Morgunblaðið - 08.09.1991, Page 36
3&..A
MORgUNBLAÐIÐ VELVAKAMDI srNNUDAGrR 8; SEFTEMBFJt 1991,
Á FÖRNUM VEGI
Borgarnes:
120 milljónir kostar að koma
frárennslismálum í gott horf
Borgarnesi.
NÝVERIÐ kom Eiður Guðnason umhverfisráðherra í heimsókn til
Borgarness í boði bæjarstjórnarinnar. Fór ráðherra í skoðunarferð
um bæinn ásamt Sigrúnu Símonardóttur forseta bæjarstjórnar, Óla
Jóni Gunnarssyni bæjarstjóra, ásamt bæjarráði og fulltrúum um-
hverfismálaráðs bæjarins.
Eftir að ráðherrann hafði verið
boðinn velkominn í kjördæm-
ið sitt var farið með rútu í skoðun-
arferð um bæinn. í máli bæjar-
stjórnarmanna kom fram að staða
umhverfismála væri að mörgu
leyti góð í Borgarnesi ef frá væru
skilin óunnin verkefni við frá-
rennslismál og förgun sorps. Sorp-
haugarnir væru í eigu Borgarnes-
bæjar og þar væri einnig fargað
sorpi frá 14 nágrannahreppum.
Núverandi förgunarstaður hafi
verið tekinn í notkun árið 1973.
Þar er sorpbrennsluþró og hefði á
sínum tíma þótt til fyrirmyndar.
Kröfurnar hefðu hins vegar aukist
á síðustu árum og í dag teldust
haugarnir alls ekki fullnægjandi.
Unnið væri að framtíðarlausn í
sorpeyðingu á kjördæmisvísu, í
samvinnu við sveitarfélögin á
Vesturlandi. Árið 1984 hafí verið
gerð úttekt á stöðu holræsismálum
í Borgarnesi og síðan unnin upp
rammaáætlun um framkvæmdir í
framtíðinni. Unnið hafí verið eftir
þessari áætlun fram til þessa. En
hins vegar væri það ljóst að fjár-
hagslega yrði það mjög erfítt fyrir
Borgarnes að framfylgja reglu-
gerð umhverfisráðuneytisins um
holræsismál. Ástæðan væri sú að
allar framkvæmdir væru mjög
dýrar vegna þess hve mjög gætti
flóðs og fjöru á þessum slóðum
og útfíri væri mikið. Á þessu ári
væri búið að vinna fyrir um 12
milljónir en ljóst væri að til að
koma þessum málum í viðunandi
horf þyrfti að kosta til um 120
milljónum á næstu áram.
Að lokinni skoðunarferð um
bæinn og næsta nágrenni, fundaði
Eiður með bæjarráði og fulltrúum
bæjarstjórnar. í máli ráðherra kom
fram að hann teldi að holræsismál
í Borgarnesi væru einna erfiðust
úrlausnar á landjnu. Á landsvísu
væri könnun á holræsismálum
miklu styttra á veg komin heldur
en athugun á sorpeyðingarmálum.
Ljóst væri að sum sveitarfélög
réðu ekki ein við lausn þessara
mála og því þyrfti að koma til ein-
hvers konar fyrirgreiðsla frá hinu
opinbera. Frá bæjarstjóra kom
fram sú hugmynd að fyrirgreiðsla
Frá bæjarstjóra kom
fram sú hugmynd að
fyrirgreiðsla ríkisins
varðandi framkvæmdir
við holræsismál Borg-
nesinga fælist í endur-
greiðslu á virðisauka-
skatti sem kæmi til
vegna framkvæmd-
anna.
rikisins varðandi framkvæmdir við
holræsismál Borgnesinga fælist í
endurgreiðslu á virðisaukaskatti
sem kæmi til vegna framkvæmd-
anna. Sagði ráðherra að nú færu
fram viðræður milli viðkomandi
ráðuneyta annars vegar og sam-
taka sveitarstjórna hins vegar um
að leita lausnar á þessum málum.
Fallið hafi verið frá svokölluðum
nefskatti vegna þeirrar staðreynd-
ar að stærstu sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu væru nú þegar
búin að leysa sín mál varðandi
sorpförgun og holræsamál. Sagði
Eiður að ræddur hafi verið sá
möguleiki að leita leiða til að
stofna styrktar- og lánasjóð til
aðstoðar í þessum málum. Einnig
ÆVINTÝRIN BÍÐA ÞÍN
CB
BRETL
: :...T'
H
ÍÍjMjÍI
(flug og gisting á St. Gile
Verð frá 31.70.0 kr.
á manninn í 3 nætur.
Verð frá 42.560 kr.
á manninn í 7 nætur.
Barnaafsláttur 11.500 kr.
Glasgotv
(flug og gisting á Hospitality Inn)
Verð frá 26.930 kr.
á manninn í 3 nætur.
Verð frá 38.130 kr.
á manninn í 7 nætur.
Barnaafsláttur 9.200 kr.
Hafðu samband við þína ferðaskrifstofu, umboðsmenn x^ngsv,
eða söluskrifstofur okkar og í síma 91-690300
agstæð fargjöld í september
Íliiíly
öl
>EX-f
telgi,
hámarksdvöl 30 dagar)
26.690 kr. á manninn.
Börn 13.350 kr.
ATH!
Skemmtigarðurinn Tívolí lokar
15. september.
(svarað alla 7 daga vikunnar).
/// ^
V^tTA ISl^
FLUGLEIDIR
Allt verð miðað við gengi 28.8.91 og er án flugvallarskatts og forfallagjalds.