Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 21
v ið sögðum frá því 1 siðasta blaði hvaða popphljómsveitir væri verið að reyna að fá á Listahátíð í sumar. Eins og við skýrðum frá er það staðfest að hingað koma sveit- irnar Blow Monkeys og Christ- ians, sem er efnileg hljómsveit frá Liverpool og hefur vakið nokkra at- hygli að undanförnu. Enn standa yf- ir þreifingar varðandi Whitesnake og Jethro Tull og er allt eins líklegt að þær sveitir komi. Nýjasta nafnið og jafnframt það stærsta sem verið er að athuga með er stórsöngvarinn Sting sem er án efa eitt stærsta nafnið í poppbransanum í dag. Eins og menn muna var Sting burðarás- inn í hljómsveitinni Police á sínum tíma en hefur síðan hún hætti verið einn á báti og gert afar athyglis- verða hluti. Hann er einnig þekktur af kvikmyndaleik og ekki síst fyrir baráttu sína með samtökunum Amnesty International. Ef hann kemur má fcu-a að rifja upp orðtakið um hvalreka á fjörur. . . A hausti komandi verður haldin á vegum sjálfstæðisfé- félaganna í Reykjavík sérstök stefnuskrárráðstefna og verða ýmis stefnumál flokksins tekin fyrir og endurskoðuð, en þegar er hafinn undirbúningur að þessari ráðstefnu. Jón Magnússon, lögmaður og varaþingmaður flokksins í Reykja- vík, hefur umsjón með skipulagn- ingu þessa starfs. Ekki er talið ólík- legt að áhersla verði lögð á neyt- endamái og þéttbýiissjónarmið á ráðstefnu þessari og telja ýmsir að það myndi e.t.v. ýta enn frekar undir þá bresti sem eru á milli fylkinga sjálfstæðismanna af landsbyggðinni og af höfuðborgarsvæðinu og velta menn því fyrir sér hver örlög lands- byggðarþingmannsins Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðis- fiokksins og forsætisráðherra, yrðu, ef til átaka kæmi á milli höf- uðborgarsvæðisins og landsbyggð- arinnar... egar flestir fara heim að sofa halda aðrir áfram ýmiss konar at- vinnustarfsemi hvort sem tilskilin leyfi eru fyrir hendi eðaekki. Þann- ig var tilkynnt í Hollívúdd undir lok skóladansleiks, milli 2.30 og 3 síð- astliðið fimmtudagskvöld, að gest- um staðarins væri boðið til áfram- haldandi skemmtunar í Armúla 20, þar sem var unglingaskemmtistað- urinn Top Ten. Þeir sem þangað fóru, fullvissir um að sér væri boð- ið, urðu fyrir vonbrigðum því að í dyrunum stóð maður sem vildi fá 200 kr. og stakk peningunum í vas- ann jafnóðum og fólk borgaði en af- henti þeim er inn fóru ekki miða. Samkvæmt gildandi reglum er ólögiegt að hafa opna skemmti- staði á þessum tíma auk þess sem af- henda á fólki miða og greiða síðan rúllugjald til ríkisins. En hvað gera menn ekki fyrir peninginn. . . átt eitt hefur heyrst af hluta- fjáraukningu þeirri sem fyrirtækin Smjörlíki og Sól hf. hugðust beita sér fyrir. Nú heyrum við á HP, að aukningin gangi treglegar en svart- sýnir menn gerðu ráð fyrir. Fyrir- tækin, sem eiga mikil viðskipti við Iðnaðarbanka, munu standa held- ur illa og eru menn í bankanum og eins í Seðlabanka uggandi um hver áhrif erfiðleikar Smjörlíkis og Sólar gætu hugsanlega haft á stöðu Iðn- aðarbankans. Binda menn vonir við að Davíð Scheving Thorsteins- S .... _. tveir fimmtíu og tveir er þín leið til aukinna viðskipta. . . Nýr auglýsingasími 625252 Ef þúerl í vafa um hvaða ávöxtunarleið er hagstæðust sparifé þínu, lcynntu þér þá kosti spariskírteina ríkissjóðs einhverja áhættu með sparifé mitt? Ávöxtun sparifjár með spariskírtein- um ríkissjóðs fylgir engin áhætta. Að baki þeim stendur öll þjóðin og ríkis- sjóður tryggir fulla endurgreiðslu á gjalddaga. Slíkt öryggi býður enginn annar en ríkissjóður. innlent lánsfé og draga því úr erlendri skuldasöfnun. Þetta gerir spariskírt- eini ríkissjóðs að enn betri fjárfest- ingu. Hvernig ávaxta ég sparifé mitt, svo það beri háa vexti umfram verðtryggingu? 8,5% ársvöxtum umfram verðtrygg- ingu. Ríkissjóður býður nú til söiu þrjá flokka verðtryggðra spariskírt- eina: 1» Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 2 ár með 8,5% ársvöxtum. 2. Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 3 ár með 8,5% ársvöxtum. 3. Hefðbundin spariskírteini með 7,2% ársvöxtum. Binditíminn er 6 ár en lánstíminn allt að 10 ár. Að binditíma liðnum eru skírteinin innleysanleg af þinni hálfu og er ríkissjóði einnig heimilt að segja þeim upp. Segi hvorugur skírteinunum upp bera þau áfram 7,2% ársvexti út lánstímann, sem getur lengst orðið 10 ár. Verðtryggð spariskírteini til sölu núna: Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi í.n.D 2 ár 8,5% 1. feb ’90 l.fl. D 3 ár 8,5% l.feb '91 l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb'94-98 Með spariskírteinum ríkissjóðs getur þú ávaxtað sparifé þitt með allt að Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla- banka íslands og hjá löggiltum verð- bréfasölum, sem m. a. eru viðskipta- bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlar- ar. Einnig er hægt að panta skírteinin með því að hringja í Seðlabankann í síma 91-699863, greiða með C-gíró- seðli og fá þau síðan send í ábyrgðar- pósti. Hvað með tekju- og eignaskatt? Spariskírteini ríkissjóðs eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins og sparifé í bönkuni. Að auki eru spariskírteini RIKISSJOÐUR ISLANDS HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.