Morgunblaðið - 08.09.1991, Side 25
ÍBÍÓ
Sex teiknimyndir vorti*
sýndar í kvikmyndahúsum
borgarinnar um síðustu
helgi. Sú besta er tvímæla-
laust Litla hafmeyjan í Bíó-
höllinni sem gerð er eftir
æfmtýri H.C. Andersens.
Hún er unnin í sterkri hefð
gömlu Disneymyndanna og
svíkur engan um indælis
skemmtun á hvaða aldri
sem hann er reyndar. Per-
sónusköpun, tónlist og
teiknun leikur í höndum
Disneymeistaranna.
Hundar fara til himna
og Leitin að týnda lampan-
um eru síðri en engu að
síður ágætís skemmtun
yngri áhorfendunum. í
Regnboganum eru þekktar
teiknisöguhetjur á boðstól-
um, Ástríkur gallvaski og
Lukku Láki og þar er einn-
ig boðið upp á teiknimynda-
safn. Þess má geta að
Regnboginn vinnur nú við
að setja íslenskt tal á
danska teiknimynd, Fugl-
astríðið í Lumbruskógi,
sem sýnd verður í bíóinu
um næstu mánaðamót.
Annars virðist þrjúsýn-
ingum hafa farið fækkandi
að undanförnu og buðu
aðeins þrjú kvikmyndahús
uppá þijúbíó um síðustu
helgi, Bíóborgin, Bíóhöllin
og Regnboginn.
35.000
á Hróa
Alls hafa nú tæplega
35.000 manns séð æfin-
týramyndina Hrói höttur:
Prins þjófanna í Regn-
boganum að sögn Andra
Þórs Guðmundssonar
rekstrarsljóra bíósins.
ÞÞá höfðu 49.350 manns
séð Dansar við úlfa um
síðustu helgi og er því von
á fimmtíu þúsundasta gest-
inum hvað úr hverju og sagði
Andri Þór að sá fengi óvænt-
an glaðning.
Af öðrum myndum er það
að frétta að aðsókn á Cyrano
De Bergerac með Gérard
Depardieu er komin í 8.000
manns og gangstermyndin
Glæpakonungurinn með
Christopher Walken er kom-
Sean Connery í gestahlut-
verki sínu í Hróa hetti.
in í 4.500 manns í aðsókn.
Kvikmyndahátíð Lista-
hátíðar verður haldin í Regn-
boganum eftir mánuð en
næstu myndir bíósins eru
gamanmyndin „High Spi-
rits“, hrollvekjan „Gravey-
ard Shift“ eftir sögu Step-
hens Kings og hasarmyndin
„Toy Soldiers".
Skuldbindingar
Parkers
Nýjasta mynd breska leikstjórans Alans Parkers heit-
ir „The Commitments" eða Skuldbindingar og segir frá
fátæku ungu fólki í N-Dyflin sem setur saman hljóm-
sveit er leikur bandaríska soul-tónlist.
Þetta er tíunda mynd leik-
stjórans sem frægur er
fyrir myndir eins og Miðnæt-
urhraðlestina,
Vegginn og
„Mississippi
Burning" svo
einhvetjar séu
nefndar. Hann
kallar „The
Commitments“
einfalda litla
mynd „og það
má vera að mörgum eigi eft-
ir að líka hún vel. Þess vegna
hef ég mikið dálæti á henni
... Og hún hefur þjóðfélags-
legt vægi. Ég meina, ég hef
aður,
utan
lega.
Þen
ekki gert Tortímandann 2.“
Myndin byggir á sögu
írska kennarans Roddys Do-
yles frá 1988.
AHs voru 1.500
ungir íbúar
Dyflinar reynd-
ir í hlutverkið
og hafa aðal-
leikaranir 12
sem mynda
hljómsveitina
aldrei
tveir smávægi-
em ekki kvik-
myndastjörnur. Kvikmynda-
stjörnur eru til vandræða,"
segir Parker.
Gielgud í
óskahlutverkinu
Sextán mínútur af nýjustu mynd breska leikstjórans
Peter Greenaways voru sýndar á síðustu kvikmynda-
hátíð í Cannes og vöktu þær mikla athygli. Vincent
Canby hjá „The New York Times“ sagði þær „stórkost-
legar“ og annar gagnrýnandi var svo hrifinn að hann
á að hafa lagt til að Greenaway hefði myndina ekki
lengri ef afgangurinn skyldi valda vonbrigðum.
Myndin heitir Bækur
Prosperós og er með
John Gielgud í aðalhlutverki
en það er reyndar honum
að þakka að myndin var
gerð. Hann hafði lengi lang-
að til að leika í bíóútgáfu
af Fárviðrinu, síðasta leik-
riti Shakespeares, og ræddi
það við leikstjóra eins og
Ingmar Bergman og Alain
Resnais. En það var ekki
fyrr en hann snæddi hádeg-
isverð með Greenaway fyrir
nokkru að skriður komst á
málið og 6 vikum seinna var
leikstjórinn tilbúinn með
handrit. Það gerði ráð fyrir
að Gielgud léki ekki aðeins
Prosperó heldur önnur hlut-
verk að auki.
Greenaway, sem þekkt-
astur er fyrir hina ágætu
en jafnframt lítt geðslegu
Aríel á þremur skeiðum lífs síus í mynd Peters Gre-
enaways, Bækur Prosperós.
mynd Kokkurinn, þjófurinn, draga af því ályktanir sem
kona hans og elskhugi henn-
ar, skrifar í kynningu með
myndinni: „Prosperó er síð-
asta stóra hlutverkið sem
Shakespeare skrifaði í síð-
asta leikritinu sem hann
gerði og þess vegna má
n.k. kveðju hans til leikhúss-
ins og túlkun hlutverka og
blekkingarleiks með orð-
um.“ Þess vegna á hlutverk-
ið svo vel við Gielgud, segir
Greenaway, en hann hefur
í 7 tugi ára starfað í leikhúsi.
MQRGUNBLAÐID
MENNINGARSTRAUMAR rVa-UcCE1 sLi-n.uui.K I9ði
KVIKMYNDIR
Hvab mebþýska kvikmyndagerb?
Arfiakar nýbylgjunnar
Þýskar bíómyndir hafa ekki margar komið hingað í
bíóin og reyndar hefur lítið frést af þýskri kvik-
myndagerð síðasta áratuginn. Helst að nafn Wim
Wenders hafi verið áberandi. Nú gefst kvikmyn-
daunnendum hins vegar tækifæri til að kynnast því
nýjasta sem er að gerast í Þýskalandi á kvikmynda-
sviðinu á níu daga þýskri kvikmyndahátíð er hefst í
Regnboganum um næstu helgi.
Hátíðin verður haldin í
Regnboganum dag-
ana 14.-22. sept. og verða
sýndar á henni alls 26
myndir þar af átta í fullri
mmmmmm—mm lengd, sé
miðað við
um 80
mínútur
og meira,
en af-
gangurinn
efbr stutt-
Arnald myndir frá
Indriðason fimm mín.
upp í um 60 mín. Þeir sem
halda hátíðina eru Kvik-
myndaklúbbur íslands,
Goethe Instiput, German-
ia, þýskur kvikmyndasjóð-
ur - Kuratorium junga de-
utscher Film - og Rúnfilm
Production, sem kvik-
myndagerðarmaðurinn
Margrét Rún stendur að.
Þegar talað er um þýska
kvikmyndagerð ber hæst
ófremdarástand það sem
þýska nýbylgjan er komin
í en hún verður víðsfjarri á
hátíðinni. Þar verða kynnt-
ir nýir straumar, ný kyn-
slóð þýskra kvikmynda-
gerðarmanna. „Þýska ný-
bylgjan er afskaplega slöpp
og lasin og eiginlega
dauð,“ sagði Margrét Rún
í spjalli en hún hefur stund-
að nám í kvikmyndagerð í
Þýskalandi undanfarin ár.
„1 hennar stað viljum við
kynna það nýjasta sem er
að gerast í þýskri kvik-
myndagerð, nýju kynslóð-
ina, fyrirbæri er kallast
„Der junge deutsche Film“.
Það besta og athyglisverð-
asta úr henni ætlum við
að sýna á hátíðinni.
Þetta eru mjög fjölbreyt-
ilegar myndir,“ hélt Margr-
ét Rúnáfram.„Allt frá góð-
um, vönduðum gaman-
myndum, upp 1 fallegar,
ljóðrænar myndir og yfir í
mjög ögrandi rnyndir."
Nefndi hún sérstaklega í
því sambandi leikstjórann
Christoph Schlingensief
sem hún segir ýmist út-
hrópaðan sem vandræða-
gemling í þýskri kvik-
myndagerð eða 'kallaður
snillingur.
Hann ásamt tveimur
öðrum, Christan Wagner
og Andreas Voigt, verða
gestir á hátíðinni. Að sögn
Margrétar Rún verða þeir
viðstaddir allar sýningar
mynda sinna og svara
spumingum. Myndir
Wagners heita Síðasta
göngufor Wallers og er frá
1988 en hún segir frá
gömlum manni sem rifjar
upp atburði úr lífi sínu og
Úr óskarsverðlaunateiknimyndinni, Jafnvægi.
Úr mynd Christoph Schlingensief, Þýsku keðjusagarfjöldamorðin.
stuttmyndin Fastákveðinn
í að verða fijáls er segir
frá Franz sem flýr úr fang-
elsi. Myndir Voigt era
heimildarmyndir um lífið í
Leipzig fyrir sameiningu
Þýskalands og heita Síð-
asta árið um borð í Titanic
og Leipzig að hausti.
Myndir vandræðabarnsins
Schlingensiefe eru 60 og
63 mínútna langar, Adolf
Hitler í 100 ár og Þýská
keðjusagarfjöldamorðið -
fyrstu stundir sameinaðs
Þýskalands.
Af öðrum forvitnilegum
myndum má nefna Jafn-
vægið, óskarsverðlauna-
teiknimynd eftir tvíbura-
breeðuma Wolfang og
Christop Lauenstein og
myndir minimalistans
Micháei Kliers, Á mörkum
austurs og vesturs og Það
er allstaðar betra að vera,
en þar sem við erum.
Winona Ryder; vampýru-
veiðar.
MÞAÐ verðurekki Ant-
hony Hopkins sem leikur
Drakúla í nýjustu mynd
Francis Coppola, eins og
áður hefur komið fram,
heldur koma a.m.k. fimm
leikarar til greina í hiut-
verkið: Gary Oldman,
Gabriel Byrne, Viggo
Mortensen, Antonio
Banderas úr Bittu mig,
elskaðu mig og Jason
Patric. Oldman þykir lík-
legastur í hlutverk blóð-
þyrsta greifans en Winona
Ryder leikur aðalkven-
hlutverkið. Það var hún
sem fyrst vakti athygli
Coppola á handritinu.
Hopkins mun leika vamp-
ýruveiðarann Van Helsing
í myndinni.
■ BANDARÍSKI leikar-
inn John Cusack mun
leika flugmann af eskimóa-
ættum í seinni heimsstyij-
öldinni í nýrri mynd ástr-
alska leikstjórans Vincent
Wards („The Navigat-
or“), sem heitir „Map of
the Human Heart“. Með
önnur hlutverk í myndinni
fara Patrick Bergin og
Anne Parillaud, sem lék
Nikítu í samnefndri mynd
í Háskólabíói. Ward bjó
með eskimóum og kynnti
sér nokkuð menningu
þeirra áður en hann fór af
stað með myndina.
■ SÁ ágæti leikstjóri Rob
Reiner, sem síðast gerði
hryllingsmyndina Eymd,
gerir næst réttardrama
með einkar kræsilegu stór-
stjörnuliði. Myndin heitir
„A Few Good Men“ og
það eru ekki minni kallar
en Tom Cruise og Jack
Nicholson sem fara með
aðalhlutverkin en að auki
munu Demi Moore, Kie-
fer Sutherland og Kevin
Bacon jafnvel leika í
myndinni.
■ FREDDI er dauður.
Lokamartröðin er heiti á
sjöttu og að því að sagt er
síðustu hryllingsmyndinni
um Freddie fmgralanga,
martröðina á Álmstræti.
Leikstjórinn heitir Rachel
Talalay.
■ BANDARÍSKUleik-
konurnar Kathy Bates,
Jessica Tandy og Mary
Stuart Masterson leika
saman í nýrri kreppumynd
sem heitirþví undarlega
nafni „Fried Green Tom-
atoes at the Wistle Stop
Cafe“.