Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 22
DAGBÓKIN HENNAR DÚLLU OV'® ö\ »s«4- n.a-'4 “<i' \»09»'4 Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3, Sími 14820. Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3 AUGLYSIR: Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aðeins 15 minútur að fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt. Ath. eftirfarandi: Móttakan er í austurenda hússins, þar er bíllinn settur á færiband og leggur síðan af stað í ferð sína gegnum húsið. Eigendur fylgjast með honum. Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi há- þrýstiþvott, þar sem öll iausleg óhrein- indi, sandur og því um líkt, eru skoluð af honum, um leið fer hann í undir- vagnsþvott. Viðskiptavinir eru mjög ánægðir með þá þjónustu, því óhrein- indi safnast mikið fyrir undir brettum og sílsum. Síðan er hann þveginn með mjúkum burst- um (vélþvottur), þar á eftir kemur hand- þvotturinn (svampar og sápa). Hægt er að sleppa burstum og fá bílinn eingöngu handþveginn. Næst fer bíllinn i bónvélina og er þar sprautað yfir hann bóni og síðan herði. Að þessu loknu er þurrkun og snyrt- ing. 8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu í einu, t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti, þriðji í handþvotti o.s.frv. Bíll, sem þveginn er oft og reglulega, endist lengur, endursöluverð er hærra og ökumaður ekur ánægðari og öruggari á hreinum bil. Tíma þarf ekki að panta. Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta skipti til okkar undrast hvað margt skeður á stuttum tíma (15 mínútum). Kæra dagbók. Eg er svo spennt út af söngva- keppninni að ég er alveg að tryllast. Það er líka ekki talað um annað í skólanum... og hérna heima. Mamma á ekki orð yfir því að engin kona skuii eiga eitt einasta af þess- um tíu lögum — og pabbi fékk enn einu sinni að sofa í stofunni eftir að hann sagði að kellingar kynnu bara greinilega ekki að semja góð lög. Ég held að honum hljóti næstum að finnast gott að sofa á sófanum, því hann gat sko sagt sér það sjálfur að mamma myndi tryllast við svona yfirlýsingar. Líklega var hann þá að hefna sín á henni. Hún neitaði nefni- lega að taka pabba með sér á fimm ára afmæli Kvennalistans af hræðslu við að hann stæði upp og héldi eina af sínum kvenfjandsam- legu grínræðum, sem enginn hlær að nema hann. Sjálf er ég nú ferlega spæld yfir því hvað kallarnir í keppninni eru dómgreindarlausir. Þeir eru hver um annan þveran að rembast við að syngja sín eigin lög — örugglega í von um að verða, .uppgötvaðir” í út- löndum og meika það á heimsmæli- kvarða — þó þeir séu með alveg vonlausar raddir. Ég er t.d. ógeðs- lega hrifin af sólarsömbu-laginu, en höfundurinn þarf náttúrulega endi- lega að syngja það sjálfur. Og dóttir hans með! Glætan... Eins og þetta hefði getað verið æðisgengið. Það verður sko að breyta reglunum næsta vetur og taka lögin af mönn- unum (eins og í hitteðfyrra) fyrst þeir fatta þetta ekki sjálfir. Annars tek ég þessa söngva- keppni svo alvarlega að ég er stíft að hugsa um að fara bara í bíó í stað- inn fyrir að fylgjast með úrslitunum. Þetta er orðið of mikið álag á tilfinn- ingalífið, vegna þess hvað mig lang- ar ofsalega til að ísland standi sig vel. Manni verður hreinlega óglatt. Mér varð nú reyndar solaið flök- urt á myndinni í Háskóiabíói, sem ég sá með Bellu vinkonu um dag- inn, svo bíó er kannski ekki rétta lausnin. Ég ætlaði að hressa stelpu- greyið við, af því að það er allt í rusli heima hjá henni — enn einu sinni. En þá reýndist myndin vera um framhjáhald, sem er akkúrat vanda- málið á heimiiinu. Þingmaðurinn, sem fiutti til þeirra eftir að pabbi Bellu stakk af með ungu stelpunni, er núna líka farinn að halda fram- hjá. Það var sem sagt rétt hjá ömmu á Einimelnum að þingmenn væru „óstabílir”. Hún sagði, að sumar konur héidu að það væri einhver klassi að sofa hjá alþingismanni og þess vegna fengju þeir heil ósköp af „tilboðum”. Og enginn þeirra hefði móralskan styrk til að neita svoleið- is til lengdar, því stjórnmálamenn væru hégómlegustu verur í heimi. Framhjáhaldsmyndin var að vísu um lögfræðing, en ekki þingmann, og hún var voða skrýtin. Það var t.d. alveg vonlaust að ákveða með hverjum maður ætti að halda. Ég vorkenndi eiginlega öllum persón- unum: Konan, sem var gift lögfræð- ingnum, átti ekki skilið að kallinn héldi framhjá henni. Konan, sem hann hélt framhjá með, átti ekki skilið að lögfræðingurinn gæfi skít í hana — fyrst hann var á annað borð að sofa hjá henni. Og lögfræðings- ræfillinn átti ekki skilið að lenda í svona rosalegu veseni út af einu litlu framhjáhaldi. En það gengur ekki upp að allir séu fórnarlömb í einu... Svo var myndin heldur ekkert eins spennandi og þessir blaðadómarar voru búnir að segja, en ég var þó næstum búin að kasta upp þegar saklausum kanínum og börnum var blandað í málið. Bless í bili. Mynd að byrja í sjón- varpinu. (Mamma segir, að augun í mér verði bráðum ferköntuð...) Dúlla. Skelltu hvorki skuld á hálku eða myrkur. Það ert þú sem situr við stýrið. y UMFERÐAR RÁÐ nm LADA-EIGEDIDUR eru hvattir til að kynna sér verðkönnun Verðlagsstofnunar 1 Vandið vöruvalið. • Gerið verðsamanburð Opið laugardaga frá 9-12 : BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR 22 HELGARPÓSTURINN Suðurlandsbraut 14, 107 Reykjavík, sími 681200

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.