Morgunblaðið - 01.04.2008, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HORTON m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:30 B.i.16 ára
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 8:30D - 10D - 10:30D B.i. 10 ára DIGITAL
HANNA MONTANA kl. 6 3D LEYFÐ 3D DIGITAL
JUNO kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN ísl tal kl. 6 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10:10D B.i. 7 ára DIGITAL
LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
10,000 BC kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
10,000 BC kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára LÚXUS VIP
THE BUCKET LIST kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
- Sigurjón M. Egilsson
Mannlíf
eeee
,,Myndin er sannarlega þess virði
að fólk flykkist á hana.“
- Páll Baldvin Baldvinnsson
Fréttablaðið
eee
,,Pétur Jóhann í toppformi
í aðalhlutverkinu í bland
við bráðskemmtilega
toppleikara og furðufugla..."
- Snæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið
eee
,,Góð framleiðsla með topp
leikurum í öllum hlutverkum,
sem óhætt er að skella
gæðastimplinum á."
- Stefán Birgir Stefánsson
sbs.is
Í ÁR eru þrjátíu ár liðin frá svip-
legu fráfalli hins ástkæra söngv-
ara Vilhjálms Vilhjálmssonar.
Rás 2 heiðraði minningu Vil-
hjálms með því að leika lög með
söngvaranum frá morgni til
kvölds á föstudaginn og á laug-
ardeginum voru haldnir tónleikar
í Salnum í Kópavogi þar sem
nokkrir af fremstu dægurlaga-
söngvurum landsins komu saman
ásamt hljómsveit skipaðri val-
inkunnum tónlistarmönnum.
Aðdáendur Vilhjálms hugsa sér
svo gott til glóðarinnar því ný-
lega kom í leitirnar óútgefið lag
eftir Magnús Kjartansson sem
Vilhjálmur söng inn á upptöku
skömmu áður en hann lést. Von
er á að lagið komi fyrir eyru al-
mennings áður en langt um líður.
Vilhjálms Vilhjálmssonar minnst
Honum til heiðurs Andi Vilhjálms sveif yfir vötnum á tónleikunum. Guð-
rún Gunnarsdóttir, Stefán Hilmarsson, Pálmi Gunnarsson og Friðrik Ómar
fluttu dægurperlur þær er Vilhjálmur gerði frægar.
Morgunblaðið/Eggert
Þrjár raddir Söngkonur úr Gospelkór Reykjavíkur sungu bakraddir.
Morgunblaðið/Eggert
Europar Friðrik Ómar var einn
þeirra sem skipulögðu tónleikana á
laugardaginn. Hér er hann ásamt
Regínu Ósk en saman halda þau til
Belgrad í lok næsta mánaðar til að
keppa fyrir Íslands hönd í Evróvisjón.
„AUSTURSTRÆTI, ys og læti,“
kvað Laddi í árdaga og víst er að
eitthvað verður um það í dag en þá
ætlar Bob Dylan að stíga þar á pall
ásamt götuspilaranum geðþekka
JoJo. Ætla þeir að renna í samein-
ingu í gegnum nokkrar perlur Dyl-
ans framan við Eymundsson-
bókabúðina, þar sem JoJo heldur
gjarnan til. Dylan, sem er að sögn
innvígðra í óvenjulega miklum gal-
gopafíling um þessar mundir, er
staddur á Íslandi þessa vikuna,
öðrum þræði til að pústa eilítið en
svo er hann einnig að kanna að-
stæður fyrir væntanlega tónleika
hér á landi í maí. Að sögn blaða-
fulltrúa Dylans frétti hann af JoJo
í gegnum vin sinn Bruce Springs-
teen, en bláflibbarokkarinn tók
lagið með JoJo á sínum tíma á
Strikinu eins og frægt er orðið.
Ekki er þá ólíklegt að Jakob Dyl-
an, sonur meistarans og leiðtogi
hljómsveitarinnar The Wallflow-
ers, slái og á strengi, en hann
fylgdi föður sínum til landsins og
ætla þeir að kasta flugu út í eitt-
hvert fljótið saman, en Jakob er
mikill áhugamaður um slíkt sport.
Dylanfeðgar og JoJo ætla að
munda slaggígjurnar upp úr 15.00
og aldrei að vita nema vindgola,
uppfull af svörum, blási hressilega
um strætið og veitir sosum ekki af
á þessum síðustu og verstu. Ætli
Bubbi viti af þessu?
Bob Dylan í
Austurstræti
Skoðar aðstæður og rennir fyrir sil-
ung Frétti af JoJo hjá Springsteen
Morgunblaðið/G. Rúnar
Jo Jo Án efa þekktasti götulistamaður þjóðarinnar og
ef til vill heims, innan skamms.
Mættur Bob Dylan er mikið ólíkindatól eins og hann
hefur margoft sannað á löngum ferli sínum.