Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1997, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SlMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins 1 stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
Mesta ferðahelgin
Mesta ferðahelgi ársins er að ganga í garð. Ef að líkum
lætur munu tugir þúsunda íslendinga vera á ferð og flugi
um landið næstu daga í leit að skemmtilegri tilbreytingu
ýmist á skipulögðum útihátíðum víða um land eða þá í
sumarbústöðum og tjaldstæðum flarri glaumi fjöldans.
Margar hættur felast í þeirri gífurlegu umferð sem
fram undan er á þjóðvegum landsins. Þótt blessunarlega
hafi lítið verið um alvarleg umferðaróhöpp á vegunum
um síðustu verslunarmannahelgi hefur reynslan oft orð-
ið önnur. Glannaskapur og tillitsleysi ökumanna hefur
kostað líf eða ævilöng örkuml alltof margra íslendinga á
undanförnum árum. Það á ekki síst við þegar Bakkus er
hafður með í för í umferðinni, eins og því miður eru
alltof mörg dæmi um. Aldrei er nógu oft minnt á þá meg-
inreglu að áfengi og akstur fara aldrei saman.
Löggæsla er yfirleitt mikil á þjóðvegum um þessa
helgi og það á tvímælalaust þátt í að draga úr slysum.
En ábyrgðin á því að allt fari vel og samkvæmt lögum og
reglum er alfarið í höndum þeirra einstaklinga sem setj-
ast undir stýri. Þeir verða að gera sér grein fyrir því að
þeir bera ábyrgð á lífi og heilsu sjálfra sín og annarra.
Hafi þeir að leiðarljósi að sýna öðrum ökumönnum
fýllstu tillitssemi mun vel fara og allir koma heilir heim.
Skipuleggjendur útihátíða keppast um að fá til sín
sem flesta gesti um verslunarmannahelgina og leggja þá
einkum snörumar fyrir unga fólkið. Það endaði með
ósköpum í fyrra eins og alþjóð er kunnugt, einkum á Ak-
ureyri þar sem drykkjuskapur eftirlitslausra ungmenna
var óheyrilegur. Vonandi hafa þeir sem nú efna til slíkra
skemmtana lært eitthvað af mistökum síðasta árs.
Því miður er reynslan sú að mikil áfengisneysla fýlgir
ýmsum þeim samkomum sem reglulega eru haldnar um
verslunarmannahelgina, þótt frá því séu nokkrar virð-
ingarverðar undantekningar, ekki síst bindindismótið í
Galtalækjarskógi. Lífsmátinn á úthátíðunum mun vænt-
anlega verða með svipuðum hætti að þessu sinni. Hins
vegar verður að gera þá kröfu til mótshaldara og lögreglu
að lögum landsins sé framfylgt á útihátíðum eins og ann-
ars staðar og allt gert sem mögulegt er til að koma í veg
fyrir drykkjuskap unglinga og fikniefnaneyslu.
Ofbeldi hefur gjaman verið annar ömurlegur fýlgifisk-
ur útihátíða um verslunarmannahelgina. Þannig hafa
„hátíðahöldin“ um þessa helgi yfirleitt gefið nokkur til-
efni til kærumála vegna nauðgana og árása af öðru tagi.
Stígamót hafa lagt áherslu á að vara unglingsstúlkur sér-
staklega við þeim hættum sem leynast á útihátíðum þar
sem drykkjuskapur er mikill. Ástæða er til að taka und-
ir þann boðskap Stígamóta að „nei þýðir nei“. Nauðgun
er glæpur og að sjálfsögðu aldrei réttlætanleg. Ofneysla
áfengis kann að vera hluti skýringarinnar á því að slík-
ur glæpur er framinn, en misnotkun vímuefna er ekki
og má aldrei verða gild afsökun ofbeldisglæpa.
Að þessu sinni er efnt til hátíðahalda af ýmsu tagi á
hátt í tuttugu stöðum á landinu. Dagskrá er víða fjöl-
breytileg og við það miðuð að hafa eitthvað fyrir alla.
Það er því úr miklu að velja fyrir þá sem vilja njóta helg-
arinnar með flölskyldunni.
Mikill meirihluti þeirra þúsunda sem leggja land und-
ir fót í dag og næstu daga mun vafalaust verða sjálfum
sér og öðrum til fyrirmyndar um alla framkomu. Móts-
haldarar og lögreglumenn þurfa í sameiningu að sjá til
þess að hinum sé haldið í skefjum. Takist það ætti versl-
unarmannahelgin að verða slysalaus og öllum til sóma.
Elías Snæland Jónsson
,Best er sú skemmtun þegar allir, allar kynslóðir eru saman," skrifar Guðni.
Unglingar eru
líka fólk
Kjallarinn
Guðni Agústsson
alþingismaður
fermingardag-
inn, unglingur
skal ekki
skemmta sér
með foreldrum
sínum, foreldr-
ar ekki með afa
og ömmu, öllu
og öllum skal
skipt í aldurs-
hópa. Best er
sú skemmtun
þegar allir, all-
ar kynslóðir
eru saman.
Hvaö er til
ráöa?
I flestum lönd-
um er þetta
„Þessa helgi sem fram undan er
krossleggja margir foreldrar fíng-
ur, taka áhættuna og senda barn-
/ð sitt nýfermt á einhverja hátíð-
ina af því aö allir vinirnir fengu
aö fara.u
Mesta sukkhelgi sumars-
ins er fram undan. Margir
hugsa sér gott til glóðarinn-
ar að fá unga fólkið með
fulla vasa fjár á sína hátíð.
Þjóð sem kvartar alla daga
eyðir um þessa einu helgi
sem kennd er við verslunar-
menn hundruðum miUjóna.
Hugsjónaríku mótshaldar-
amir eru tilbúnir að fórna
hverju sem er til að fá
strauminn til sín, jafnvel
leggja fallegu Akureyri und-
ir í Hallóstríði. Veðurstofan
fer í kerfi og þorir ekki að
segja neitt um veðurfarið
því þeir liggja undir grun
um að styðja eina hátíðina
fremur en aðra.
Grín og alvara
Allt þetta fær mann til að
hugsa um örlög og afleið-
ingar þess hvemig okkar
skemmtanamenning hefur
þróast í gegnum tíðina. Er
þjóðin leiksoppur eða er
þetta bara allt í lagi? Ríkis-
stjómin blessuð hefur
ályktað, eins og á góðum
ungmennafélagsfundi, að
ísland verði án fiknieöia um alda-
mót. Enginn veit hvernig hún ætl-
ar að fylgja þessu eftir né hvar ætl-
ar hún að taka á, verður það með
fyrirbyggjandi áherslum eða næst
þetta góða fyrirheit með yfirlýsing-
imni einni? Þessa helgi sem fram
undan er krossleggja margir for-
eldrar fingur, taka áhættuna og
senda barnið sitt nýfermt á ein-
hverja hátíðina af því að allir vin-
imir fengu að fara. Hér hefur það
tíðkast að böm era fullorðin á
með öðrum hætti en hér. Unga
fólkið okkar er gott fólk. Það er vel
gefið og í raun betra á mörgum
sviðum en við vorum sem teljumst
til 68-kynslóðarinnar. Meinið er
það að unga fólkið er alltaf að
takast á við hluti sem það ræður
ekki við, hlutverk fullorðna
mannsins. Bamið fær ekki frið til
að vera bam af því foreldramir,
skólamir og ráðamennirnir láta
plata sig. Það eru svo margir sem
fá frið og þurfa að græða á krökk-
unum og ná hverjum árgangi sem
fyrst út á lífið. Hvað þarf að gerast
til að við áttum okkur á því að líf-
ið er dauðans alvara? Er skólinn
lykillinn að nýrri hugsun, sam-
starf foreldra, kennara og bama
undir merkjum nýrrar siðfræði?
Verðum við að fá kirkjuna til að
fresta fermingunni til 16 ára ald-
urs? Svo má spyija: Hver er fram-
koma sekmmtistaða gagnvart
ungu fólki? Hér í mínu nágrenni
era borð og stólar fjarlægð úr hót-
elum og félagsheimilum er halda á
ball þar sem ungt fólk kemur sam-
an. Líti hver í sinn barm. Hvaða
sálræn áhrif svona framkoma hef-
ur á unglinginn. Þetta var ekki
gert við 68-kynslóðina og svona
framkoma skapar virðingarleysi.
Sárt aö missa ungt
fóik
Enginn skaði er jafn sár
og stór og að missa ungt
fólk í rugl eða það farist í
ólgusjó þess lífs sem það er
að takast á við en skortir
aldur og þroska til. Hér er
ekki spurt um stétt eða
stöðu, böm frá góðum
heimilum rata ekkert síður
í ógöngur. Því er hér um samfélags-
legt vandamál að ræða sem verður
að taka á eftir nýjum leiðum. Ungu
fólki er ekki greiði gerður með því
að það fái óáreitt að takast á við
hinn harða heim sem bam. Sú leið
er leið hernaðar, þar sem margir
munu farast. Lausnin er fólgin í
nýrri, ábyrgri fjölskyldustefnu þar
sem við foreldrarnir hættum að
láta plata okkur og kunnum að
segja nei og greina gott frá illu.
Guðni Ágústsson
Skoðanir annarra
Röntgenlæknar segja upp
„Við höfum enga samkeppnisstöðu. Deildin sem
slík nýtur á engan hátt þeirra sértekna sem hún afl-
ar. Þetta hefur leitt til þess að launamunurinn er
talsverður. Sérfræðingar hér telja að það byggist á
þeim greiðslum sem sérfræðingar á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur fá vegna utanspítalasjúklinga."
Ólafur Kjartansson, yfirlæknir á Landspítal-
anum, í Alþýðublaðinu 31. júlí.
Athugasemdir við orðaval
„Frá stjómskipulegu sjónarmiði séð er allt að því
grundvallarmunur á því hvort slíkar athugasemdir
koma frá forsætisráöherra eða öðrum ráðherrum.
Umræðurnar benda hins vegar til, að forsetinn hafi
í ummælum sínum í Washington verið á mörkum
þess, sem talið er eðlilegt eins og forsetaembættið
hefur þróast á síðustu áratugum. Á athugasemdir ut-
anríkisráðherra má þó líta sem ábendingu um að
lengra verði ekki gengið án þess að það gæti leitt til
alvarlegra innræðna um stjómskipulega stöðu for-
setaembættisins."
Úr forystugrein Mbl. 31. júlí.
Blaðamarkaðurinn
„Það samkomulag sem útgefendur blaðsins og A-
flokkarnir hyggjast gera felur EKKI í sér pólitísk af-
skipti af ritstjóm blaðsins. Þau verða engin. Þegar
Dagur-Tíminn var stofnaður vora rofin ritstjómar-
tengsl við Framsóknarflokkinn. Til slíks verður ekki
stofnað nú með öðrum flokkum. Þetta blað er skrif-
að fyrir fólk, ekki flokka. Á þessu byggir það traust
sem lesendur hafa á blaðinu."
Stefán Jón Hafstein f Degi- Tímanum