en í öllu kraðakinu þótti ástæða til „að setja hann af“ og ráða Jón Böövarsson. Ábyrgð húsa- meistara vegna framkvæmda þess- ara hlýtur að vera mjög mikil, að utanríkisráðherra slepptum. Garðar var aðalhönnuður byggingarinnar, höfundur ítrekaðra breytinga, valdi byggingarefni og innréttingar, bar ábyrgð á fjárhagsáætlunum, hafði yfirumsjón með gerð útboðsgagna, starfaði náið með byggingarnefnd og verktökum, sat í byggingarnefnd varnarsvæða og sat í skipulags- stjórn ríkisins, sem ítrekað fékk mál- efni flugstöðvarinnar á sitt borð. LÖNGU ÚRELT EMBÆTTI HP leitaði síðustu daga álits fjölda starfandi arkitekta á hinum frjálsa markaði um tilgang og frammistöðu húsameistaraembættisins. Ýmsum var mjög heitt í hamsi og af máli sumra að dæma má búast við aukn- um kröfum þeirra um að embætti þetta verði aflagt í núverandi mynd sinni, einkum þannig að hönnunarþáttur þess verði með öllu lagður af. í sömu andrá eru nefndar til skjalanna teiknistofa húsnæðis- stofnunar og teiknistofa landbúnað- arins. „Húsameistaraembættið er frá þeim tíma sem kunnátta á þessu sviði var á fárra hendi og þótti eðli- legt að ríkið tækist á við þessi verk- efni, sem einstaklingar höfðu ekki bolmagn eða þekkingu til. Nú eru kringumstæðurnar gjör- breyttar," sagði einn viðmælend- anna. „Hlutverk embættisins átti fyrir löngu að breytast í ráðgjafar- hlutverk, að hafa með höndum yfir- stjórn og stefnumarkandi hlutverk. En þeir halda áfram að teikna í sam- keppni við arkitekta á frjálsa mark- aðinum og það gefur augaleið, að það er erfitt fyrir þá að vera í sam- keppni við svona stórt embætti, sem tekur til sín þetta stórt hlutfall framkvæmda og mun meira en ger- ist víðast hvar í sambærilegum iöndum. Um leið er embættið svo til ábyrgðar- og aðhaldslaust." Flestir töldu einsýnt að óþarfi væri með ö!lu að embættið hefði hönnun á sinni könnu. „Nú eru á þriðja hundr- að arkitektar starfandi og á þriðja tug teiknistofa. Við getum annað flestum þeim verkefnum sem húsa- meistari tekur að sér.“ AUKAVINNA HÚSAMEISTARA Fyrir þremur árum var tekin til umræðu á Alþingi þingsályktunar- tillaga Stefáns Benediktssonar, fyrr- verandi alþingismanns og arkitekts, þess efnis, að leggja niður í núver- andi mynd embætti Húsameistara ríkisins. Aðeins Stefán tók til máls um mál þetta, sem síðan dagaði uppi í allsherjarnefnd sameinaðs alþingis, án þess að nokkur aðili væri beðinn um umsögn eða boð- aður á fund nefndarinnar til að gefa upplýsingar. í ræðu sinni á þingi sagði Stefán meðal annars að starf- semi embættisins væri óeðlilega niðurgreidd einmitt í Ijósi þess að þessa sérfræðinga væri ekki hægt að draga til ábyrgðar, enda gæti rík- ið ekki sótt sjálft sig til saka! „Byggingarkostnaður þeirra bygginga, sem húsameistara- embættið hefur staðið að, er óeðli- lega hár þar sem hægt er að bera hann saman við sambærilegar byggingar á frjálsum markaði og það er með öllu óeðlilegt að þeir að- ilar, sem sinna annars vegar embætti Húsameistara ríkisins og hins vegar störfum hjá embættinu, séu að meira eða minna leyti teikn- andi og vinnandi sem sérfræðingar og ráðgjafar fyrir einkaaðila út um borg og bæ. Ég er þá að tala um að Húsameistari ríkisins sinni þeim verkefnum, sem honum eru falin af yfirboðara hans, sem í þessu tilviki er forsætisráðherra, en sé ekki að teikna hótel eða atvinnubyggingar." BITNAR Á ÞJÓNUSTUNNI Hér átti Stefán við byggingar sem Garðar Halldórsson hefur teiknað, ýmist einn eða með öðrum (eins og Halldóri Jónssyni föður sínum eða Ingimundi Sveinssyni fornvini sín- um), meðfram embættisstarfi sínu: Viðbyggingar við Hótel Sögu, hús Eimskipafélagsins og Áburðarverk- smiðjunnar, Valhöll Sjálfstæðis- flokksins, Breiðablik og ótal einka- hús. Hélt Stefán því fram að þessi aukastarfsemi Garðars og annarra starfsmanna embættisins leiddi hreint og beint til þess að þjónusta embættisins við viðskiptavini sína væri „léleg og slök“. Þess vegna bæri að leggja þessa starfsemi niður. Flestir viðmælenda Helgarpósts- ins voru sammála um að einkavinna embættismannsins Garðars Hall- dórssonar væri með öllu óeðlileg og samræmdist í engu stöðu hans. „Það hafa margir bent á aukavinnu húsameistara, sem þykir óeðlileg, af því að þetta eru oft meiriháttar verkefni sem hann fæst við. Þetta getur ekki talist eðlilegt og er áreið- anlega óheppilegt fyrir alla,“ sagði einn viðmælenda blaðsins og annar taldi það arfleifð af misskilinni launajöfnunarstefnu að þessi auka- vinna væri liðin. „Það á að borga þessum embættismönnum gott kaup fyrir vinnu þeirra og það á að duga þeim. Það á ekki að líðast að menn séu á kafi í „prívatbisness“, sem hugsanlega kemur niður á embættisverkum þeirra." DROPINN SEM FYLLIR MÆLINN Staða embættis Húsameistara ríkisins innan kerfisins er einstök. Um embættið gilda engin lög, ábyrgðin er engin, aðhaldið hverf- andi, verksviðið óljóst. Embættið var stofnað vegna skorts á sérþekk- ingu en sú forsenda er löngu brostin og aðeins spurningin eftir hvort rík- ið eigi að standa í þessari starfsemi í harðri samkeppni við hinn frjálsa markað. Reynsla undanfarinna ára bendir eindregið til þess að löngu sé orðið tímabært að stokka embættið upp og marka því þrengri ramma. Og láta embættið gera árlega grein fyrir unnum störfum sínum! Fyrir þremur árum var gerð máttvana til- raun til að fá þingmenn til að huga að þessum hlutum, en tillaga Stef- áns Benediktssonar var ekki einu sinni rædd á þingi og hlaut enga um- fjöllun í þingnefnd. Reynslan með flugstöðina og listasafnið hlýtur að vera dropinn sem fyllir mæl- inn. Og í ljósi þess að engin lög gilda um embættið þarf til niðurlagning- ar þess ekki annað en eitt „penna- strik" forsætisráðherra!

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.