Helgarpósturinn - 17.03.1988, Side 15
„Ég get ekki kallað þetta
mistök... ég kalla þetta synd. Ég
get engum nema sjálfum mér
um kennt." Þetta voru upphafs-
orð sjónvarpspredikarans
Jimmys Swaggart / beinni út-
sendingu einnar bandarísku
sjónvarpsstöðvanna. „Drama-
tískasta útsending fyrr og síðar,"
sögðu menn. Salarkynni trúarfé-
lagsins Family Worship Center í
Baton Rouge í Los Angeles voru
full affólki. Átta þúsund fylgis-
menn trúfélagsins voru komnir
til að hlusta á Jimmy Swaggart
svara þeim ásökunum sem á
hann höfðu dunið skömmu áður,
þess eðlis að hann hefði sést á
fremur sóöalegum mótelum
með vændiskonum.
„ÉG HEF SYNDGAÐ
GEGN ÞÉR GUÐ MINN"
Jimmy Swaggart sagði aldrei
beinum orðum í ræðu sinni hvað
það væri sem hann var sakaður
um. Oft féll rödd hans niður í
lágt hvískur, stundum brast hún
þegar tilfinningarnar virtust ætla
að bera hann ofurliði. Hann bað
ium fyrirgefningu Francis konu
sinnar, sem brosti og kinkaði til
hans kolli. Hann bað um fyrir-
gefningu sonar síns, Donnies,
sem hvíslaði hinum alkunnu
bandarísku orðum „I love you"
til föður síns. Hann bað um fyrir-
gefningu presta og trúboða
safnaðarins, fyrirgefningu ann-
arra sjónvarpspredikara í Banda-
ríkjunum og fyrirgefningu fylgj-
enda sinna um allan heim. Hann
talaði síðan beint til guðs síns
og sagði m.a.: „Ég hef syndgað
gegn þér Guð minn og það er
ósk mín að þitt dýrmæta blóð
muni þvo og hreinsa hvern blett
þar til ég hef fengið fyrirgefn-
ingu á þann hátt að þetta atvik
verði gleymt."
PREDIKARAR VÍKJA —
„LÉTTIR" SAGÐI
SWAGGART
Játning Swaggarts kom á
viðkvæmum tíma. Ekki aðeins
fyrir hann, heldur einnig alla aðra
sjónvarpspredikara, sem voru að
ná sér á strik eftir óvenjulega
erfitt ár 1987. Oral Roberts reið á
vaðið í fyrra er hann tilkynnti að
hann hefði fengið köllun þess
eðlis að honum bæri að safna 8
milljónum dollara eða „guð
myndi kalla hann heim". Síðan
komu Jim og Tammy Bakker,
'uppljóstrun á því að Jim hefði
látið 265.000 dollara renna í
kirkjusjóð til að hylma yfir kyn-
ferðislegt misferli. Því næst
komst upp um skuldafen þeirra
Bakkers-predikaranna og misferli
í peningamálum. Bakkerfól
Jerry Falwell umsjón þáttanna
en snerist síðan gegn honum og
ásakaði trúfélag hans um að
hafa gabbað sig, til þess að ná
yfirráðum í sjónvarpsþáttunum.
Það þykir ekki Ijóst hvort
predikun Swaggarts hafi verið
flutt í einlægni eða hvort hún var
í raun aðeins vel undirbúinn hluti
leikþáttar, samins til að bjarga
söfnuði hans og þeim 150 millj-
ónum dollara sem greiddar eru
til safnaðarins á ári hverju.
Swaggart hafði ráðist harkalega
gegn Bakker og Marvin Gorman,
einum skæðasta keppinauti
Swaggarts, þegar þeir voru
ásakaðir og þegar þeir svo voru
sviptir hempunni sagði hann að
það væri léttir að losna við slíka
predikara. En nú var röðin komin
að honum sjálfum.
FRAMKOMA
PREDIKARANNA
ÓKRISTILEG
Fylgismenn Swaggarts sýndu
honum flestir stuðning. En hvað
segja trúbræður hans hér á
landi? Gunnar Þorsteinsson hjá
Krossinum segist ekki þekkja til
þeirra fullyrðinga sem vitnað er í
hér fyrir ofan. „Það er margt í
amerískri kristni sem hefur allt
aðrar áherslur en við höfum hér,"
sagði Gunnar. „Þjóðfélagsupp-
bygging og viðhorf eru allt
önnur á ýmsum sviðum þannig
að við eigum erfitt með að skilja
þær erjur sem fram fara þarna á
bak við tjöldin. Ekki aðeins virð-
ist framkoma þessara manna
vera afar ókristi leg heldur einnig
breytni þeirra út á við og þau
viðhorf sem ríkja á milli þeirra.
Þau eru ekki í anda kristins
kærleika. Þetta er eins og slagur
eða stríð, þeir eru eins og
krakkar í sandkassaleik."
/ Time er sagt að ekki þyki
Ijóst hvort ræða Swaggarts hafi
verið flutt í einlægni eða hvort
hún hafi aðeins verið hluti af
„leikþættinum" — settum upp til
að bjarga kirkjunni.
„Það er auðvitað enginn mælir
á einlægni manna til. Þar til
annað kemur í Ijós — og ef
annað kemur í Ijós — taka menn
náttúrulega á móti þessari
beiðni um fyrirgefningu og verða
væntanlega við henni."
SEST EKKI í
DÓMARASÆTI
Fjárhæðirnar sem renna til
safnaðar Swaggarts og annarra
trúfélaga í Bandaríkjunum eru
meö ólíkindum. Eru svipaðar
peningaupphæðir í gangi hér á
landi?
„Nei, engan veginn. Við berj-
umst í bökkum og allt kirkjulegt
starf hér á íslandi hefur á brattan
að sækja fjárhagslega."
Þú leggur engan dóm á þetta
mál Swaggarts?
„Nei, ég get ekki sest í dóm-
arasæti. Hins vegar er það engin
spurning að framkoma predik-
aranna hvers í annars garð er
ókristileg. Þetta stríð og þessi
lögregluárátta þessara manna er
auðvitað í engu samræmi við
það sem þeir boða — og eiga að
boða."
Heldurðu að Jimmy Swaggart
hafipredikað af einlægni?
„Ég held það já. Ég held að ef
Jimmy Swaggart hafi ætlað sér
að verða ríkur og hafi verið að
þessu aðeins peninganna vegna,
þá hefði hann valið sér aðra leið.
Hann er til dæmis einn færasti
tónlistarmaður á sínu sviði, hann
selur milljón plötur á ári, ár eftir
ár, og bara það eitt myndi hafa
gert hann stórauðugan. Allar
þær tekjur hefur hann gefið inn í
starfið og hann hefur gefið
meira en nokkur annar inn í
þetta starf. Þetta er ekki fjár-
plógsstarfsemi af hans hálfu,
engan veginn."
ÁFÖLLIN HITTU
HVÍTASUNNUHREYF-
INGUNA FYRIR
Finnst þér of hart vera tekið á
máli Swaggarts?
„Ef Jimmy Swaggart hefur
syndgað og beðið um fyrirgefn-
ingu finnst mér það eðlileg fram-
vinda að hann víki um tíma og
komi síðan aftur. Jimmy tilheyrir
kirkjudeiid sem heitir Assembles
of God, sem er hvítasunnuhreyf-
ing í Bandaríkjunum, geysilega
öflug hreyfing sem 2,1 milljón
manna í Bandaríkjunum tilheyrir.
Jim Bakker og Marvin Gorman
tilheyra sömu kirkjudeild og fyrr-
nefnd áföll hafa hitt þá kirkju-
deild fyrir. Baptistar standa fyrir
utan og gagnrýna heiftarlega,
menn eins og Jerry Falwell og
fleiri. Hins vegar segir mér hugur
um að þessi kirkjudeild hafi
vaxið ákaflega fyrir tilstilli
Jimmys Swaggart, sem er þeirra
harðasti og mesti trúboði. Starf
hans var geysilega víðtækt og
öflugt og ég held að hugur hafi
fylgt máli þótt hann hafi átt við
veikleika að stríða. Ég undirstrika
það að Jimmy Swaggart gaf
meira til starfsins en nokkur
annar. Ef hann hefði aðeins
ætlað sér að verða ríkur gat
hann valið um margar leiðir til
þess. Jerry Lee Lewis og Jimmy
Swaggart eru systkinabörn og í
upphafi byrjuðu þeir saman á að
predika og syngja en leiðir skildi.
Jerry Lee Lewis fór út í áfengi
og eiturlyf, en Jimmy reyndi að
halda sér að Drottni og Guðs
vilja. Jimmy Swaggart fékk
tilboð um samning frá sama
plötufyrirtæki og Elvis Presley á
sínum tíma, en Jimmy Swaggart
leikur, eins og mörgum er kunn-
ugt, á píanó, The Golden Gospel
Piano, og hefur selt 14 eða 15
milljón plötur á undanförnum
árum. Hann er geysilega dýn-
amískur, bæði í predikun og
hljómlistinni."
Hvað finnst þér um banda-
ríska fjölmiðlun, til dæmis þann
hluta að birta myndir af vændis-
konunni sem Jimmy Swaggart
er sagður hafa verið með,
myndir af mótelinu o.s.frv.
„Mér finnst blaðamennska á
því plani þar sem tekin voru
viðtöl við vændiskonur og birt
umsögn þeirra vera komin á lágt
stig. Mér finnst þar verið að fara
undir yfirborðið."
ÁN FYRIRGEFNINGAR
ER ENGINN
KRISTINDÓMUR TIL
Hann á þá rétt á að fá fyrir-
gefningu?
„Að sjálfsögðu. Kristindómur-
inn stendur og fellur með boð-
skap fyrirgefningarinnar. Kristin-
dómurinn er ekkert annað en
fyrirgefning guðs inn í heiminn.
Ef fyrirgefning er ekki lengur til,
þá er heldur ekki kristindómur til
lengur. Ef þessi maður á ekki rétt
á fyrirgefningu, þá eigum við
það ekki heldur. Hann er veik-
leikamaður og hefur ekkert verið
að fela það í predikunum sínum.
Hann hefur hvað eftir annað lagt
áherslu á að hann sé maður sem
eigi við sín vandamál að glíma.
Hann hefur ekkert sett sig á
tindinn en hitt er annað mál að
til hans hafa verið gerðar
ómennskar kröfur. I Bandaríkj-
unum er margt það besta í
kristninni að finna og líka margt
það versta. Frelsið er mikið og
þar er mikil gróska á öllum
sviðum þannig að illgresið og
hið góða vaxa saman hlið við
hlið. Það hefur gerst að einhverju
leyti í lífi Jimmys Swaggart og
hann ekki náð að hreinsa nógu
vel út það sem hefur verið veik-
leiki í lífi hans, og það varð
honum að falli. En ég vænti þess
eindregið að menn sýni umburð-
arlyndi, kristinn kærleika og fyrir-
gefningu og Swaggart hefji störf
' ' //
„An fyrirgefn-
ingar er enginn
kristindómur til,‘
segir Gunnar
Þorsteinsson hjá
Krossinum —
Framkoma
predikaranna
hvers í annars
garð ókristileg.
Asakanir úr
öllum áttum.
„Hefur hitt
þennan ákveðna
söfnuð fyrir.“
Dóróthea Magnúsdóttir 101 Reykjavik,
Torfi Geirmundsson S17144
EG OSKfl EFTIR AD FA SENT KYNNINGARRIT
HIVlÍ MÉR AD KOSTNflÐARLflUSU
NAFN.
HANDMENNTASKOLI ISLANDS
Smii 27644 box 1464 121 Reykjavík
Handmenntaskóli Islands hefur kennt yfir 1250 íslending-
um bæöi heima og erlendis á síöastliðnum sex árum. Hjá
okkur getur þú lært teikningu, litameöferö og skrautskrift
- fyrir fulloröna - og föndur og teikningu fyrir börn í
bréfaskólafomi. Þú færö send verkfæri frá okkur, sendir
okkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttar til baka.
Þeim, sem minni tíma hafa, bjóðum viö uppá stutt
hæfileikapróf á þessum sviðum. - Biddu um kynningu
skólans meö því aö snda nafn og heimilisfang til okkar eöa
hringdu í síma 27644 núna strax, símsvari tekur við
pöntun þinni á nóttu sem degi. - Tímalengd námskeið-
anna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt,
hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er
tækifærið, sem þú hefur beöiö eftirtil þess aö lærateiknun
og skrautskrift á auðveldan og skemmtilegan hátt. Þú
getur þetta líka.
HEIMILISF..
NiJ Ijósmyndastofa
VANDAÐAR PASSAMYNDIR
BARN AMYN DATÖKUR
FERMIN G ARMYN DATÖKUR
TÖKUM EFTIR GÖMLUM MYNDUM
ÖLL ALMENN LJÓSMYNDUN
LJÓSMYNDIR
Ljósmyndastofa
í húsi Málarans Grensásvegi 11.
Sími 680150. RUT HALLGRÍMSDÓTTIR
LIÓSMYNDARI
HELGARPÓSTURINN 15