Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1997, Qupperneq 32
48
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
Skák_________________________________________^
Karpov og Anand deila efsta sætinu í Biel:
Ólíkar aðferðir að settu marki
Skákhátíðin í Biel í Sviss er nú
haldin i þrítugasta sinn og eins og
fyrr er fjöldi þátttakenda í ýmsum
flokkum. í heiðursflokki tefla sex
skákmenn tvöfalda umferð og meðal
þeirra eru Anatoly Karpov og Vis-
wanathan Anand. Keppnin hefur
snúist upp í einvígi þeirra, sem
fylgst er með af mikilli eftirtekt, því
að ljóst er að Karpov á nú fullt í
fangi með að verja stöðu sína í skák-
heiminum gegn ásókn yngri meist-
ara.
Anand þurfti að bíta 1 það súra
epli að tapa skák sinni í sjöundu
umferð fyrir Vadim Milov en Kar-
pov og Boris Gelfand gerðu jafntefli.
Við þessi tíðindi tókst Karpov að
komast upp að hlið Anands og deila
þeir nú efsta sætinu þegar þremur
umferðum er ólokið, með 5 vinn-
inga. Næstur kemur Gelfand með 4
vinninga, síðan Milov með 3,5, Joel
Lautier hafði 2,5 og Yannick Pelleti-
er hafði hlotið 1 vinning.
Fyrri skák Karpovs við Anand
lauk með jafntefli eftir 41 leiks bar-
áttu en seinni skákina eiga þeir eft-
ir að tefla og hefúr Anand þá hvítt.
Skák þeirra ræður trúlega úrslitum
á mótinu sem lýkur um helgina.
Skáklistin býður upp á stjam-
fræðilega marga möguleika og þar á
meðal leynast margar góðar leiðir
að settu marki sem auðvitað er að
máta kóng andstæðingsins. Tafl-
mennska Anands og Karpovs í Biel
er raunar lýsandi dæmi um þetta
því að ólíkt hafast þeir að en hafa þó
til þessa hlotið jafnmarga vinninga.
Anand hefur teflt „opið“ og
skemmtilega og bryddað upp á ýms-
um óvæntum leikjum eins og ind-
verska reiknimeistaranum er tamt.
Karpov hefur á hinn bóginn teflt
stöðubaráttuna óaðfinnanlega eins
og honum einum er lagið. Eftirfar-
andi skákir tefldu þeir í 1. umferð
og hafa áhorfendur þvi haft gott
tækifæri til að bera saman aðferð-
imar.
Hvítt: Viswanathan Anand
Svart: Joel Lautier
Skandinavíski leikurinn.
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Da5
4. d4 Rf6 5. RfB c6 6. Bc4 Bf5 7.
Re5 e6 8. g4 Bg6 9. h4 Rbd7 10.
Rxd7 Rxd7 11. h5 Be4 12. Hh3 Bg2
13. He3 Rb6 14. Bd3 Rd5 15. f3
Bb4 16. Kf2 Bxc3 17. bxc3 Dxc3
18. Hbl Dxd4 19. Hxb7 Hd8
20. h6! g6 21. Bg6!!
Óvænt drottningarfóm. Auðvelt
er að reikna út að 21. - Dxdl er svar-
að með 22. Bxf7+ Kf8 23. Bxh6 mát.
Aðrir kostir svarts eru 21. - Rxe3 22.
Bxf7+ Kf8 23. Dxd4 Hxd4 24. Bxe3 og
vinnur vegna máthótunarinnar á
h6, eða 21. - Df6 22. Bxf7+ Dxf7 23.
Hxf7 Rxe3 24. Dxd8+ Kxd8 25. Bxe3
Bhl 26. Hxa7 með vinningsstöðu.
21. - Re7 22. Dxd4 Hxd4 23. Hd3
Hd8 24. Hxd8+ Kxd8 25. Bd3
- og svartur gafst upp. Biskupinn
innilokaði hlýtur að falla og staðan
er hrunin. Ef 25. - Bhl 26. Bxh6 og
hótar m.a. 27. Hbl o.s.frv.
Hvítt: Yannick Pelletier
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3
Bb7 5. Rc3 d5 6. Bg5 Be7 7. Da4+
Bc6 8. Db3 dxc4 9. Dxc4 0-0 10. e3
Bb7 11. Be2 a6 12. Hcl Rbd7 13. 0-
0 b5 14. Da2 c5 15. Hfdl Rd5 16.
Bxe7 Dxe7 17. dxc5 Rxc5 18. b4
Rxc3 19. Hxc3 Re4 20. Hcd3?! Bd5
21. Db2 Hac8
Hvítur hefur villst af c-línunni og
nú er svartur kominn með undirtök-
in.
22. Rd2 Rd6! 23. f3 Bc4 24. Rxc4
Rxc4 25. Db3 Rb6 26. Bfl h6 27.
Hd6? Rd5! 28. Hxa6 Hc3 29. Db2
Hfc8!
Hvítur hefur gerst veiðibráður en
peðið er dýru verði keypt. Nú er
hvíti hrókurinn rangstæður og
þungavopnalið svarts leikur lausum
hala. Hvítur gerir nú best með 30.
Hd3 og reyna að létta á þrýstingn-
um. Næsti leikur hans leiðir til þess
að lykilmaður í vörninni - bisk-
Umsjón
Jón L Ámason
upinn á fl - hverfur af vígvellinum
og þá hlýtur veikleikinn á fyrstu og
annarri reitaröðinni að segja til sín.
30. e4? Re3 31. Hel Rxfl 32.
Hxfl Hc2 33. De5 Hd8! 34. Dxb5
Hdd2 35. Db8+ Kh7 36. Dg3 Dd7
37. Ha5 Dd4+ 38. Khl Hdl
- og hvítur gafst upp.
,
mmsm 13.' óTV' PffCTtwwic
'JONUS TUM3C LYSIIUGAR
550 5000
Kársnesbraut 57 • 200 Kópasogi
Sfmi: 554 2255 • BH.s. 896 5800
LOSUM STÍFLUR ÚR
Wc
Vöskum
Niðurföllum
O.fl.
MEINDÝRAEYÐING
VISA/EURO
PJONUSTA
ALLAN
SÓLARHRINGINN
10 ÁRA REYNSLA
VÖNDUÐ VINNA
Ný lögn á sex klukkustundum
i staö þeirrar gömlu -
þú þarft ekki ab grafa!
Nú er haegt ab endurnýja gömlu rörin,
undir húsinu eba í garbinum,
á örfáum klukkustundum á mjög
hagkvceman hátt. Cerum föst
verbtilbob í klœbningar
á gömlum lögnum.
Ekkert múrbrot,
ekkert jarbrask
24 ára reynsla erlendis
iDsnTCim'
Myndum lagnir og metum
ástand lagna meb myndbandstœkni ábur en
lagt er út í kostnabarsamar framkvcemdir.
Hreinsum rotþrœr og brunna, hreinsum
lagnir og losum stíflur.
I I
/z7jRO*r
3 L
HREINSIBÍLAR
Hreinsibílar hf. Bygggörbum 6
Sími: 551 51 51
Þjónusta allan sólarhringinn
Geymiö auglýsinguna.
Dyrasímaþjónusta
Raflagnavinna
ALMENN DYRASÍMA- OG
RAFLAGNAÞJÓNUSTA.
Set upp ný dyrasímakerfi og geri við
eldri. Endurnýja raflagnir í eldra húsnæði
ásamt viðgerðum og nýlögnum.
Fljót og góð þjónusta.
JÓN JÓNSSON
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Sími 562 6645 og 893 1733.
Skólphreinsun Er stíflað?
Fjarlægi stíflur úr wc, vöskum, baðkerum og niðurföllum.
Nota ný og fullkomin tæki, rafmagnssnigla.
Röramyndavél
til að mynda frárennslislagnir og staðsetja skemmdir.
Ásgeir Halldórsson
Sími 567 0530, bílas. 892 7260 og
852 7260, símboði 845 4577
^ST
FJARLÆGJUM STIFLUR
úr vöskum.WC rörum, baökerum og niður
föllum. Viö notum ný og fullkomin tæki.
RÖRAMYNDAVÉL
til aö skoöa og staðsetja
skemmdir í WC lögnum.
VALUR HELGASON
Æ5A 8961100-568 8806
DÆLUBILL ^568 8806
Hreinsum brunna, rotþrær,
niöurföll, bílaplön og allar
stíflur í frárennslislögnum.
VALUR HELGASON
o"t milll hirnjnx _
Smáauglýsingar
DV
550 5000
BIRTINGARAFSLATTUR
o«t mil/i hirnii
'Os
X
15% staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur
10% aukaafsláttur fyrir áskrifendur
Smáauglýsingar
550 5000
Loftpressur - Traktorsgröfur - Hellulagnir
Brjótum hurðargöt, veggi, gólf,
innkeyrslur, reykháfa, plön o.fl.
Hellu- og hitalagnir.
Qröfum og skiptum um jarðveg í
innkeyrslum, görðum o.fl.
Útvegum einnig efni. Qerum
föst tilboð. Vinnum einnig á
kvöldin og um helgar.
VELALEIGA SIMONAR HF.,
SÍMAR 562 3070. 852 1129. 852 1804 og 892 1129.
Gröfuþjónusta
Fannar Eyfjörð
Case 580 super servo, árg. '97
Símar 898 0690 og 898 4979
Eldvarnar- Oryggis-
hiiríSir GLÓKAXIHE
11UIU11 ÁRMÚLA 42 • SÍMI553 4236
hurðir
STEYPUSOGUN
VEGG- OG GÓLFSÖGUN
KJARNABORUN
LOFTRÆSTIOG LAGNAGOT
MURBROT OG FJARLÆING
ÞEKKING^REYNSLA • GÓÐ UMGENGNI
SIMI 567 7570 • 892 7016 • 896 8288
STEINSTEYPUSOGUN
MÚRBR0T
KJARNAB0RUN
^ögun VERKTAKASTARFSSEMI
FARSÍMI 897-7162 • SÍMI/FAX 587-7160 • 897-7161