Tíminn - 15.04.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.04.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 15. april 1973. ÞAÐ KOM I MINN HLUT HJÁ SAM- BANDINU AÐ SELJA FISK Segir Jón Arnason, fv. bankastjóri OTFLUTNINGUR sjávarafurða i þvi formi, sem hann nú er á sér rætur langt aftur i timann, en samt er ekki lengra en svo, að margir eru lifandi á meðal vor, er stefnuna mörkuðu og lögðu grundvöllinn að þvi skipulagi, er við búum við i dag. Einn þeirra er Jón Arnason fv. bankastjóri i Landsbankanum, er um árabil gegndi trúnaðarstöðum og em- bættum, þar sem fjallað var um utanrikisverzlun og sjávarútveg. Jón Árnason, bankastjóri er fæddur 17. nóvember árið 1885 að Syðra — Vallholti i Seyluhreppi i Skagafirði og situr nú i hárri elli að heimili sinu i Reykjavik. Timinn átti við Jón stutt viðtal um störf hans að útflutnings- málum, stutt spjall um mikla sögu, sem ekki veröa gerð nein veruleg skil hér. Um störf Jóns Árnasonar hefur fátt verið skrif- að opinberlega um nokkurt skeið, en þó mun ævisaga hans hafa ver- ið rituð og veröur að henni mikill fengur, þegar hún kemur fyrir almennings sjónir.Jón var for- stjóri Útflutningsdeildar SIS frá árinu 1917 til ársloka 1945, er hann varð bankastjóri við Landsbanka Islands. Sagðis* Jóni frá á þessa leið: Hóf störf í SIS 1917 Ég byrjaði störf hjá Sambandinu árið 1917 i Kaup- mannahöfn. Sambandið var i mótun þá og bauð Hallgrimur Kristinsson þáverandi forstjóri mér að velja um innflutnings deildina og útflutninginn. Ég kaus útflutninginn, þótt mér væri það ljóst, að hún myndi verða erfiðari viðfangs. Ég held að þetta val hafi komið honum dálitið á óvart, þvi örðugleikar voru miklir. Ég kom heim til Islands 1917 með mótorbát. Þetta var nokkuð söguleg sjóferð, sem minnir dálitiðá ferð Gisla Jónssonar, al- þingismanns og vélstóra og þeirra félaga, er komu upp með „Frekjunni ” i siðari heim- styrjöldinni. Báturinn hét „Val borg” og eigandi hans var Brynjólfur Arnason frá Mikla garði i Eyjafirði. Þetta var fiski- bátur, en það var strið og það var ekki um neitt að velja, svo ég fór heim með bátnum. Ég var heilan mánuð i ferðinni, þar af hálfan mánuð á bátnum og fyrir rest vorum við orðnir matarlitlir og átum tóma lifrarkæfu. Ég held að skipstjórinn hafi verið fákunn- andi um sigiingafræði, þvi einn daginn spurði ég hann, hvar við værum staddir, þá sagði hann okkur vera norður af Færeyjum, en svo næsta morgun vorum við útaf Eystra horni, en einhvern veginn blessaðist þetta til lands. Lengi mun þessi langa ferð verða mér i minni fyrst yfir Jótland og til Kristjanssand og siðan yfir hafið og óvissa um allt i striði stórþjóðanna setti skugga á himininn. Það kom i minn hlut hjá Sam- bandinu að selja fisk. Viöskipta- menn okkar voru samt bæði fáir og dreifðir á þessum árum þ.e. framleiðendur of fáir og dreifðir til að hægt væri að byggja upp sjálfstætt sölukerfi. Við seldum þvi saltfiskinn gegnum Kveldúlf, sem hafði á þessum árum umfangsmikinn útflutning á salt- fiski til Miðjaröarhafslanda og viðar. Það var Richard Thors, sem annaðist þessi sölumál fyrir Kveldúlf og hefi ég aðeins gott um þau viðskipti að segja. Ekkert frysti- skip i förum Á þessum árum var litið um hraöfrystan fisk og það sem verra var, að ekkert skip var til, sem flutt gat frystar afurðir. Gullfoss, (gamli) hafði þó smá frystiklefa og það var helzt að maður gæti komið frosnum laxi með skipinu til útlanda, en okkur var ljóst að við urðum með ein- hverjum hætti að fá frystiskip til landsins og það kom að þvi að al- þingi skipaði sérstaka nefnd til að gera tillögur um frystiskip. Ég átti sæti i þessari nefnd ( 1928) og það varð aðdragandinn að smiði Brúarfoss, sem var glæsilegt frystiskip, gangmikið og velbúið i alla staði. Við komu þess skips, gjörbreyttust aðstæður allar. Nú var hægt að koma hraðfrystum afurðum á markað erlendis, kjöt-i, og sjávarafurðum. Sambandið fór smám saman að eflast sem útflutningsaðili i sjávarafurðum og við stofnuðum til viðskipta- sambanda, sem voru notuð þar til striðið skall á. Þá breyttist hins vegar allt. Störf í stríöi Utanrikisverzlun Islendinga, inn og útflutningur komst á eina hendi, ef svo má að orði komast þvi herstjórn Bandamanna varð að samþykkja alla hluti. Við urðum að selja vörur okkar og það varð að tryggja landinu nauð- synjar. Þessir samningar voru i höndum rikisstjórnarinnar, sem fól þá sérstakri nefnd, sem ég átti sæti i, ásamt Magnúsi Sigurðs- syni, bankastjóra, sem var for- maður, Richard Thors, Asgeir Ásgeirssyni og Kristjáni Einars- syni. Þessi nefnd varð að semja Jón Árnason, fv. bankastjóri f Landsbankanum (dökkkiæddur) og Ilelgi Pétursson, Jón veitti útflutningsdeild SIS forstöðu frá 1917-1945, er Helgi tók við starfi hans. Helgi Pétursson er látinn fyrir nokkrum ár- um, cn hann gegndi margvislegum trúnaðarstöðum fyrir sjávarútveg- inn og landbúnaðinn. um allan inn- og útflutninginn. Ég held að nefndin hafi unnið gott starf. Hún starfaði áfram nokkur ár eftir striðið unz hún var lögð niður af Bjarna Benediktssyni og gerð að embættismannanefnd innan stjórnarráðsins og varð þar með úr sögunni. Ég hygg að þetta hafi verið misráðið. Ekki svo að skilja, að aðstæður hafi ekki breytzt, en með þessum hætti fengust þeir aðilar til samstarfs, er hlutu óhjákvæmilega að fjalla um utan- rikisverzlunina. Hvort eð var. Arið 1945, fór ég i Lands- bankann. Afskiptum minum af útflutningi Sambandsins var þar með lokið, nema hvað bankar starfa auðvitað að gjaldeyris- öflun og millirikjaverzlun, en það er önnur saga, segir Jón Arnason, bankastjóri að lokum. Við þetta er þvi að bæta, að Jón Arnason, bankastjóri lét af störfum i Landsbankanum fyrir aldurs sakir árið 1954 nær sjötugur og varð þá einn af bankastjórum Alþjóðabankans i Washington i tvö ár. Mjög fáir nú- lifandi Islendingar hafa skipað fleiri trúnaðarstöður i atvinnulif- inu en Jón Arnason, bankastjóri. Sambandshúsið. Sjávárafurðadeildin hefur aðsetur á 1. hæð I suöurálmu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.