Helgarpósturinn - 17.03.1988, Side 39
FRETTAPOSTUR
Samnlngamá lin
Ýmsar blikur eru á lofti varðandi samningamálin sem
stendur og virðist svo sem átök geti orðið töluverð á vinnu-
markaðnum. Svotil öll verkaðlýðsfélög í landinu felldu ný-
gerða samninga VSÍ og VMSÍ og er því ljóst að hann skilar
engu í samkomulagsátt. Grindvískir vinnuveitendur riðu
síðan á vaðið og buðu verkafólki sínu mun betur en áður
hafði þekkst og samþykkti verkafólkið það tilboð. VSÍ neit-
aði hins vegar að samþykkja þá samninga. f Vestmannaeyj-
um hefur verkakvennafélagið Snót sett á yflrvinnubann og
verkalýðsfélagið þar hefur nú boðað verkfall. Dagsbrún hef-
ur sett löndunarbann á skip frá Vestmannaeyjum sem sam-
úðaraðgerð. Sömuleiðis hefur Alþýðusamband Norður-
lands ákveðið yfirvinnubann og bónusverkfall. Alþýðusam-
bönd landshlutanna hafa síðan verið að stinga saman nefj-
um og gera kröfur um að samningar fari fram , ,heima í hér-
aði“, enda getl fólögin ekki staðið undir því að senda samn-
inganefndir til Reykjavíkur þann tíma sem samningar geta
staðið yfir. Sáttasemjarl hefur orðið við þeirrl kröfu og
munu vinnuveitendur því þurfa að ferðast milli landshluta
til að semja við einstök svæðasamtök Alþýðusambandsins.
Það er þungt hljóð í mönnum — báðum megin borðsins, en
hins vegar heyrast líka þær raddir sem benda á fáránleika
samningstilraunanna, þar sem næstum hvergi sé greitt eftir
töxtum hvort eð er, og þar sem það er gert fái menn allskyns
bónusa og bætur ofan á kaupið. Kennarar hafa nú nýverið
bæst í hóp þeirra félaga sem hafa verið með aðgerðir og eru
þeir, sem endranær, afar óánægðir með kjör sín. Segja mik-
inn flótta úr stéttinni, benda á hvað það kemur niður á
kennslunni og menntun þjóðarinnar þar með. Launakjörin
eru að þeirra mati undirrót þessa flótta.
Fréttapunktar
• Nýleg hlustendakönnun á vegum Pólagsvísindastofnun-
ar leiddi í ljós að Stjarnan er sú útvarpsstöð sem flestir
hlusta á. Hins vegar kemst hún aðeins í 13% þegar mest er.
Bylgjan hefur farið halloka. Sömuleiðls rás 2, en hún er þó
að sækja í sig veðrið. Mest útvarpshlustun er þó enn sem
fyrr á fréttatíma Ríkisútvarpsins, fer upp í allt að 50% á
kvöldin. Ljósvakinn hefur minni hlustun en rás 1, kemst
varla upp úr núllinu. í sömu könnun kom í ljós að fréttir í
Ríkissjónvarpinu eru vtnsælasta sjónvarpsefnið. Frétta-
magasín Stöðvar 2,19.19, nær naumlega að vera með 10 vin-
sælustu sjónvarpsþáttunum, en hinir á topp tíu eru allir hjá
Ríkissjónvarpinu. í helld hefur dregið örlítið úr útvarps- og
sjónvarpsnotkun landsmanna þrátt fyrir melra val og fram-
boð.
• Feiknatap varð hjá Flugleiðum á síðasta ári og nemur það,
miðað við árið á undan, eitthvað um hálfum milljarði. Hins
vegar varð hagnaður á heildarrekstri félagsins vegna þess að
því græddist fé á sölu eigna. Það er Norður-Atlantshafsleiðin
sem er Flugleiðum fyrst og fremst fjötur um fót enda sam-
keppni á þeirri leið með eindæmum hörð. Flugleiðir hafa
ákveðið að bæta úr þessu með útgáfu jöfnunarhlutabréfa að
verðmæti tæpra 150 milljóna, sem er um helmingur núver-
andi hlutafjár.
• Arnarflug skilaði hagnaði á síðasta ári, sem er nýlunda í
rekstri félagsins. Árið áður nam tapið yfir 100 milljónum en
í ár var hagnaður tæpar 5 milljónir. Arnarflugsmenn hafa
líkt og Flugleiðlr ákveðið að auka hlutafé sitt, en um aðeins
lægri upphæð, eða 100 milljónir. Sömu upphæð og þeir
fengu inn á síðasta ári þegar hlutaféð var aukið.
• Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, vann sigur í kosn-
ingum til stúdentaráðs. Vaka fékk örfáum atkvæðum meira
en nýstofnuð samtök félagshyggjufólks, Röskva. Það dugöi
til að fá elnum fleiri fulltrúa í stúdentaráð en hins vegar
fékk hvor tveggja fylkingin einn fulltrúa í háskólaráð. Kjör-
sókn var um 50%
• Miklar umræður hafa að undanförnu staðið um Áburðar-
verksmiðjuna í Gufunesi, eða öllu heldur þann hluta henn-
ar sem notaður er til að geyma ammoníak. Menn telja marg-
ir alltof mikla hættu stafa af geymi þessum, enda myndi höf-
uðborgarsvæðið leggjast í rúst ef hann spryngi og vindáttin
væri „hagstæð”. Borgarráð hefur fundað um mállð og vlll
helst að verksmiðjan verði látin hverfa. Forsvarsmenn
hennar vilja hins vegar leysa mállð með því að byggja nýjan
geymi en borgarráð hefur ekki tekið ákvörðun um þá beiðni.
Meðal þeirra raka sem notuð eru gegn verksmiðjunni eru
þau að hún sé ómöguleg hvort eð er, geri ekki annað en halda
verði á áburði uppi og því ætti ríkið, sem er eigandi hennar,
einfaldlega að loka henni.
• Ráðhúslð, fyrirhugaða, í Reykjavík er enn sem fyrr í um-
ræðunni. Nýlega gerði Skáís skoðanakönnun þar sem kann-
aður var hugur Reykvíkinga til ráðhússins. í ljós kom að
meirihluti er fy lgjandi byggingu hússins og á þeim stað sem
því hefur verið valinn. Davíð Oddsson segir að bygging
fyrsta áfangans hefjist í byrjun næsta mánaðar.
• Nú eru tvær umferðir eftir af íslandsmótinu í handknatt-
leik. FH-lngar standa eftir sem áður best að vígi. Valur er í
öðru sætl. Gengl FH hefur komið á óvart þar sem liðið er að
uppistöðu ungt og reynslulítið. Þórsarar frá Akureyri eru
þegar fallnir, hafa ekki fengið stig. Hins vegar berjast þrjú
lið um á hæl og hnakka til að forðast fall í aðra deild, ásamt
Þórsurum; KA, Fram og ÍR. Það síöastnefnda stendur best
að vígi. Frammarar hafa þegar tryggt sér meistaratitilinn í
kvennaflokki, þrátt fyrir að mótinu sé lokið.
• Um þessar mundir stendur yfir alþjóðlegt skákmót á
Akureyri, sem haldið er í kjölfar Reykjavíkurskákmótsins.
Þegar þetta er skrifað stendur Sovétmaðurinn Gurevitsj best
að vígl, hefur fjóra og hálfan vinning. Jóhann Hjartarson er
sem stendur í öðru sæti, hefur fjóra vinninga en á óteflda
skák við Helga Ólafsson, sem var frestað í fyrstu umferð.
• Skartgripaverslun við Hallærisplanið varð heldur en ekki
fsrrir barðinu á fingraliprum um síðustu helgl. Einhver
braut rúðuna og hirti fjöldann allan af skartgripum og svo
þegar aðrir vegfarendur gengu framhjá létu þeir sömuleiðis
greipar sópa í búðarglugganum. Talið er að tjónið nemi um
700.000 krónum.
BÖN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÖS
veitir eftirtalda þjónustu:
tjöruþvott, djúphreinsun teppa
og sœta, mótorþvott, mössum
bónum og límum d rendur.
Opiö virka daga kl. 8—19.
Opið laugardaga kl.
10-16.
Bón- og þvottastööin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177
Drögum úr hraða ^
-ökum af skynsemi!
||UJ^ER0AR
þÆGILEGUR
þl 1- wMi I
LISTIKOIHINN!
OG SPENNANDI VERSLUNARMÁTI
TVEIR NÝIR AUKALISTAR
BVMAIl!!
Fulit nafn
Póstnúmer
Heimilisfang
I Nafn.nr:
I_______________
Ég undirritöuö/aöur óska eftir aö fá sendan nýja
pöntunarlistann i póstkröfu.
□ freemans+ □aukalistar
SENDIST TIL:
Greiöir
póstburöargjaldiö
Másetja
ólrimetkt ipóst
jGQQííulIQIjDi^
PONTUNARLISTINN BÆJARHRAUNI 14 220 HAFNARFJÖRÐUR
Pöntunarlistinn kostar 160 kr. ♦ póstburóargjald. o. *■
HELGARPÓSTURINN 39