Tíminn - 15.04.1973, Blaðsíða 36
■crmrcratra A n fl aaúa-aaaa-M-CiaÍT-h-U-CrlrirtriríririrCrírírírCra-a-h-b-h-Cc-bú-hic-Crícaa-írb.
36
TÍMINN
Eru örbylgjurnar
umhverfis okkur að
verða lífshættulegar?
Harf nnn m iríA íimlail/in w»o fc nrfill m Arfnil ?Vl 1 m . --- . ... .
Dag hvern erum við umleikin rafsegulmögnuðum
örbylgjum, og sú orka, sem send er út, eykst stöðugt
— með aukinni notkun radartækja, sjónvarps, ör-
bylgjuofna o.s.frv. Sumir visindamenn óttast, að
þessi geislun sé mönnum hættuleg — eða sé að
verða það— en enn er of litið vitað um hættuna til að
hægt sé að sanna hana af fullri vissu.
AUGU MANNA eru nú farin að
opnast fyrir hættu þeirri, sem
stafar af alls konar mengun, sem
þeir eru sjálfir valdir að. Sýnileg
mengun getur verið hættuleg, en
ósýnileg mengun er sizt hættu-
minni. Nú eru visindamenn að
vakna til meðvitundar um enn
nýja hættu, sem mennirnir skapa
sjálfum sér. Hér er um að ræða
rafbylgjur, sem sifellt aukast i
tæknivæddum heimi.
En það er ekki auðvelt að sýna
fram á beina hættu af völdum
hátiðnibylgja, eða hvernig á að
koma i veg fyrir að þær hafi áhrif
á mannslikamann. A ráðstefnu,
sem haldin var i Richmond i
Bandarikjunum, um skaðsemi
hátiðnibylgja og geislunar á
mannslikamann, sagði einn af
ræðumönnunum, er ráðstefnan
hafði staðið yfir i þrjá daga:
— Um hvaö erum viö eiginlega
að tala? Ég fullyröi, að enginn
okkar veit um hvað við erum að
tala hérna!
Allt frá fæðingu er maðurinn
umvafinn hátiðnibylgjum, sumar
þeirra eru skaðlausar, aðrar
hættulegar. Reiknað er með, að 20
til 40% af rafbylgjum og geislum,
sem maðurinn er sifellt baðaður i,
stafi frá tækjum, sem hann
hefur sjálfur smiðað. Hin
náttúrulega útgeislun er meðal
annars frá ljósi, vatni, loftinu,
geimgeislar og radióbylgjur frá
sólinni, tunglinu og stjörnunum.
Bylgjurnar endurkastast frá jörð
og fjöllum. „Tilbúin” geislun er
einkum útvarps- og radarbylgjur,
geislavirkt úrfelli, röntgengeislar
og önnur geislun sem notuð er við
lækningar, iðnað og visindalegar
rannsóknir.
Mikil orka felst i þessari tilbúnu
geislun. Bandariskir verkfræö-
ingar hafa reiknað út, að meðal-
orka frá útvarpsstöð, sem fer
gengum ibúð i hálfs annars km
fjarlægð svari til þess krafts, sem
þarf til að lyfta bil i hálfs metra
hæð i heilan dag, eða til að aka bil
einn km á dag.
Nauðsyn krefur að nákvæmari
þekkingar verði aflað um
afleiðingar of mikillar
geislunar. Margir visindamenn
austan hafs og vestan staðhæfa að
samband sé milli sifellt aukinnar
notkunar á hátiðnibylgjum og
likamlegra og andlegra sjúk-
dóma, til að mynda og lágs blóð
þrýstings og truflunar á mið-
taugakerfi.
Um tveggja ára skeið hafa
visindamenn i Bandarikjunum
gert rannsóknir á áhrifum
hátlönibylgja á.mannslikamann.
Hefur það haft þau áhrif, að
settar hafa verið strangar reglur
Kröftugar radarbylgjur eru lifshættulegar þeim sem lendir beint í geislanum nærri slikri stöð. Fuglar
sem fljúga inn i geisiann gegnumstikna á svipstundu.
☆ SKÍÐA jakkar
. skíða buxur
a skíða hanzkar
* skíoa gleraugu
* skíða skór
☆ SKÍÐA stafir
Fallegar vörur, vandaðar vörur
Landsins mesta úrval
PÓSTSENDUM
SPORTVAL
I
Hlemmtorgi — Simi 14390